Vikan - 07.08.1980, Side 11
Erlent
Anthony A. Plantou komst á spjöld
sögunnar þegar hann fyrstur manna
kynnti falskar tennur í Bandaríkjunum
1817.
Þrátt fyrir tiikomu falskra tanna
héldu alvöru tennur gildi sínu og voru
meira en samkeppnisfærar ef á annað
borð náðist i þær. Þannig voru tennur úr
föllnum hermönnum. sem börðust við
Waterloo 1815, eftirsóttar og hétu ein-
faldlega Waterlootennur. Einnig voru
tennur ur fórnarlömbum þrælastríðsins í
Bandaríkjunum fluttar með skipum yfir
til Englands þar sem markaður var
góðurogverðágætt.
Ýmsar tilraunir voru gerðar i því
skyni að búa til betri og fullkomnari
tennur en áður þekktust. Til er skjalfest
dæmi um mann sem brann til bana
vegna þess að tennurnar hans nýju voru
svo eldfimar. Fuðruðu þær upp þegar
maðurinn kveikti sér i vindlingi. Einnig
lagði tyggigúmmiverksmiðja út i fram-
leiðslu gervitanna sem höfðu það fram
yfir aðrar tegundir að við þær festist
ekki tyggjó. en það hafði viljað brenna
við um aðrar gerðir.
Margir hafa þvi lagt hér hönd á plóg-
inn eins og sjá má og enn eru nýir að
bætast við. Þrátt fyrir allt sér enn ekki
fyrir endann á tannraunum mannkyns
og tilraunir enn i gangi. Það nýjasta eru
tannréttingaspangir sem unglingar eru
látnir ganga með. likjast einna helst
hluta af geimferðahjálmi og eru svo
fyrirferðarmiklar að krakkagreyin
komast ekki inn í strætisvagn nema nota
afturdyrnar eins og konur með barna
vagna. E.J.
Þau Eileen Getty, 20 ára, og
Christopher Wilding, 25 ára, hafa
opinberað trúlofun sína og tilvonandi
tengdamamma Ijómaraf hamingju.
Skilurðu nú hvað ég átti við?
Hefurðu nokkuð imprað á þvi við
þennan unga mann hvað hann ætlist
fyrir með dóttur okkar?
ENGAR
FJÁRHAGSÁHYGGJ U R
Liz Taylor Ijómaði af hamingju.
Hún skildi eiginmanninn eftir i
Washington og tók næstu flugvél til
Los Angeles til að taka þar þátt í
trúlofunarveislu sonar síns.
Christophers Wilding. Og hún hafði
svo sannarlega ástæðu til að vera
hamingjusöm því það var enginn
fátæklingur sem sonurinn hafði krækt
sér í. Hin tilvonandi brúður hans er
Eileen Getty, barnabarn olíumilljóna-
mæringsins Jean Paul Gettys.
Christopher hefur ekki alltaf verið
móður sinni til ánægju. Hún sá fyrir
honum árum saman, þar sem hann
hafði andstyggð á fastri vinnu. eða
þangað til hann kynntist Eileen Getty
sem hefur nú fengið hann til að læra
Ijósmyndun.
Liz vonar að hjónaband hans verði
endingarbetra en hjónaband eldra
bróðurins.Michaels, sem fór I vaskinn
eftir tuttugu mánuði.
En þeim Christopher og Eileen
liggur ekkert á að hugsa um slika hluti
því þau geta ekki gift sig fyrr en eftir
þrjú ár. Afi gamli setti nefnilega það
skilyrði í erfðaskrá sína að Eileen mætti
ekki gifta sig fyrr en hún væri orðin 23
ára. ella missti hún af arfinum. Og þar
sem um er að ræða 200 milljónir á ári er
biðin vel þess virði.
Christopher átti það til að krækja sér i
smápeninga sem öskukall.
HLAUPÁRS-
BARN
Inn f glæsilegt fjölbýlishús i Paris var
borin stór afmælisterta með 15
kertum. Einkennisklæddur þjónn kom
með 15 rauðar rósir. Og þegar einn af
gestunum kom loks með stóran pakka
skreyttan tölunni 15 úr silfri gat dyra-
vörðurinn ekki lengur orða bundist og
spurði:
— Afsakið. herra minn. En hver á
afmæli? Ég veit ekki til þess að
nokkurt barn búi hér í húsinu.
Gesturinn hló og svaraði: — Það er
Michéle Morgan sem heldur upp á
afmæliðsitt.
Dyravörðurinn var steinhissa þvi
hann vissi að þessi vinsæla, franska
leikkona var jafnvel miklu eldri en
utlit hennar ber vitni um. En svo fékk
hann lausnina á gátunni: Michéle varð
sextug þennan dag sem var aftur á
móti 29. febrúar. Þess vegna gat hún
með réttu haldið upp á 15 ára
afmælið. Hún skemmti sér
konunglega yfir þessu uppátæki vina
sinna og sagði: — Það er ekkert sem
tryggir æskublómann jafnlengi og
vera fæddur á hlaupársdag.
32. tbl. Vikanll