Vikan


Vikan - 27.09.1979, Page 27

Vikan - 27.09.1979, Page 27
um að einhver hafði fundið búninginn og notaði hann til aðdulbúast. Mér létti ósegjanlega. Mannverur, þó illar væru, treysti ég mér til að takast á við. En afturgöngur, andar frá annarri veröld, voru mér öllu ógeðfelldari. Ég hljóp næstum því upp tröppurnar og flýtti mér inn I svefnherbergið. Rose var einmitt að hita rúmið og ræddi glað- lega um Ieikritið um leið. Ég gladdist ósegjanlega vegna þess að hafa ekki minnst á miðilsfundinn við James frænda, það hefði getað leitt af sér óþarfa vandræði. Rétt eftir að hún var farin var bankað gætilega á dyrnar hjá mér og frú Buller- Hunter kom inn með bakka sem á var laudanumtafla og heit mjólk. „Cunningham lávarður, jafnhugul- samur og hann er, hefur látið senda þér þetta svo að þú getir sofið. Ég varð mjög leið að heyra að þú hefðir óhlýðnast honum. Þú ert of þrjósk, Della, þú hlýtur að vita að frændi þinn veit hvað þér er fyrir bestu. Láttu mig nú sjá þig taka þessa inn.” Hún hló glaðlega. „Við vorum þrjú niðri til að sækja lyf fyrir skjólstæðinga okkar, Denning hjúkrun- arkona, Manning og ég.” Ég tók við töflunni með hendinni. Eg hafði alls ekki hugsað mér að vera með- vitundarlaus alla nóttina, nú þegar ég þurfti að rannsaka svo mikið. Ég vissi að það var til einskis að reyna að fá hana á mitt band. Gat ég blekkt hana? Ég lagði höndina að munninum og lagði töfluna undir tunguna í stað þess að gleypa hana. Siðan tók ég dálitinn sopa af mjólkinni og lét sem ég kyngdi pillunni um leið. „Ég verð að láta afganginn af mjólk- inni kólna," sagði ég kæruleysislega. „Ég brenndi mig á tungunni." Mér til mikillar armæðu settist hún við hliðina á mér og virtist reiðubúin til að bíða. Um leið sagði hún mér álit sitt á leikritinu. Taflan, sem enn lá undir tung- unni á mér, varð til þess að ég gat lítið sagt. Ég tók einn lítinn sopa af mjóikinni í viðbót. Að lokum bauð frú Buller-Hunter góða nótt, hún hefur áreiðanlega haft í huga kvöldsnyrtinguna sem hún varð að framkvæma áður en hún gat lagt sig. „Ég sé að þú ert að verða syfjuð, Della. Mundu að drekka mjólkina þína áður en þú sofnar.” Ég fullvissaði hana um að það myndi ég gera og að því loknu fór hún. Hún var varla búin að loka dyrunum á eftir sér er ég spýtti út úr mér töflunni sem var byrj- uð að leysast upp. Ég fékk mér mjólkur- sopa til að losna við bragðið. En það varð jafnvel enn verra við það, ég gat ekki drukkið hana svo að ég hellti henni út um gluggann og kastaði töflunni út á eftir. Síðan fór ég í rúmið og hafði varla lagt höfuðið á koddann en ég var sofnuð. Þannig fór nú með vonir mínar um að koma upp um árásarmanninn. Þegar ég vaknaði var kominn dagur. Samt var ég með höfuðverk og augnlokin voru blý- þung. Ég hringdi á Rose til að fá teið mitt. Munnurinn á mér var svo þurr að tungan festist við góminn, ég reyndi að hella vatni í glas til að laga þetta. Um leið og ég gerði það sá ég nokkuð sem varð til þess að vatnið helltist út fyrir glasið. Á borðinu við hliðina á mér var glas sem ekki hafði verið þar þegar ég fór að sofa. Tómt glas sem, eftir miðanum á því að dæma, hafði innihaldið laudan- umtöflur. Einhver hlaut að hafa komið inn i her- bergið mitt meðan ég svaf og komið þessu fyrir þarna svo að það liti út sem ég hefði tekið of mikið af þeim. Þess vegna hafði bragðið af mjólkinni verið svona rammt. Ein tafla í sjálfu sér hefði ekki gert neinn skaða en hún var ekki skaðlaus þegar hún var tekin inn með mjólkinni, sem upp í höfðu verið leystar fleiri töflur. Framhald í næsta blaöi. Allt til skólans *s^ss^3p|B|jNi jp vJHL m , V'-'' - / V1h j> /■■ • *. ■' Nár nsbækurnar m Q. tð' 'Q’- WSEl * - rflHtaiv. Ritföngin .i-y Þú þarfft ekki að leita víðar EYMUNDSSON Austurstræti 18 Sími 13135 39’ tbl. Vikan 27

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.