Vikan - 16.08.1979, Blaðsíða 11
(3+2=5'I
. En þú hefur einnig mjög mikinn áhuga á
andlega lífinu og sjálfskönnun. Það sem
skiptir þig mestu máli er hið andlega og
vitsmunalega.
Þú tekur engu sem sjálfsögðum hlut.
Venjulega ertu nokkuð fjarrænn —
þú ert hamingjusamastur í þröngum
hópi góðra vina sem þú hefur valið þér
vegna áhuga þeirra á sjálfsþroskun. Þér
hættir til að sökkva þér niður í hugsanir
Um sálarrannsóknir og trúmál.
Reyndu að sigrast á tilhneigingum
þínum til efasemda, taugaveiklunar og
haldhæðni.
Hentugustu störfin: Vísindalegar
tannsóknir, hagfræði, fasteignasala, alls
hyns fjárfestingar, fornleifafræði, jarð-
fræði, ritstörf eða ráðuneytisstörf.
Happadagar
ntánaðarins: 2,11,20,29.
Óheppilegustu dagarnir: 9,18,27.
Besti starfsfélaginn: Númer 2.
Besti vinurinn: Númer 4.
Besti makinn: Númer 4.
Happalitur: Fjólublár.
8
Framkvæmdastjórinn
Þú hefur sterka siðferðiskennd og
reynir að vera réttlátur I öllum málum.
Þú ert virðulegur og fullur af sjálfs-
trausti — venjulega sá sem valdið hefur.
Þú hefur mikinn áhuga á viðskiptum
og á því sviði eru hæfileikar þínir mestir.
En þú reynir líka að vera réttlátur í
öllum viðskiptum. Þú notar stjórnunar-
hæfileika þína og dugnað jafnt til að
bæta aðstæður á heimili þínu og vinnu-
stað.
Forðastu tilhneigingu þína til græðgi
og óþolinmæði.
Hentugustu störfin: Allt sem þarfnast
skarprar dómgreindar, skipulagningar
og hæfileika til framkvæmda, t.d. ráð-
gjafastörf í sambandi við viðskipti,
skýrslugerðir, útgáfustarfsemi. Þú yrðir
líka góður verktaki, verkfræðingur eða
lögfræðingur.
Happadagar
mánaðarins:
Óheppilegustu
dagarnir:
Besti starfsfélaginn:
Besti vinurinn:
Besti makinn:
Happalitur:
9
Háspekingurinn
Þú hefur töfrandi framkomu og hefur
mikla löngun til að koma mannkyninu
að gagni. En þó að þú sért mikill mann-
vinur og hafir mestan áhuga á andlega
sviðinu geturðu líka staðið föstum
fótum á jörðinni.
Þú hefur meiri áhuga á ástandinu I
heiminum yfirleitt en persónulegum
málum. En venjulega áttu til samúð og
skilning handa öllum.
Varastu of mikla tilfinningasemi,
framhleypni og óhagsýni.
Hentugustu störfin: Fjölmiðlastörf,
störf innan rannsóknarlögreglunnar,
sálfræðingur, trúboði, ráðuneytisstörf
og rannsóknir á dulspeki.
Happadagar
mánaðarins:
Óheppilegustu
dagarnir:
' Besti starfsfélaginn:
Besti vinurinn:
Besti makinn:
Happalitur:
5,14,23.
4, 13,22,31.
Númer 5.
Númer 2.
Númer 4.
Rósrauður.
7,16,25.
3,12,21,30.
Númer 3.
Númer 4.
Númer 4.
Gulgylltur.
j glas, svo þú þarft ekki að vera með
^nnan leikaraskap.
Þessi pels er ekkert dýr ef
þú hefur í huga hvað krón-
an er orðin verðlaus.
33. tbl. Vlkanll