Vikan


Vikan - 27.09.1979, Síða 26

Vikan - 27.09.1979, Síða 26
levndardómar gamlu klaustursins um með húsgögn og annað sem heyrði leiksýningunni til. Frú Buller-Hunter var þarna og hár hennar var óvenjulega glæsilega greitt. Hún hallaði höfðinu um leið og hún skoðaði leiktjöld Vaughans. „Þetta er auðsjáanlega Bath þrátt fyrir innskotin þín,”sagði hún hrifin. Vaughan hló. „Uss, frú Buller-Hunt- er, ekki koma upp um mig!” Fólkið úr leikflokknum gekk fram og til baka, hrópandi hvert á annað og OirMPUS i , l>áö þarf ekki lengur kunnátfumann til þess ^ gö taka fallegar fjöiskyldumyndir. Tækn- ínni hefur fleygt fram og með lítilli eða stórri Oiympus myndavél er nánast barna- leikur að fá allar myndir skýrtir og vel heppnaðar. Og jOlympMSdnyndavélin er ódýrari en þjg grunar.' Fyrir aðeins 31.500- kr. má fá & fyrsta flokks myndavél með innbyggðum ljósmæll og 35 mm filmu. Ferðamyndimar í ár munu ekki bregðast ef fjölskyldan fær sérOlympus. usturstrœU 6 flI(/ yMw*al FÉLAG ÍSLENZKRA HLJQMLISTARMANNA útvegar yður hljóðfœraleikara og hljómsveitir við hverskonar takifæri Vinsamlegast hringið í 20255 milli kl.14-17 spyrjandi um hitt og þetta. Clive var líf- legri en nokkru sinni fyrr, gekk á milli leikaranna og rabbaði við þá. Búið var að flytja langt borð úr stað, samkvæmt skipunum frú Buller-Hunter, þegar frú Hodges kom inn. Þegar hún sá breytinguna lýsti andlit hennar megnri vanþóknun. Ég skildi tilfinningar henn- ar því að ekkert sem hún gerði virtist vera nógu gott fyrir frú Buller-Hunter, hún var ákveðin i að sýna vald sitt og beita þvi. £g flýtti mér út í hinn enda salarins þar sem andrúmsloftið var betra. En hve ég öfundaði leikarana af þeim góða félagsanda sem virtist ríkja á milli þeirra. Ef ég hefði aðeins getað verið ein þeirra, hamingjusöm, áhyggju- laus, ung stúlka, i stað þess að búa í þessu húsi veikinda og ótta þar sem eina kvenveran fyrir utan mig var kona sem mér líkaði ekki allt of vel við og maður- inn sem ég elskaði sá mig ekki. Maður sem vardæmdur til einmanaleika. Um áttaleytið var allt komið á sinn stað. Allir stólarnir í salnum voru upp- teknir og einnig sófarnir en þeir voru fyrir þá sem vildu geta fylgst með því sem fram fór á sviðinu á þægilegan hátt. Aftast, alveg inni við vegginn, sátu svo hjúin á eldhússtólum, í löngum svart- hvítum röðum. Ég leit i kringum mig eftir Simoni en án árangurs. Vaughan sat á stól við hlið- arvegg salarins og tómur stóllinn við hliðina á honum beið eftir Clive sem hafði horfið á bak við tjöldin. Ég hafði fundið mér sæti við endann á einni röð- inni svo að ég gæti laumast i burtu óséð ef ég vildi þegar frú Buller-Hunter kom til mín. „Della min, við munum sitja i sófan- um,” sagði hún og klappaði á öxlina á mér. „Þakka þér fyrir en ég vil heldur sitja hérna,” svaraði ég kurteislega. Hún lét sem hún heyrði ekki svar mitt. „Komdu nú, flýttu þér áður en tjöldin verða dregin frá,” skipaði hún. Og ég varð að elta hana nauðug viljug. Leikritið var skemmtilegt og ég naut þess að horfa á það. Skamma stund gat ég gleymt umhverfi minu og lifi og hleg- ið með frú Malaprop sem var leikin jafn-i vel og Clive hafði sagt. Þegar sýningunni var lokið og gestirn- ir famir byrjuðu leikararnir að klæða sig úr búningunum og fjarlægja farðann. Ég þvældist þarna um því ég kveið fyrir að fara til herbergis mins. Loksins gat ég ekki fundið neina af- sökun til að vera þarna lengur. Ég var einmitt að ganga út úr salnum þegar ég sá eina leikkonuna úr leikflokknum nálgast Clive. Rödd hennar, sem var hljómfögur og skýr, náði alla leið til mín. „Getur verið að ég hafi gleymt bún- ingi hér, þegar við sýndum hjá ykkur i júni? Þetta var nunnubúningur.” Ég stóð hreyfingarlaus. Sú staðreynd að Clive þvertók fyrir að hafa séð bún- inginn skipti engu máli. Nú var ég viss 26 Vlkan 39- tbl,

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.