Vikan - 25.10.1979, Blaðsíða 14
Hér sést ofan af Parnassos-hömr-
um yfir Delfi. Leikvangurinn er efst
til hægri, þar fyrir neðan leikhúsið
og hof Apollons. HúsiA á miðri mynd
er fornminjasafnið. Þar fyrir ofan
sést hótelbærinn, þaðan sem útsýn-
ið er frábært 700 metra niður i heil-
agan olifulundinn, sem nær allt fram
til sjávar.
forna. heilaga svæði nieð rústuni hofsins
Hereion. Seifshofs. ijirótlavallar. gisti
húss og æfingahalla. Þar getur |iú
runnið 192 metra skeið á hinuni eina
sanna ólympiuvelli, að visu ekki
allsnakinn, svo setn tiðkaðist að fornu.
I>egar við hjónin fórum þessa fjögurra
daga ferð. var gist á hótelinu Xenia
Palace i Napflion. hótelunum Spap og
Antalia í Ólympiu og á fyrrnefndum
hótelum. Antalia og Xenia I Delfí.
Xenia Palace er flokkað sent lúxus
hótel. Það er einstaklega vel hannað
hótel. hyggt inn i gamla virkisveggi á
Greinarhöfundur varð nokkuð fót-
sár af því að hlaupa berfættur á
hinum eina sanna ólympiuvelli i
Ólympíu.
hæð yfir bænum og höfninni. Þarna
væri stórkostlegt að vera. ef stjórn og
þjónusta hótelsins væri ekki öll i handa-
skolunt. Sérpantað kostar tveggja
manna herbergið um 15.000 krónur og
unt 18.000 krónur nteð hálfu fæði.
Herbergin voru 54. en hótelið hefur nú
veriðstækkað.
Antalia og Spap í Ólympiu kosta unt
10.000 krónur tveggja ntanna herhergið
og um 15.000 krónur með hálfu fæði.
Amalia er nýtt og glæsilegt 147
herbergja hótel. en Spap er eldra og
minna. 50 herbergja hólel. Mér leist
betur á Spap. einkum vcgna |x;ss að það
er næst rústunum og hefur útsýni til
þeirra.
Við höfðum frábæra leiðsögukonu í
þessari ferð. Hún talaði ekki allan
timann. heldur gaf ferðalöngunum
góðar hvildir á milli. Hún sagði engar
lygisögur. heldur héll sér við fornleifa
fræðilegar og sagnfræðilegar
staðreyndir.
Enda var lika óþarfi að útntála þaö.
sem fyrir augu bar. Hin stórhrotna
náttúra. hinar mikilfenglegu rústir. hið
samræmda seiðmagn talaði sjálft. Af
þessari ferð hefði ég ekki viljað rnissa.
Ég hefði bara viljað fara hægar og
dveljast lengur á hverjum stað. Einkum í
Delfi. hápunkti og endapunkti þessarar
ferðar um upphaf vestrænnar
menningar. Næst fæ ég mér bilaleigubíl
og verð minnst viku á leiðinni.
Jónas Kristjánsson
14 Vikan 43. tbl.