Vikan - 25.10.1979, Blaðsíða 40
VON
VIKAN OG
NEYTENDA-
SAMTÖKIN
Sitthvað
um
hljóð-
einangrun
Þaö má einangra aö nokkru gegn
hávaða, og það á alleinfaldan og ódýran
máta. Handlagið fólk mun eiga létt með
úrbætur á sínu heimili, sé þeirra á
annað borð þörf. Einfaldast, og yfirleitt
best, er að nota gips-, spóna- eða
masónítplötur, sem festar eru á grind yfir
einangrunarefnið, sem kemur í
holrúmið.
Gamlar íbúðir eru yfirleitt heldur illa
einangraðar og þar kann þörf fyrir
viðbótareinangrun að vera knýjandi.
Síðustu ár hefur þörfin fyrir einangrun
gegn umhverfishávaða aukist og ber þá
að hyggja að úrbótum á útveggjum og
gluggum.
Það er ekkert sem mælir gegn því, að
við ráðumst sjálf í verkið/ en þó er
ráðlegast að hafa samband við
byggingarfulltrúa á hverjum stað og
kynna sér samþykktir um brunavarnir.
Einnig krefst þaðsamþykkis byggingar-
yfirvalda, ef breyta á útliti húsa utan
frá séð, s.s. skipta um glugga o.fl.
40 Vikan 43- tbl.