Vikan - 07.08.1980, Blaðsíða 7
I
SAFN FLUTT
— Hrafn, þú settir fyrir
nokkrum árum fram hugmynd
um að flytja hús Byggðasafns
Reykjavíkur í Árbæjarhverfi
niður í Hljómskálagarð. Meint-
irðu eitthvað með þessari uppá-
stungu?
— Ég skrifaði í Helgarpóstinn
fyrir tveim árum hugleiðingu
um að flytja Árbæjarhúsin í
Hljómskálagarðinn. Hugmynd-
in er ekki úr lausu lofti gripin,
hún er afleiðing mikilla
umræðna á þeim tíma um
gömul hús í Reykjavík.
Mér hefur alltaf fundist
Reykjavíkurborg berangursleg
og miðbærinn allt að því fjand-
samlegur mannlegum sam-
skiptum. Menn voru á þessum
tíma að velta því fyrir sér hvað
hægt væri að gera til að lífga
miðbæinn við. Eitt af því sem
kveikti þessa hugmynd var að
þvi ágæta kaffihúsi Tröð í
Austurstræti var lokað um þetta
leyti, og miðbærinn virtist vera
að gefa upp öndina.
Ég held að það hafi verið
Pétur Gunnarsson rithöfundur,
sem þá sló fram þeirri hugmynd,
á sinn hátt, að borgarstjórn réði
2000 fótgangendur til að vera á
ferli í miðbænum.
Menn töldu það gustukaverk
að bjarga gömlu húsunum með
því að flytja þau í Árbæinn. Og
út af fyrir sig álít ég það
virðingarvert að flytja gömul
hús burt, fremur en að rífa þau.
Það má líkja því við að koma
góðu málverki fyrir í geymslu.
Af ýmsum ástæðum hefur
þurft að rífa þessi gömlu hús úr
sínu upphaflega umhverfi. En ég
tel ekki rétt að setja þau niður
bara einhvers staðar. Ég vil að
þau hafi notagildi og sem flestir
geti notið þeirra. Til hvers að
geyma falleg málverk endalaust
inni í geymslu?
— Hvað hugmyndir hefurðu
um nýtingu Arbœjarhúsanna í
Hljómskálagarðinum?
— Ég vil beina skemmtana-
lífinu í miðbæinn, meðal annars
með þvi að flytja gömul hús í
Hljómskálagarðinn. Búa til
skemmtanahverfi, — þetta
myndi auðvelda löggæslu og
svefnfriður yrði betri í
úthverfum borgarinnar.
Margir tóku þessari
uppástungu minni sem gríni, eða
svöruðu því til að í garðinum
væri ekkert pláss, og engin hús
til að flytja.
1 Hljómskálagarðinum er
aldrei neinn. Garðurinn er núna
einna líkastur hallargarði enskra
greifa frá nítjándu öld, til að
skjóta héra í eða elta refi.
Hljómskálagarðurinn hefur
aðeins notagildi þá örfáu sólar-
daga sem dynja á okkur, það er
hægt að nýta svæðið mikið
betur.
Erlendis eru skemmtistaðir
of.t^st nget ^aman í hverfi, en því
er ekki að fagna hérlendis'.
Dreifing skemmtistaða um alla
borgina, virðist gerð með það
fyrir augum að skapa leigu-
bílstjórum atvinnu.
Allir vita að einn dýrasti liður-
inn við ferðir á skemmtistaði er
leigubílakostnaðurinn. Að mað-
ur tali nú ekki um allt
kvefið og hálsbólguna sem menn
safna í sig i vetrarfrostunum,
reikandi um í norðanbálinu í leit
að leigubíl.
Ég get vel hugsað mér að í
Hljómskálagarðinum verði
komið upp einskonar vísi að
Tívolí eins og það er í
Kaupmannahöfn, þótt ekki ætti
bara að apa það eftir. En það
þyrfti að skapa rétt andrúmsloft
i kringum þessi hús, gefa þeim
gildi með líflegu umhverfi.
— Viltu setja þessa hugmynd
um flutning Árbæjarhúsanna í
stærra samhengi?
— Já, ég hugsa mér að fleiri
gömul hús yrðu sett niður á gras-
balanum fyrir neðan Bernhöfts-
torfuna. Síðan ætti byggingar-
línan að halda sér út Frikirkju-
veginn, yfir Hljómskálagarðinn
og jafnvel alla leið út að
Norræna húsi.
Reykjavíkurborg á húsið í
Hallargarðinum að Frikirkju-
vegi 11, og ég vil láta nota það
fyrir ráðhús Reykjavíkurborgar.
Enginn veit hvað gera skal við
gamla Miðbæjarskólann við Frí-
kirkjuveg, en þar mundi ég vilja
koma fyrir stjórnarskrifstofum
Reykjavíkurborgar.
Nú hefur svæðið umhverfis
Alþingishúsið verið skipulagt í
þá veru, að starfsemi Alþingis
verður komið fyrir í húsunum
umhverfis Alþingishúsið, en það
sjálft verður notað sem fundar-
salur. Á sama hátt vil ég láta
nota Fríkirkjuveg 11 fyrir
fundarsali, en koma starfsemi
borgarstjórnar fyrir í næstu
húsum.
Félagsleg þjónusta við
táningá i RfeýkjáVfk*^^"' í
lágmarki, það vita flestir.
Auðvitað er alls ekki auðvelt að
annast félagslega þjónustu við
unglinga, en einhver verður að
ríða á vaðið. Slík þjónusta af
ýmsu tagi, gæti orðið hluti af
endurlífgun miðbæjarins, eins
og ég hef minnst á. Það er til nóg
af húsnæði, ég nefni sem dæmi
gamla Iðnskólahúsið við Tjörn-
ina. Og svo náttúrlega húsin sem
flutt yrðu í Hljómskálagarðinn.
32. tbl. Vikan7