Vikan - 07.08.1980, Qupperneq 30
Draumar
Kyssti mig
beint á
munninn
Kæri draumrádandi!
Ég hef aldrei skrifad þérfyrr
en nú langar mig til að fá
draum ráðinn sem mig
dreymdi, Hklegafyrir tæpum
mánuði. Hann er svona:
Mér þótti lœknir, sem er dá-
innfyrir nokkru, vera að kyssa
mig beint á munninn og það
rækilega. Ekki fannst mér ég
hafa neitt á móti kossi hans en
svaraöi honum ekki, var dálítið
feimin. Ekki fannst mér að
neinn væri nálægt okkur.
Draumurinn var ekki lengri.
Það er yfirleitt frekar slæmt að
dreyma lækni en þó er það
sjúkum ósjaldan fyrir bata.
Nafn læknisins merkir einmitt
sigursæld i draumi og undirstrik-
ar það jákvæðar hliðar tákn-
anna. Því geturðu búist við að
einhver vanheilsa sem þú hefur
átt við að stríða muni vera á
undanhaldi og ýmislegt annað
breytist einnig til betri vegar.
Trúlofun
og gifting
Kæri draumráðandi.
Eg ætla að biðja þig um aö
ráða þennan draum sem mig
dreymdi. Eg nota þrjá bókstafi
fyrir þrjár persónur, X, Z og
K.
Ég var upp við altari og ég
var að trúlofa mig í kirkju.
Strákurinn sem ég var að trú-
lofast er fræg fótboltastjarna
(eða X). Presturinn kom og við
héldum fyrst, ég og X, að gefa
ætti okkur saman í hjónaband.
í miðri athöfninni kom síðan
ráðherra og hann lagðist á
fjóra fætur og við áttum að
vera góð við hann. Við vorum
orðin undrandi og spurðum
prestinn hvers konar gifting
þetta væri? Hann sagðist hafa
haldið að þetta ætti að vera
trúlofun. Við höfðum aldrei
heyrt um trúlofun í kirkju. Ég
man að þaö varfátt í kirkj-
unni. Þegar við komum út úr
kirkjunnifannst mérX birtast
og svo allt í einu kom annar
strákur, sem ég veit hver er og
er hrifin af í alvöru, við
skulum kalla hann K, en aftur
á móti þekki ég X ekki, ég hef
bara séð myndir af honum í
tímaritum og sjónvarpi. Svo
var ég allt í einu komin upp i
félagsheimili (ég var í brúðar-
kjól). Þar varfullt affólki sem ég
hef aldrei séð (útlendingar). Þar
hitti ég vinkonu mína Z og
sagði við hana að ég væri að
fara að giftast K. Hún trúði
mér ekki og sagði að ég vœri of
ung. Síðan kom K til mín og
fór með mig til prestsins. Þar
giftumst við. Ég labbaði heim
og lenti í basli við nágranna
minn. Ég labbaði inn í bílskúr-
inn hans og hann hélt að ég
væri aö njósna um sig.
Hér kemur annar draumur:
Eg var að labba eftirgötu og
tveir skólabræður mínir á eftir
mér. Þeir hvísluðu hátt svo ég
gæti heyrt hvað þeir voru að
segja: Sjáðu, þarna er mamma
litla, og ,viy; fieira um þetta
málefni. Ég var ófrísk, komin á
steypirinn. Barnsfaðirinn er
strákurinn K i hinum draumn-
um. Ég fór upp á sjúkrahús og
lét hjúkrunarkonu athuga mig.
A llt í einu fékk ég hríðir og allt
í einu var ég búin að eiga barn-
ið. Það var sveinbarn. Svo
labbaöi ég út úr sjúkrahúsinu,
barnið var eftir. Síðan fór ég á
stefnumót við K ogþá vaknaði
ég, því miður. Með fyrirfram
þökkfyrir ráðninguna.
Draumadísin.
Báðir draumarnir taka um of
mið af hugsunum þínum í vöku
og því erfitt að greina á milli
raunverulegra tákna og þess sem
enga þýðingu hefur. Ýmislegt
bendir til að þú munir eiga láni
að fagna í vali þínu á maka síðar
á ævinni. Síðari draumurinn er í
raun undirstrikun þess fyrri og
að auki fyrirfinnst í honum
ýmislegt sem bendir til að þú
eigir á stundum erfitt með að
greina á milli draums og veru-
leika. Því skaltu fara varlega í
allar ákvarðanir sem geta haft
langtímaáhrif og gæta þess að
tengjast engum einum af gagn-
stæða kyninu til frambúðar á
næstu árum.
