Vikan - 11.12.1980, Side 18
LAgvaxnl maflurinn, aam atandur vU)
borðlð, ar aignor Dino. (Lj6am. KH)
Texti: Jónas Kristjánsson
Á hestum postulanna
1 Flórens er allt á sama stað, höfuð-
kirkjur og hallir endurreisnartímans,
hótel og veitingahús nútímans. Þar
þurfum við aldrei að stíga upp I leigubíl,
heldur komumst allra okkar ferða fót-
gangandi. Hvergi er meira en stundar-
fjórðungur milli endimarka hinnar sögu-
frsegu miðborgar.
I undanförnum greinum hef ég sagt
frá sögustöðum og einkum þó veitinga-
húsum í einstökum hlutum þessa
samþjappaða svæðis. Ég hef sagt frá
miðsvæðinu umhverfis Palazzo Vecchio
og Uffizi-safnið. Ég hef sagt frá suður-
svæðinu handan brúarinnar Ponte
Vecchio og Palazzo Pitti. Ég hef sagt frá
vestursvæðinu við Santa Maria Novella,
San Lorenzo og Palazzo Medici-
Riccardi. Og ég hef sagt frá norður-
svæðinu umhverfis þriðju stærstu dóm-
kirkju I heimi.
Fjögurra metra dýpi
Nú er röðin komin að austursvæðinu.
Þar er höfuðkirkjan Santa Croce við
myndarlegt torg. Hana reistu
Franciscusarmunkar, keppinautar hinna
dominicönsku, er reistu Santa Maria
Novella í vesturhluta miðborgarinnar.
Kirkjan er 140 metra löng og 40
metra breið og gólfið er þakið
legsteinum, þar sem sjá má nöfn Dante,
Michelangelo, Machiavelli, Rossini,
Galileo og fleiri frægra manna.
Sama Croce var það sögufrægt hús,
sem fór einna verst út úr flóðunum
miklu í ánni Arno árið 1966. Kirkjan
stendur svo lágt, að fjögurra metra
vatnsdýpi var I kirkjunni, þegar flóðin
náðu hámarki.
„Enogastronomico"
Indælis veitingahús er rétt hjá Santa
Croce. Þangað má ganga frá kirkjunni
einhverja götuna til norðurs, Via
de’Pepi eða Borgo Alegri. Fyrsta þver-
gatan er Via Ghibellina. Ef hún er farin
til hægri, er fljótlega komið að númer
51. Þar er Dino.
Signor Dino kallar veitingahúsið sitt
„Ristorante Enogastronomico”, sem
táknar, að þar sé jöfnum höndum lögð
áhersla á góðan mat og góð vín. Og sú
var einmitt freistingin, sem dró okkur til
Dino.
Vertinn klökknaði
þegar Brunello
varð fyrir valinu
Þetta var mjög hreinlegur og
snyrtilegur staður og um leið dálítið
sveitalegur. Hann var I fjórum litlum
herbergjum, hverju inn af öðru, og voru
um 20 sæti í hverju herbergi. Eitt
herbergið er frátekið fyrir þá, sem vilja
eingöngu snæða ostarétti með göfugum
vínum.
Þarna er flísagólf, berir múrsteinar
upp á miðja veggi og myndir þar fyrir
ofan. Ljósakrónur og veggljós eru úr
svörtu smiðajárni með stórum gler-
kúlum.
Skildum jafnvel ítölskuna
Við vorum snemma á ferðinni, upp úr
klukkan tólf. Italir fara ekki í hádegis-
mat fyrr en eitt til hálftvö. Enginn
viðskiptavinur var enn kominn og
fjölskyldan sat að snæðingi. Dino
sagði sögur, pataði mikið og hló.
Feitlagin signora Dino vísaði okkur til
horðs undir gífurlega miklum vínflösku-
rekk, bogalöguðum. Þar voru hundruð
göfugra vína, þakin kóngulóarvef.
Signora Dino talaði mikið við okkur á
ítölsku, meðan hún gekk um heina. Við
skiljum litla ítölsku, en skildum þó
heilmikið af þvi, sem hún sagði.
Við vorum ákveðin að fá okkur
dýrasta og göfugasta vín Ítalíu, Brunello
di Montalcino, sem þarna fæst á 20.000
lírur flaskan eða 10.000 krónur
íslenskar. Signor Dino var ákaflega sæll,
þegar hann sá, hvað við pöntuðum. Það
lá beinlínis við, að hann klökknaði.
Vfnlisti I albúmi
Vínlistinn í Dino er sá skemmtilegasti,
sem ég hef séð. Hann er geymdur í
tveimur Ijósmyndaalbúmum, þar sem
festir eru flöskumiðar og handskrifaðir
miðar með Itarlegum upplýsingum um
verð og árganga. Og þarna voru
greinilega saman komin öll fínustu vín
Italíu.
Annað er frábært við vínframboð
Dino. Þar er voldugur vínvagn með um
20 áteknum vínflöskum. Af vagninum
er hægt að kaupa dýrindis vín í glasatali.
Það er tilvalið fyrir þá, sem vilja prófa
margar tegundir án þess að þurfa að
kaupa heilar flöskur.
öflugastur var flokkur Chianti
Classico vína, bæði á vínvagninum og í
vínlistanum. Það er eðlilegt, því að þau
vín eru frægust góðvína landsins og
einnig af þvi að Flórens er höfuðborg
Chiantisvæðisins, Toskaníuhéraðs.
Brunello di Montalcino er ra&tað syðst
á þessu svæði. Það telst ekki til Chianti-
vína, en er þó skylt þeim. Eins og
Riserva úgáfur Chianti vína er Brunello
di Montalcino vín. sem batnar með
aldrinum lengi vel.
Flmka númer 3929
Við pöntuðum flösku númer 3929 af
Brunello di Montalcino frá Barbi,
18 Vikan 50. tbl.