Vikan - 11.12.1980, Page 14
— Já, því miður, ég held það. Mér
liður allavega illa I hálsinum.
Rikarður leit til hinna. — Hefur
einhver töflur eða önnur meðul við
hálsbólgu?
— Ég er með ágætis verkjatöflur,
sagði Trína.
— Láttu Jennifer hafa nokkrar.
Siðan skalt þú drekka eitthvað heitt og
fara svo í rúmið.
— Núna! Ég er rétt komin fram úr!
Það ersvokalt í herberginu. . .
— Þaðer rétt hjá þér. Taktu þá teppi
og leggðu þig hérna viðarininn.
Trína kom með töflurnar og valnsglas
og Jennifer vafði teppinu. sem Ríkarður
hafði sótt, um sig. Hún naut þess að láta
stjana viðsig.
—ívar. sagði Ríkarður. — Batnar
veðriðekkert?
ívar klóraði sér í hnakkanum. — Það
snjóar ekki jafnmikið núna og kannski
er ekki jafnmikill stormur. En. ..
— Hvað?
ívar var ekkert hrifinn af því sem
hann þurfti að segja. — Ég athugaði
hitamælinn úti. Það kólnar sífellt.
— Kólnar?
Þeim leist ekki á blikuna.
— Hvað er kalt núna? spurði Fretne
hljómlausri röddu.
— Tólf stiga frost en það var tíu fyrir
klukkutíma.
Hlegið á kostnað annarra
Pappírsframleiðandi bauð mér sem
„hótel- og veitingahúsaeiganda" tólf
dúsin af klósettrúllum í fallegum
fölgulum, bleikum og bláum litum. fyrir
gesti mína.
Ég rek hunda- og kattahótel.
Mr. E. Thorn. Rugbv
i Daily Mirror
Atvinna í boði: Garðyrkjunraður óskast.
helst vanur, annars ómögulegur.
A uglýsing i blaði i Wills
í þessum sýningarsal á sunnudag kl.
18.00:
MYRKRAHÖFÐINGINN
Auglýsingá regg
North London Hall
Gaudy-bómullarefnin i garðtjöld og
sumarbústaðinn, með zebraröndum í
vínrauðum, bláum, grænum, gulum og
fjólubláum litum. Dai/ySketch
Hvort sem hann er að skjóta besta vin
sinn niðri á strönd eða er í rúminu með
eiginkonu forstjórans, þá er Ferguson
sami fráhrindandi Bretinn, með
harðkúluhattinn sinn.
Úr bókmenntagagnrýni i
Observer
NORWICH, 24. júní, frá fréttaritara
okkar þar: Starfsfólkið á Norfolk og
Norwich-sjúkrahúsinu reyndist tregt til
að gefa sjúklingnum nokkrar
upplýsingar, svo hann fann nýstárlega
aðferð til að fá þær. Hann hringdi í sima
sjúkravina og fékk þegar í stað samband.
Hann spurði konuna sem svaraði:
„Hvernig liður hr. N. N. í dag? Hvernig
gekk með uppskurðinn? Sjáið þið fram á
að einhver eftirköst verði?" og ýmissa
annarra spuringa. Eftir nokkrar
spurningar spurði konan hann hvort
hann væri ættingi hr. N. N. „Nei,”
svaraði hann, „éger hr. N. N.”
Hr. Frances Pointer, varaformaður
sjúkravinafélagsins, sagði eftir á að þessi
saga væri alveg sönn en vildi ekki gefa
upp nafn sjúklingsins.
Með leyft The Times
Starfskraftur óskast i gestamóttöku og
við símavörslu. Verður að geta unnið
stöku laugardagsmorgun (nokkuðoftl.
Auglýsingi
Manchester Evening News.
Vinur minn sem var á flugvellinum i
gær segir að hann hafi séð skólastrák
með merkimiða á töskunni sem á stóð:
Farþegi til Hong Kong (um Breiðholtiðl.
