Vikan - 07.08.1980, Blaðsíða 24
Skógrækt
| ^ J jSS
' Int f. ' L ••
Fljótshlíðarhreppur hefur sýnt það
óvenjulega framtak að hefja skógrækt á
10 hekturum lands við Tunguháls, og
svo mætti lengi telja. Það er mikill
hugur í mönnum nú á ári trésins, og
vonandi að sá áhugi endist fram yfir ára-
mót, helst fram yfir aldamót og þá
hvaða aldamót sem er. ef vel á að vera.
Á Tumastöðum sáu blaðamaður og
Ijósmyndari. sem gerðu þar reyndar allt
of stuttan stans, m.a. alíslensk grenitré í
löngum röðum. Þau eru allt frá árinu
1958. Þessi tré eru af islensku fræi.
sprottin úr íslenskum jarðvegi, eins og
okkar margrómaða íslenska menning, og
við ættum eiginlega að vera stolt af
þessum ágæta árangri.
Að baki bæjarnafninu Tumastaðir,
sem hægt er að lesa á skilti ef ekið er um
Fljótshlíðina, er því æði margt. Þar eru
margar vinnufúsar hendur, hendur sem
annast um upprennandi skóga okkar
suðvesturhyrninga, hendur sem oft
verða blautar og stundum kannski kald-
ar, ef svo vill til að eitthvert árið hausti.
Og að baki þessa nafns eru milljónir
einstaklinga sem reyndar kólnar kannski
ekki á höndum þó hausti en geta hins
vegar átt fullt í fangi með að fella ekki
barr þegar vetrarvindar næða.
Hér er verk að vinna og til þess er
fengið föngulegt lið.
Tilbúnar til brottferðar. Hvert skyldu
þessar fallegu greniplöntur vera að
fara?
Þvi betur sem að skógrækt er staðið
þeim mun meiri von er til að trjágróður-
inn „beri sitt barr" eftir harðan vetur,
bæði barrtré og lauftré. Sem betur fer
eru vetur sjaldnast svo harðir að illa fari,
það eru helst slæmir stormar og kulda-
kaflar sem fara illa með trjágróður. Starf
skógræktarfélaganna er einmitt mikil-
vægt vegna þess að þau félög notfæra
sér þann lærdóm sem fenginn er í skóla
reynslunnar, þeirra hlutverk er að velja
réttar plöntur á rétta staði, planta þeim,
hlífa þeim og hirða um þær. Ungu plönt-
urnar frá Tumastöðum fara víða og
eigum við ekki bara að óska þeim vel-
farnaðar og vona að gróður landsins fari
nú loks eftir eitt þúsund eitt hundrað og
sex ár að bera sitt barr, eftir landnám
mannkindarinnar sem er öllum kindum
varasamari.
aób.
24 Vikan 32. tbl.