Vikan - 11.12.1980, Page 12
Eftir Margit Sandemo — Teikningar eftir Kurt Ard.
6. hluti
Ellefu dagar i
Það var auðséð að einhver hafði í
miklum flýti rótað til í herberginu.
Það sem hafði verið í ferðatöskunni
lá á víð og dreif um herbergið og
allar skúffur stóðu galopnar.
til hans nokkru seinna stara tóm augu
hans í átt til dyranna. Enginn veit hver
dánarorsökin er!
Nœstu nótt vaknar Jennifer við
undarleg hljóð. Hún fer upp á aðra
hæð hótelsins og þar þrýstir einhver
bréfi inn í hönd hennar. Stuttu seinna
er ráðist á hana, en l myrkrinu sér hún
ekki hver er að verki.
9. KAFLl
Trína og Lovísa höfðu lagt á borð
fyrir framan arininn.
— Þetta er kannski dálítið frumstætt
sagði Trina sem kom inn með fat með
hrökkbrauði úr eldhúsinu. — En þetta
var það besta sem við gátum gert. Það er
gott að koma inn i hitann, það næðir
óþægilega i eldhúsinu.
Jarl Fretne kom inn og teygði úr
fingrunum. Ffann leit út fyrir að vera i
góðu skapi. — Mér finnst eins og ég sé
bæði sterkur og nytsamlegur, sagði hann
og brosti. — Það er gott að nota líkam-
ann. En hendurnar á mér eru allar
útataðar í viðarkvoðu úr kvistunum á
trjánum. Ef þið viljið hafa mig
afsakaðan...
Hann gekk i áttina að svefnher-
bergjunum. Trína og Jennifer litu hvor á
aðra, hissa yfir þessari óvæntu mælgi
hans. Ivar kom inn — hann virtist
ekkert sérlega ánægður af svipnum að
dæma.
— Ég reyndi að finna hvað er að
rafmagninu. Ég hef athugað leiðslurnar
hérna í grenndinni, en það hlýtur að
vera lengra í burtu, vegna.. .
Hann var truflaður af háværu ópi
Jarls Fretnes.
— Hvað er það nú? muldraði
Ríkarður og allir fylgdu honum i áttina
að svefnherbergjunum.
— Þú sem lögreglumaður verður að
taka þetta að þér, sagði Fretne gramur.
— Sjáið þið útganginn!
Það var auðséð að einhver hafði i
miklum flýti rótað til I herbergi
Fretnes. Þaðsem hafði verið í ferðatösk-
unni hans lá á við og dreif um herbergið
og allar skúffur stóðu galopnar. Það
hafði líka verið leitað í rúminu.
— Geturðu ímyndað þér hvers vegna
þetta hefur verið gert, Fretne? spurði
Ríkarður um leið og hann leit snöggt til
Jennifer. Hún kinkaði kolli. Þau
hugsuðu bæði þaðsama.
— Nei, það get ég ekki ímyndað mér,
sagði Fretne. — Það er ekkert
verðmætt hérna, bara persónulegir
hlutir sem maður hefur með sér í ferða-
lög.
— Ég held að þið hin ættuð að fara
og borða, sagði Ríkarður. — Við
Fretne komum fljótlega.
Jennifer hugsaði um hvernig þetta
hefði getað gerst á leiðinni í setustofuna.
Konurnar voru í eldhúsinu og hin...
Hún ætlaði að eftirláta Ríkarði
áhyggjurnar af þessu!
— Allt í lagi, sagði Rikarður. —
lnnbrotið var framið í miklum flýti. Það
getur verið að Ivar hafi gert það, það
getur hafa verið Jennifer og ég er líka
undir grun — annað hvort okkar hefði
getað gert það áður en við hittumst i
stiganum upp á aðra hæð. Hvernig er
það með ykkur, stúlkur, hafið þið verið
einar á þessum tima?
Það kom í ljós að þær höfðu oftsinnis
farið úr eldhúsinu við matarundir-
búninginn.
Þau borðuðu án þess að segja nokkuð.
Þau voru öll upptekin við eigin hugsanir
og óþægilegar tilfinningar. Hvað var að
gerast hérna á Tröllastóli?
Jennifer hnerraði.
Ríkarður leit áhyggjufullur til hennar.
— Ertu að kvefast?
ÞAD SEM GERST HEFUR (6):
Átta manns lenda í hríðarbyl uppi á
miðri heiði. Langferðabítlinn veltur og
fólkinu tekst að brjótast i gegnum
óveðrið að gömlu yfirgefnu hóteli. Þeir
sem voru i bílnum: Ríkarður Mohr frá
Osló, sem var á leið til unnustu sinnar
að krefjast skýringa á þvi hvers vegna
hún sveik hann. Jennifer Lid hej'ur
aldrei notið umhyggju foreldra sinna.
I barnœsku dýrkaði hún Ríkarð, en
varð til þess að hann fúði heimabœ
sinn. Ivar er bilstjórinn og eigandi
langferðabílsins, og með honum er
hinn ungi, laglegi Sveinn, sem fór með
sér til skemmtunar. Trina og Börri
Pedersen eru hjón. Hún er kúguð i
hjónabandinu og hann vill leggja allt í
sölurnar til að missa ekki af fótbolta-
leik i Vindeiði. Lovísa Borgum er
aðlaðandi kona. ungleg eftir aldri. og
Jarl Fretne er „dularfullur".
Undarlegir, óskiljanlegir hlutir gerast
á gamla hótelinu. Einn morguninn
finnast skilaboð frá Börra, þar sem
hann segist vera farinn á fótboltaleikinn
i Vindeiði. A sama miða skrifar Sveinn
að hann sé farinn að leita að Börra. EJlir
erfiða leit úti í bylnum finna þau
Börra, nœr dauða en lífi, en ekkert sést
til Sveins. Sjúklingnum er komið
fyrir i hlýju rúmi en
þegar Trina kemur inn
XZVlkan so.tbl.