Vikan - 11.12.1980, Síða 25
1
Viðtal Vlkunnar
R LIFANDI
LIST í HÁVEGUM HÖFD
Hér hlýtur að búa tónlistarfólk, hugsa
eflaust niargir vegfarendur um Þing-
holtin þegar þeir eiga leið fram hjá vina-
legu húsi á horni Bókhlöðustígs og Mið-
strætis, örskammt frá virðulegum
einatt kemur fyrir að tónar úr blásturs-
hljóðfærum eða píanói flæða úr þessu
húsi út á götuna. Þeir sem þekkja til
heimafólksins á Bókhlöðustíg 8 láta sér
ekki bregða og þykir það sjálfsagt og
eðlilegt. En ég sem þetta skrifa átti
heima í Miðstrætinu í tvö ár og gekk
þarna fram hjá daglega án þess að
kunna skýringu á notalegri tóna-
framleiðslu við Bókhlöðustig. Það var
ekki fyrr en nú á haustdögum að ég varð
einhverju nær. Þá barði ég að dyrum á
;,tónabæ" Þingholtanna á vegum
VIKUNNAR. Björn R Einarsson stór-
músíkant kom til dyra. Þá fékk ég svar
við stóru spurningunni. Honum hefur
alltaf fylgt flóð af tónum.
heima i Fischersundi á barnaskólaárun-
um. Við Gunnar Huseby og fleiri
strákar vörðum Lækinn. Herjuðum
fjörurnar og rákum austurbæingana
alla leið í Laugarnesið. Það var þegjandi
samkomulag um að hafa hasar!
Strákarnir á Grímsstaðaholtinu voru
harðir líka. Haukur Morthens var i þeim
hóphum. Okkur lenti saman við þá líka,
blessaður vertu."
Björn Rosenkranz hafði komið sér
þægilega fyrir í sófanum og var auðsjá-
anlega skemmt þegar hann rifjaði upp
ærsl og prakkarastrik æskudaganna.
Hljóðfæri. nótnabækur og hljóm-
flutningstæki í stofunni minntu gestinn
á að hann var kominn i hús til fólks sem
lætur sér ekki nægja að hlýða á skipulegt
tónaflóð af plötum eins og við leikmenn
heldur kann sjálft að raða tónum saman
í lög.
lngibjörg Gunnarsdóttir eiginkona
Björns bar okkur te i stofu. Ofan af lofti
bárust blásturstónar. Þar var Oddur,
yngsti sonurinn í fjölskyldunni, að æfa
sig. Hann stundar nám i hljóðfæraleik
en leikur auk þess á trombón i „Big
bandi” með föður sínum og fleirum.
Viðmælandi VIKUNNAR að þessu
sinni, Björn R. Einarson. hefur staðið i
fremstu víglinu íslenskra hljóðfæraleik-
ara i áratugi. Hann hefur spilað margs
konar tónlist um dagana: Klassik,
dixieland, djass og gömludansatónlist.
AIR FORCE BIG BAND: Björn R.
spilaði með stórri hljómsveit á Kefla-
víkurflugvelli árið 1954. Hann er á
miðri mynd mað básúnuna sína, sá
eini sem er með Ijóst bindil
Tveir af þessum fyrrverandi
félögum Björns i hljómsveitinni á
vellinum eru mjög þekktir djassleik-
arar i Bandarikjunum. Annar er Bill
Berry trompetleikari sem rekur
eigin hljómsveit fyrir vestan. Hinn er
trommuleikarinn Hannah.
Hann er einn níu manna sem leikið hafa
með Sinfóniuhljómsveit tslands frá
upphafi.
Mamma var fyrsti tónlistar-
kennarinn
,.Já. ég er af tónlistarfólki koniinn.
Pabbi söng í mörgum kórum og safnaði
hljómplötum en það var mamma, Ing-
„Ég er Reykvikingur i húð og hár,
Menntáskólanum í Reykjávík. Oft og fæddur á Skólavörðustíg 15 og átti
50. tbl. Vifcan 25