Staðfært úr
Evening Standard
Oskar Farthingle, Aylmer Drive 33
Teddington, Surrey, vill hér með koma
því á framfæri að honum hafi ekki verið
ætlað þetta nafn en hins vegar standi
þaðá fæðingarvottorðinu hans.
Úr einkamáladálknum
I The Times
Vegurinn að hjarta hans gæti legið um
hinn þymum stráða veg sem matreiðsla
lifrarinnar hans er.
Úr matreiðsludálki
kvennablaðsins SHE.
í arabalöndum, eins og t.d. Irlandi,
gerist það sem talið er frábært sjaldan,
en það sem er talið vonlaust oft.
Daily Telegraph.
Alencina Dobrodruzsvi v podzemní risi
Alicia en Terra de Meravelles
Alice i Vidunderland
Alice’s avonturen in het wonderland
Elsja’s avonturen in't wonderland
‘Aventures d’Alice au pays des merveilles
Alice's Abendteuer im Wunderland
Alisz Kalandjai Csodaországban
Le Avventure d'Alice nel paese delle
meraviglie
Else í eventyrland efter Lewis Carroll
Elisi katika nchi ya ajabu
Anturiaethau Alys yng Ngwlad Hud
Ævintýri Lisu i Undralandi.
Úrsýningarskrá
British Museum
— Hvað er mikið eftir af timbri?
spurði Jennifer.
— Það er nóg eftir i útihúsinu, sagði
Fretne.
— Þvilík heppni, sagði Jennifer. —
Við neyðumst liklega fljótlega til að
flytja rúmin hingað inn. Það verður
bráðlega alltof kalt að vera i herbergjun-
um.
— Já, sagði Rikarður og stundi.
í sama bili kviknaði Ijós einhvers
staðar. Nokkur stund leið áður en þau
áttuðu sig á að það var á Ijósakrónunni.
Samtimis heyrðu þau suð, sem kom frá
ísskápnum.
— Ó guð, hvislaði Lovisa. — Gefðu
að það sé satt. Láttu Ijósið koma aftur!
Þau horfðu öll á Ijósakrónuna sem
hafði slokknað á aftur. Það kviknaði á
henni nokkrum sinnunt. . . siðan ekki
söguna meir.
— Það er straumur i línunum, sagði
Ivar. — Það eykur möguleika á þvi að
rafmagnið komi aftur.
— Það hefur greinilega orðið strauni-
laust á stóru svæði. sagði Ríkarður. —
Nú eru þeiraðgera viðbilanirnar.
— Láttu það takast. láttu það takast.
muldraði Trina.
Hún var greinilega bænheyrð. Allt í
einu kviknaði á Ijósakrónunni og
ísskápurinn fór aftur i gang.
— Húrra! hrópaði Jennifer — og-
Ijósið slokknaði aftur.
— Gastu ekki haldið aftur af þér!
sagði Ríkarður. — Þú veist hvað þú ert
seinheppin!
Hún leit niður. Rikarður sá strax eftir
orðum sinum og strauk yfir hár hennar.
— Fyrirgefðu. Jennifer, þetta var
heimskulega sagt hjá mér.
Hún brosti til hansen þaðfylgdi engin
gleði brosinu.
Suðið frá ísskápnum vakti hann upp
úr hugsununum og í þetta skipti rofnaði
straumurinn ekki aftur. Það önduðu
allir léttar. Tilhugsunin um að sofa öll
saman fyrir framan arineldinn hafði
ekki veriðaðlaðandi iaugum neins.
Jennifer versnaði í hálsinum eftir þvi
sem leið á daginn. Ríkarður sótti háls-
brjóstsykur i afgreiðsluna og skipaði
henni að sjúga hann eftir mætti en það
kom að litlu gagni. Ríkarður var
áhyggjufullur þegar hann bar hana i
rúmið um kvöldið.
— Við höfum hugsað okkur að reyná
Skop
14 Vlkan S*. tbl.