Vikan


Vikan - 25.10.1979, Blaðsíða 34

Vikan - 25.10.1979, Blaðsíða 34
STJÖRNUSPA llnilurinn 2l.m;irs 20.;«|iríl Það er vafasöm lausn að sökkva sér niður i vinnu þegar vandamálin heima fyrir virðast óleysanleg. Hertu upp hugann og reyndu að finna raunhæfa lausn á vandanunt. Kr.'hliinn 22. júni J.V jnlí Þegar eitt verkefni leysist tekur annað við og þér tekst ekki að sjá frant ur annrikinu. Þú þarft á hvild að halda og það er óþarfi að skipuleggja hverja einustu fristund til hlitar. N.iulið 2l.;ipríl 21.ni;ií Þig vantarskjót svör viðspurningum sem á þig leita og gefa þér engin grið. Þetta er ekki eins tlókið og virðist i fyrstunni og svörin er að finna þar sem sist skyldi. Tiíburarnir 22.mai 2l. juni Taktu bæði gagnrýni og tilsögn með þakklæti. því slíkt kentur þér að áþreifanlcgu gagni. Það veitir litla ánægju að slá slöku við og slikt kemst enginn upp með til lengdar. \oi>in 24.\f|>(. 2.Vokl. Gættu þess að láta ekki gcðvonsku þina bitna á þinum nánustu. Þér ber að taka fyllsta tillit til fólks sem vill þér vel og notfæra þér ekki góð- lyndi og velvilja annarra. I. jónii4 24. júlí 24. tiiiúM Misstu ekki ntóðinn þótt eitthvað bjáli á. því þú hefur i fullu tré við vandann og þarft með sama áfranthaldi alls ekki að bera neinn kvið- boga fyrir framtiðinni. >lc>j;in 24.;iöúsl 2Vscpt. Einhverjir atburðir verða þess valdandi að nú er annaðhvort að hrökkva eða stökkva. Ef þú hefur nægilegt hugrekki ættirðu að geta staðið þig ntiklu betur. 4 "'m Sporúdrckinn 24.okl. IÍ.4.iió\. Haltu fast við skoðanir þinar og láttu ekki vafa- samar röksentuir hafa áhrif á þig. Það á ekkert skylt við einsýni og ekki nokkur ástæða til að ætla að þú standir ckki á þinu. Koiímaúurinn 24.nót. 21.dcv. Láttu þér ekki sárna unt of þótt einhver misskilji þig og það er ekki alveg vist að þú sýnir þeint sama alltaf tillitssemi og skiljir hans sjónarmið og langanir i lifinu. Stcingcilin 22.dcs. 20. jan. Þér veitist mikil aðstoð við að hrinda áællununr þinum i framkvæntd. Gættu þess þó að missa ekki öll tök á atburða- rásinni, þvi þin er ábyrgðin þcgar allt kem- ur til alls. Nalnshcrion 2l.jan. Id.fchr. Nú gefst fágætt tækifæri til að bæta við þekkingu þina og reyna nýjar leiðir. Láttu þetta ekki ganga þér úr greipum, þvi slíkt býðst þér ekki á hverjum degi Fiskarnir20.fcbr. 20.mars Erfiðleikarnir virðast miklu meiri úr fjarlægð heldur en þegar á hólminn er kontið. Horfstu í augu við staðreyndimar og ráð- færðu þig við nánustu ættingja og vini. Bridget O’Killanye var komin á fertugsaldurinn, eilítið bústin og ekkert sérlega falleg, en samsvaraði sér vel og rauða hárið hennar var jafnfallegt og það getur fallegast orðið á írskum konum, rautt eins og feldur refsins um varptímann. Bridget O’Killanye átti sér aðeins eina ósk, og sú var að eignast eiginmann, heimili og börn. En slíka ósk er ekki svo auðvelt að fá uppfyllta í landi þar sem karlmennirnir eru svo sljóir og innviðalitlir að þeir kjósa frekar að fá sér ölglas á kránni hjá Sean O'Connor á almenningsbarnum Ye Olde Cock heldur en veita rauð- hærðum þurfandi konum athygli, og í sannleika sagt virðast þeir aldrei geta gleymt því að kartöfluuppskeran 1845 brást. Bridget O’Killanye bjó í íburðarsnauðu raðhúsi sem stóð við Kettlewell Lane, bak við Bartholomekirkjuna í vestur Dublin. Hún hafði gert flest sem hægt var í því augnamiði að verða sér úti um eiginmann, en það er ekki svo auðvelt þegar ekki er hægt að orða smá- auglýsingarnar í Irish Independ- ent á þá leið að „ung, lífsglöð, gáfuð, fráskilin kona á besta aldri með töluverð fjárráð óski eftir. . . ” heldur verður að láta nægja orðalagið „einmana kona”. Punktur! Árin liðu og Bridget O’Killanye var orðin örvæntingarfull. En það er að sjálfsögðu í hæsta máta óréttlátt að sumar konur geti eignast 8-10 eiginmenn á tíu ára fresti á meðan aðrar fá engan, og því verðum við að skilja það að Bridget var í fullum rétti þegar hún í örvæntingu sinni greip til þess ráðs að fara í hungur- verkfall til að mótmæla þessu óréttlæti sem var hvort eð er að fara með hana í gröfina. Hún lét sér ekki nægja að setjast niður í stól, krossleggja handleggina og lýsa því skorinort yfir að héðan i frá léti hún ekki matarbita ofan í sig. Onei. Hún var sjálfri sér lík, hún Bridget O’Killanye, þessi rauðhærða írska stúlka. Hungurverkfallið var þaul- hugsað bragð, liður í baráttu hennar fyrir eiginmanni. Því var það að hún lét Liam Maquire, glerskerann frá Fairlawn Road. útbúa handa sér sérgerða gler- kistu og þegar hún var tilbúin fór Bridget í sitt fínasta púss, tók með sér púða og lagðist síðan mjög snyrtilega ofan í kistuna sem komið hafði verið fyrir í blómskreyttum garði hennar við Kettlewell Lane. Til þess að ekki færi fram hjá neinum að hér var alvara á ferðum lét hún Liam Maquire innsigla lok kistunnar — og þarna lá hún. Það leið heldur ekki á löngu þar til lesa mátti eftirfarandi í Irish Independent: Bridget O’Killanye, Kettlewall Lane 33, Dublin, sem nýverið hóf hungurverkfall í réttlátri reiði og til þess að mótmæla því að enn hefur henni ekki tekist að verða 34 Vikan 43. tbl.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.