Vikan - 11.12.1980, Page 23
Fjölskyldumál
eða ætti ekki að hegða sér. Þessar
óskráðu reglur hafa mikil áhrif á
samskipti við aðra. Eitt af því sem lærist
snemma i gegnum óskrifaðar reglur fjöl-
skyldu er hvernig leysa eigi úr ósamlyndi
eða árekstrum og mótar sá lærdómur
gjarnan hegðun fólks þegar sambúðar-
vandi steðjar að.
henda hlutum og hugsanlega slást. er
möguleiki á að gripið sé til slikra lausna i
sambúðarvanda. Ef vaninn i fjölskyld-
unni hefur verið sá að leysa úr vanda-
málum með því að þegja, laþþa i burtu
og reyna að komast hjá því að ræða
málin er trúlegt að það hafi áhrif á
hvernig málin eru tekin upp í eigin
sambúð.
Hvað svo sem einstaklingurinn kann
að hafa lært í sinni upprunalegu fjöl-
skyldu er það hins vegar algengt að þau
viðþr'ögð sem hann sýnir í tilfinninga-
legum erfiðleikum séu óskiljanleg
honum sjálfum. Fólk kvartar oft undan
þvi í samþúðarerfiðleikum að það skilji
ekki af hverju það hefur hegðað sér
svona eða hinsegin. í slíkum tilvikum
getur oft verið mikil hjálp fyrir fólk að
uppgötva hvernig gamlar fjölskyldu-
venjur og gamalt fjölskyldumynstur
hefur gengið aftur og endurtekið sig i
þeirra eigin hegðun. Hvort sem sambúð
leysist upp eða ekki hefur það margsýnt
sig að ef fólk hefur orðið meira meðvitað
um eigin hegðun á það auðveldara með
að komast yfir skilnað. Þessar
staðreyndir hafa leitt til þess að sums
staðar erlendis hafa verið stofnsettar
skilnaðarráðgjafarmiðstöðvar sem reyna
að fá yfirlit yfir heildaraðstæður
einstaklinganna, en þar sem megin-
áhersla er lögð á að auka innsæi og
skilning þeirra á eigin viðbrögðum.
Þessar stofnanir reyna yfirleitt að fást
sameiginlega við lögfræðilega, efna-
hagslega og hagnýta hlið mála ásamt
tilfinningalegu hliðinni. Þetta er m.a.
gert til að reyna að auðvelda aðilum
skilnað og reyna að taka á öllum þáttum
er snerta skilnað sameiginlega. Það
hefur margsýnt sig að slíkt mai á heildar-
ástandi er jákvætt og hefur úrslita-
þýðingu fyrir hvernig aðilar átta sig á
því hvort best er að þeir skilji og byrji
nýtt líf hvor fyrir sig eða reyni að byrja á
nýjum grundvelli saman. Á slikum
stofnunum skiptir tilfinningalega hliðin
miklu máli og getur það skipt sköpum
fyrir fólk í skilnaðarkreppu að öðlast
aukið sjálfsinnsæi og þekkingu á eigin
viðbrögðum í samskiptum við aðra, til
að geta tekið ákvörðun og sætt L
sig við hana. Li
Hjálp viö að leysa upp
hjónaband
Hvernig einstaklingurinn tekst á við
tilfinningalega erfiðleika í samskiptum
við aðra er því oft háð því sem hann
hefur lært og séð fyrir sér fyrr á ævinni.
Ef það hefur t.d. verið algengt að for-
eldrar hafi reynt að leysa vandamál með
því að hrópa upp, rífast, skella hurðum.
50. tbl. Vikan 23