Vikan - 11.12.1980, Qupperneq 44
I I NÝIU/Vi
C€I\U/H
Ölafur Gunnarsson
Þetta er fjórða bók Ólafs Gunnarssonar. Áður
eru komnar út eftir hann bækurnar Ljóð 1970,
Upprisan 1976 og Milljón prósent menn 1978.
Útgefandi er Iðunn.
Snjórinn fór strax. En það var frost i
lofti. Og einn dag kom Siggi-Súpermann
að heimsækja mig.
— Hvað ertu kominn aftur. spurði
ég.
— Nei, en mér datt í hug að kíkja við
og sjá hvernig þér liði fyrst ég var á
annað borð i bænum, sagði hann vand-
ræðalega. Hann var í sparifötunum.
— Ertu búinn að fá bókina, spurði
hann svo.
— Hvað bók, sagði ég.
— Íþróttabókina, ég bað um að hún
yrði send til þín í flugi.
Ég sá útundan mér að strákarnir
tíndust frá skýlum og stæðum og komu
nær, forvitnir og glottandi. Líka nokkrir
kallanna. Þeir söfnuðust í kring um
okkur.
— Að sjá greifann, sagði einhver. —
Það er mikið að hann heilsar upp á
gömlu félagana.
— Hvar ertu byrjaður að vinna,
spurði Hangikjötið frekjulega.
— Ég er nú hvergi byrjaður enn,
svaraði Siggi-Súpermann aumingjalegur.
Hann horfði alltaf á mig eins og ég hefði
spurt hann.
L 1 L k,. ... jHi'I
s|§||^|é
Það varð dauðaþögn.
— Jæja. þú litur kannski við þegar þú
ert búinn að fá bókina, sagði Siggi loks.
Hann hélt áfram að tala við mig eins og
við værum tveir á planinu.
— Hvaða bók, ertu byrjaður að selja
hommablöð Rostungurinn þinn.
Hangikjötið færði sig ógnandi nær.
— Nei, þa-þa-það var ekki neitt
svoleiðis, stamaði Siggi-Súpermann.
Hláturskliður fór um hópinn og nef-
hljóð Hálfvitans skar sig úr eins og
venjulega.
— Varstu að spyrja Stebba hvort þú
mættir fá að ríða honum í raskatið, sagði
Hangikjötið.
Siggi-Súpermann þagði.
— Heyrirðu ekki að það er verið að
tala við þig helvitis homminn þinn.
Hangikjötið gerði sér upp reiði og röddin
var hörkuleg. Mér varð illt í maganunt.
Siggi-Súpermann horfði fölur niður fyrir
sig án þess að svara og rótaði með
öðrum fæti í mölinni.
— Svona nú, hægan drengir, sagði
Fýli gamli.
— Ég var að tala við manninn, og
44 Vlkan 50. tbl.