Vikan - 11.12.1980, Page 42
Fimm mínútur með Willy Breinholst
Hvar hafa
læknar lært að skrifa?
Deildarstjórar, ofurstar, hirð-
leikarar, aðalforstjórar, yfir-
matreiðslumeistarar, ritstjórar,
sjónvarpsleikstjórar, amtmenn
og fulltrúar læknastéttarinnar
hafa alltaf verið þeir sem í krafti
hnífbeittrar skarpgreindar
sinnar og yfirburðaþekkingar
hafa varpað ljóma á fjölskyldu-
samkvæmi á snotrum borgara-
heimilum. Því miður hafa fáir
fulltrúar þessara mjög svo
metnu samborgara fyrirfundist í
hópi minna allra nánustu
ættingja. Eiginlega var Vagn
frændi úr Dölunum það næsta
sem við komumst í minni fjöl-
skyldu. Hann var praktíserandi
læknir. Að vísu bara heimilis-
læknir en læknir engu að síður.
Og þar sem hann hafði orð á sér
fyrir að vera sérdeilis skemmti-
legur i samkvæmum var honum
að sjálfsögðu boðið þegar við
héldum boð. Við báðum hann
að koma og varpa ljóma sínum
yfir selskapinn. Tilefnið var
afmælisdagur Maríönnu. Og þar
sem þetta var stórafmæli, mjög
stórt sannast sagna, sendum við
honum að sjálfsögðu boðskort
þó við létum þess á milli líða
langan tíma án þess að við
ónáðuðum lækninn og læknis-
frúna úr Dölunum.
Nokkrir dagar liðu áður en
við fengum svar. Það var örstutt
og greinilegt var að hann hafði
haft mikið að gera þegar hann
páraði þessar línur á blað. Hann
hafði einfaldlega krotað nokkur
orð aftan á lyfseðil.
— Jæja, sagði Maríanna
spennt, þegar ég leit yfir bréfið,
— koma þau?
— Ég hef ekki hugmynd um
það, sagði ég og lagði lyfseðilinn
frá mér.
— Já, en varstu ekki að lesa
bréfið, manneskja! Hann hefur
líklega ætlast til þess að við
læsum það fyrst hann sendi það,
eða hvað?
— Ég var að lesa það, þrisvar
meira að segja.
— Já, en þá hlýturðu að vita
hvort þau koma eða ekki.
— Nei.
— Hvers vegna ekki?
— Af því ég skil ekki stakt orð
af þessu bölvuðu hrafnasparki
hans.
Maríanna teygði höndina
eftir lyfseðlinum og renndi
augunum yfir bréfið. Hún
hallaði undir flatt og aftur á ný í
hina áttina. Pírði augun, glennti
þau upp, setti gleraugun upp,
tók þau niður aftur. Síðan hristi
hún höfuðið ráðalaus.
— Nú, sagði ég, koma þau?
— Þú hefur rétt fyrir þér, það
er útilokað að geta sér til um
hvort þau ætla að koma eða
ekki. Ég get ekki lesið orð af
þessu. Er virkilega alveg
bráðnauðsynlegt að læknar
skrifi ólæsilega rithönd? Gæti
verið að hann hafi skrifað á
arabisku?
Hún hafði auðvitað nokkuð
til síns máls. Ég fann stækkunar-
gler og fór í gegnum textann
aftur, staf fyrir staf.
— Hvað sýnist þér?
— Ég held að þetta sé annað-
Stjörnuspá
llrulurmn 2l.m;irs 20.;i|iril
Stundum getur borgað
sig að sýna lipurð í
samskiptum við aðra.
Þetta á sérstaklega við
núna. Mikið liggur við
að sýna hlýju og
góðvild þar sem eftir því
er leitað.
X.iuliA 21.upril 2l.m;ii
Þvermóðska þin hefur
haft nokkuð illar
afleiðingar. jafnvel þó
þú kunnir að hafa rétt
fyrir þér. Enginn verður
minni maður af svolítilli
greiðvikni.
lAthunirnir 22.mai 2l.júni
Nokkur hættumerki eru
á kreiki núna, sem
benda til þess að réttast
væri að þú færir að öllu
með gát. Þetta á ekki
sist við um samskipti
við vélar og aðra dauða
hluti.
Kr hhinn 22. júni JT. júli
Happ mun henda þig og
gleymdu ekki að þakka
þeim sem þakka ber. Þú
hefur sjaldan komið eins
miklu í verk og núna og
það gerir öllum gott.
meðan þú ofgerir þér
ekki.
I. jonió 24. jii11 24. :ii>ú*l
Nú ættir þú að vara þig
á hroka. Svo vill til að
fleiri eru að gera það
gott en þú. Annars
verður vikan góð og þú
mátt búast við reglulega
skemmtilegu fólki i
kringum þig.
>!►> j-.in 2-S.;ÍiíúnI 2.4.scpl.
Hætt er við að þú þurfir
að taka á honum stóra
þinum ef ekki á illa að
fara í einhverju smámáli
I einkalíftnu núna. Allar
likur eru á að þú eygir
hættuna og breytir rétt.
Vertu ekki fyrir
vonbrigðum þó einhver
kunni ekki að meta
kimnigáfu þina i þessari
viku. Það geta ekki allir
haft sama skopskyn.
Vertu gætinn með
peninga.
Sporödrckinn 24.okl. 2.Vno\.
Þér tekst að gera margt
óvenjulegt og liklega
skemmtilegt í þessari
viku, sem þú gleymir
seint. I vinahópi verður
gott að vera og þú
blómstrar.
HogmaAurinn 24.nói. 21.dcs
Eyðslusemi þín kann að
reynast hættuleg því
óviss útgjöld gætu orðið
með mesta móti. Hafðu
hemil á skapsmununum
ef einhver gerist
nærgöngull í
spurningum.
Slcingcilin 22. úcs. 20. jan.
Hvað sem á bjátar
veistu vel að þú átt
fjölda góðra vina. Vertu
ekki hræddur við að
leita til þeirra, þeir hafa
oft leitað til þin.
\alnshcrinn 2l.jan. I'í.fchr.
Liklegt er að þér verði
falið verk sem þér er
ekki mjög um gefið.
Reyndu þó að rækja
það vel. Vera má að
það komi þér vel þó
seinna verði.
Vertu þinum nánustu
tillitssamur og þú munt
uppskera hið sama.
Óþolinmæði hefur þvi
miður ekki þann eigin-
leika að flýta neinu.
Lyftu þér upp á óvenju-
legan hátt.
42 Vikan 50. tbl.