Vikan


Vikan - 16.08.1979, Blaðsíða 27

Vikan - 16.08.1979, Blaðsíða 27
... aðeins nokkrar hræður á fyrsta bekk Kæri draumráðandi. Mig langar að biðja þig að ráða fyrir mig draum, sem mig dreymdi. Mig dreymdi strák, sem ég er ofsa- lega hrifin af. Draumurinn var þannig, að mér fannst hann vera dáinn. Við jarðarförina fannst mér að ég og vin- kona mín sætum á aftasta bekk. Það voru mjög fáir i kirkjunni, aðeins nokkrar hræður á fyrsta bekk. Þegar verið var að jarðsetja hann fannst mér að við stœðum einar sér, langt frá öllum hinum. Með fyrirfram þökkum fyrir birt- ingu. Ein hrifin. Draumurinn er nefndum strák fyrir langlífi, svo ekki þarftu að óttast að neitt komi fyrir hann. Einnig er sennilegt að þið vinkonurnar giftist báðar mjög ung- ar og þá jafnvel með óvenju stuttum að- draganda, en farið samt varlega i að taka þetta of bókstaflega! Ég og Travolta Kæri draumráðandi! Mig dreymdi að ég væri í skólanum og ég var í bol, sem ég á. Hann er rauður og hvítur (uppáhaldslitirnir hans). Við krakkarnir vorum með skólaborðin og röðuðum þeim þannig að þau mynduðu nokkurn veginn beina röð. Svo fórum við að steypa okkur kollhnís eftir borðunum, en Travolta stóð við endann til að taka á móti okkur. Nú voru allir búnir nema ég, en þegar ég ætlaði að snúa mér rann ég alltaf til á borðinu. Það var sama hvað ég reyndi og reyndi, ég komst bara alls ekki. Við hlógum öll innilega, þó sérstaklega ég og Travolta. Svo sagði Travolta að við yrðum að fá einhvern til að styðja við borðið, þá hlógu allir. Þannig endaði þessi draumur. Með fyrirfram þökk. H.S.H.D.l. Farðu varlega i að treysta þeim, sem þú þekkir ekki nema að takmörkuðu leyti. Þú gætir átt á hættu að verða fyrir miklum vonbrigðum og að ein- hver notfæri sér hrekkleysi þitt. 1 draumnum er líka ábending til þín um að þér myndi happadrýgst að hugsa sjálfstæðar og láta ekki leiðast af skoð- unum hópsins í flestum málum. H ^H drejmdi Blóð úr augum systurinnar Kæri draumráðandi! Mig langar til að biðja þig um að ráða fyrir mig draum sem var svona: Mér fannst ég vera á balli einhvers staðar og ég var að labba um húsið og tala við fólkið. Allt í einu þusti allt fólkið út og fór það allt á bakvið hús- ið. Eg elti af forvitni til að gá hvað væri að ske. Þegar ég er komin bak- við sé ég hvar tvær manneskjur liggja. Eg fer að skoða aðra þeirra og sé að þetta er systir mín, en ekki sá ég hver hin var. Allt í einu er mér litið upp að húsinu og sé að ein stór rúða er brotin, um leið og ég horfi upp heyri ég að all- ir eru að tala um að systir mín sé háls- brotin. Ég fer að skoða hana betur og sé að blóð rennur úr augum hennar eins og tár. Mér finnst húsið standa við sjó en þar sem steipurnar lágu (mér fannst hin vera stelpa) var steypt plan. Eg vaknaði við öskrin í sjálfri mér er égsásysturmína. Ég vona að þú getir ráðið þennan draum fyrir mig því að mér mun líða illa á meðan ég veit ekki merkingu hans. K.K. Það er langlíklegast að þetta eigi sér enga tengingu í raunveruleikanum, þú hafir einungis borðað of mikið fyrir svefninn og fengið martröð. Þó gæti þetta verið fyrirboði einhverra óhappa, sem systir þín verður fyrir, en þó er það ósennilegri skýring en sú fyrri. Það er ágæt regla að borða sem minnsta og auðmeltasta fæðu fyrir svefninn. Tunglið dansaði yfír sjóndeildarhringnum Kæri draumráðandi! Fyrir nokkru dreymdi migdraum, sem var svo ákveðinn og skýr að mér þætti vœnt um að fá hann ráðinn, ef þú getur. Það er ef til vill betra að taka það fram að ég vaknaði um miðja nótt og skrifaði hálfsofandi niður drauminn. Samkennari minn og ég fórum upp í skóla, þó ekki þann, sem við kennum við. Samkennarinn heitir... Er að skólanum kom var eitthvað af fólki þar fyrir utan, sem hvarf fljótlega. ... settist fyrir utan en ég gekk inn um glugga. Það var erflðleikalaust og eðli- legtfannst mér að ganga þar inn. Er inn var komið fannst mér ég verða vör við titring eða einhverja hreyfmgu. Þá j gekk ég að glugganum og horfði út. Sá ég hvar tunglið eins og dansaði yflr sjóndeildarhringnum. Það var fullt. Þá komu tveir fuglar úr gagn- stæðum áttum ogflugu hvor á móti öðrum. Þeir voru mjög stórir og nokkuð dökkir. Síðan kom geimskip eða eitthvað í líkingu við gamalt loft- far. Himinninn breyttist og litfallegar skýjamyndir komu í Ijós. Þær voru líkar Maríutásum, fjólubláar og græn- ar. Öllu þessu fylgdu Ijós og einhver hljóð. Þá komu fuglarnir aftur í Ijós og annar þeirra flaug að glugganum, sem ég stóð við. Mér varð hugsað heim, fannst ég þurfa að fara þangað, heims- endir væri í nánd og börnin gætu orðið hrædd. Með fyrirfram þökk, Elísabet. Það ber allt að sama brunni i þessum draumi, einhver mjög skyndileg um- skipti verða á högum fjölskyldu þinnar og í fyrstu áttu erfitt með að átta þig á breytingunni. Breyting þessi verður á margan hátt mjög söguleg og að flestu leyti mjög til góðs fyrir alla aðila. Ein- hver skyndileg upphefð og velgengni er þarna undirrót alls og ef til vill mun. þarna vera um að ræða hluti, sem ykkur hjónin hefur ekki einu sinni dreymt um að gætu gerst. Gættu þín samt á að flas er ekki til fagnaðar og allri velgengni fylgir eitthvað neikvætt, svo sem öfund annarra og fleira í þá áttina. Atburðir þessir þurfa ekki að gerast alveg nú á næstunni, því allir draumar af þessari tegund eiga við langan tíma. Þó mun breytingin verða mjög skyndi- leg þegar þar að kemur. 33. tbl. Vikan 27
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.