Vikan - 26.07.1979, Síða 39
Smekkleg dökkgræn eldhús-
innrétting. Eldavél með inn-
byggðum heila, sem lætur til sín
heyra, þegar sunnudagssteikin
er tilbúin. Kauptu mórauðan
lúxus í eldhúsið þitt! Og leiktu
þér að andstæðunum!
Auglýsingabæklingar eldhús-
innréttingaframleiðenda eru
yfirfullir af hvatningum til
væntanlegra kaupenda. Og
framleiðendurnir reyna að troða
hinum um tær, hvað varðar lita-
gleði og þróun framleiðslu
sinnar. Allir eru sammála um,
að auðvelda eigi heimilisstörfin.
En eitt þýðingarmikið atriði
hefur í mörgum tilfellum
gleymst. Lýsingin.
Dökkir litir gleypa birtuna
Dökkir litir í eldhúsinu
gleypa í sig birtuna frá lömpum
og kösturum í' eldhúsinnrétt-
ingunni. Dökkmálaðir veggir og
skápahurðir mynda mikla and-
stæðu vel upplýsts vinnuborðs
og annarra hluta eldhúsinnrétt-
ingarinnar.
Dökkbrúnar veggflísar bak
við vinnuborðið tóku til sín
þriðjung lýsingarinnar í saman-
burði við hvítan lit, sýnir
könnun, sem sænsku Neytenda-
samtökin létu gera nýlega. Og
dreifing ljóssins um herbergið
minnkar um helming. Séu dökk-
brúnar veggflísar látnar ná alveg
upp að skápum fyrir ofan,
speglast eldhúsborðið í efstu
röðum veggflísanna. Slíkt getur
verið ákaflega þreytandi fyrir
augun, t.d. ef setið er við
eldhúsborðið. Slíka endur-
speglun má forðast með því að
setja tréborð í stað efstu flísa-
raðarinnar. í það má svo setja
alls kyns hengi, ef vill.
Ryðfriir vaskar og þvottaborð
mynda oft þreytandi endur-
speglun. Því fægðari sem þeir
eru þeim mun meiri speglun.
Betra er að fá þá matta, eða þá
með hvilftum. Eins eru svartar
plastborðplötur óþægilegar.
Léleg lýsing
Það er ekki alltaf dökkum lit-
um í eldhúsi að kenna, að
lýsingin virðist léleg. Sannleik-
urinn er sá, að lýsing í eldhúsum
virðist fyrir einhverja undarlega
sök vera ákaflega léleg. Það er
furðulegt, þar sem eldhúsið er
eitt mesta vinnuherbergið á
öllum heimilum. Og það er
gamall sannleikur að það er ekki
gott að vinna í lélegri lýsingu.
Það fer illa með augun. Oft
kemur einnig fyrir í lélegri
lýsingu, að fólk temur sér
óheppilegar stöður við vinnuna
og getur fengið slæmsku í bak.
Lýsing við vinnuborð
„Nú er komið fyrir neonljósa-
rörum í helmingi allra eldhús-
innréttinga sem framleiddar eru
i Svíþjóð,” segir Kerstin Cziff-
áry, sem stjórnaði könnun þess-
ari fyrir sænsku Neytendasam-
tökin. Að það er ekki gert í
öllum tilfellum er trúlega vegna
þess, að þau eru dýrari en venju-
leg Ijós. Hins vegar eru ljósa-
rörin ódýrari til langframa og
veita þrisvar til fjórum sinnum
meiri birtu en venjulegar perur
af sama styrkleika.
„Vinnuborðslýsingin á að
vera fest undir fremri hlið vegg-
skápanna. Hún á að vera hulin
að framan, svo að Ijósið skíni
ekki beint í augun. Þá skal hafa í
huga að miða Ijósafjölda við
stærð vinnuborðsins þannig að
lýsingin verði jöfn.
Hafið mismunandi lýsingu
Eldhúsið er ekki aðeins vinnu-
staður. Það er einnig þýðingar-
mikið, að hægt sé að breyta
lýsingunni, ef maður vill
einungis sitja við eldhúsborðið
og slappa af. Venjulega eru
peruljós yfir matarborðum. En
hvers konar peruljós er mjög
mikið háð því hvernig eldhúsið
er.
„í dökkmáluðu eldhúsi er
lampi, sem lýsir til allra átta
langheppilegastur,” segir Bertil
Mattsson hjá Neytenda-
samtökunum sænsku. „Hann
dreifir Ijósi um allt eldhúsið og
bætir þannig upp aðra lýsingu,
sem fyrir hendi er. í ljóslituðu
eldhúsi er best að hafa lampa
yfir borðinu, sem lýsir beint
niður. Þá lýsir hann einungis
beint niður á borðið. Svo er til
ein gerð enn, lampi, sem lýsir
bæði upp og niður. Hann lýsir
einnig upp í loftið og bætir
þannig lýsinguna sem fyrir er.
Veljið rétta lampa
Hver svo sem gerðin er af
vinnuborðslömpum, á henni að
Lampi sem lýsir i allar áttir. Hann bætir
mjög upp þá lýsingu, sem fyrir kann að
vera í eldhúsinu.
Lampi sem lýsir beint niður á við. Hann
beinir geisla sínum beint á borðið, en
umhverfið fellur í skugga.
Lampi sem lýsir bæði upp og niður.
Hann beinir meirihluta Ijóssins niður á
við, en einnig upp á við, sem er yfirleitt
ti! bóta.
30. tbl. Vikan 39