Staðhættir á
Sauðárkróki
Kæri draumráðandi.
Ég ætla nú loks að láta
verða af að senda þér draum
sem mig dreymdi fyrir 6 árum.
Hann hefur alla tíð vafist fyrir
mér og ég þykist fullviss að
hann tákni eitthvað sérstakt.
Mér fannst ég aka uppfjall.
Neðst í fjallinu var mjög kröpp
beygja, síðan ajlíðandi halli
upp til vinstri. Með mér í bíln-
um voru vinir mínir, þ.á m.
maðurinn minn núverandi. Við
vorum heldur kát og hress. Á
vinstri hönd rétt ofan við
beygjuna var stórt hvítt hús og
þar þótti mér einhver segja að
væri fjórðungssjúkrahúsiö á
Sauðárkróki. Við fórum inn í
húsið. Þar var heldur dimmt
miðað við birtuna úti og langir
gangar, en ekkert ógeðfellt. Þar
hitti ég reyndar konuna sem ég
leigði hjá. Hún var mikið veik
og sagðist hafa áhyggjur af því
að hún gæti ekki treyst tveim
mönnum sér nákomnum. Ekki
veit ég nöfn þeirra. Ég talaði
eitthvað við hana. Hún virtist
treysta mér vel en samt var
þetta heldur erfiður kafli í
draumnum. Við fórum aftur
út, og áfram upp fjallið, og mér
fannst allt í einu að það vœri
mjög árla morguns. Sólin virtist
vera að koma upp fyrir fjallið,
e.t.v.fjallaskarð. Himinninn var
mjög Ijósblár. mikil birta,
næstum ofbirta. Vegurinn lá
beint upp fjallið og við ókum
beint þangað upp. Lengri varð
draumurinn ekki. Hins vegar
varð þessi draumur til þess að
ég fór til Sauðárkróks sumarið
eftir (þetta dreymdi mig síðla
vetrar eða snemma vors). Þang-
að hafði ég aldrei komið. Stað-
hætti þekkti ég en ýmislegt
hafði breyst, þó eingöngu
mannvirki, t.d. var byggð ofan
við sjúkrahúsið sem ekki var í
draumnum. Sjúkrahúsið var á
sínum stað. auðvitað ekki
fjórðungssjúkrahús. Það var
hins vegar ekki hvítt lengur en
hafði verið það áður en hverflð
ofan við það var byggt, u.þ.b.
10 árum áður. Vegurinn lá
ekki áfram upp í fjall, eins og i
draumnum, en fjallið var alveg
eins og í draumnum og allt um-
hverfl. Við bevgjuna neðst
voru olíutunnur, sem ekki voru
í draumnum, og spilltu mjög
þessari fallegu beygju. En þetta
er sem sagt ekki hluti draums-
ins. Geturðu ráðið þetta fyrir
mig?
Þolinmóð.
Krappa beygjan í upphafi
draumsins táknar einhver snögg
umskipti í lífi þínu og jafnvel
allra sem í bílnum voru. Stóra
hvíta húsið táknar ýkkur ein-
hverja sameiginlega reynslu sem
reynist ekki jafnánægjuleg við
nánari kynni og hún virðist vera
í upphafi. Löngu gangarnir
tákna ýmsar leiðir ykkar í átt íil
þroska og myrkrið inni merkir
erfiðleika við að ná settu marki.
Þegar þessari sameiginlegu
reynslu ykkar lýkur birtir til og
hvert ykkar um sig fer að lifa
ánægjulegri atburði. Þið hefjið
nýtt líf og jafnframt má ætla að
eftir það verði lífsgangan mark-
vissari. Ekki mun þó samband
ykkar slitna alveg en breytast á
marga vegu eftir því sem árin
líða. Sennilega kemur það ykkur
á óvart hversu lítið gagn þið
höfðuðhvert um sig af reynsl-
unni sameiginlegu (ef til vill sam-
býli) en fátt í því sambandi er þó
skaðlegt og getur orðið skemmti-
iegt í minningunni.
Konan, sem þú hittir í
draumnum, undirstrikar ein-
göngu margt það sem reynist
ykkur þungt í vöfum og hún
gæti haft einhver afskipti af
ykkur á tímabili, bæði bein og
óbein. Endir draumsins spáir
góðu um framtíðina, líklega
hvað ykkur öll varðar en þó sér-
staklega dreymanda. Margt
bendir til að eitthvert langþráð
takmark náist en þó ekki erfið-
leikalaust.
30 Vikan 32. tbl.