Vikan - 11.12.1980, Síða 51
Draumar
Perla og
rauöskjóttur
hestur
Kæri draumráöandi.
Mig langar til að biðja þig að
ráðafyrir mig tvo drauma. Sá
fyrri er svona:
Mig dreymdi að ég væri að
búa mig í veislu og fór ég i mín
bestu föt. Er ég var komin i
fínan kjól lét ég á mig dýrindis
perlufesti sem égátti. En um
leið slitnaði festin og stærsta og
dýrasta perlan datt á gólfið og
hvarf. En engin af hinum
perlunum datt af spottanum.
Eg sagði við konu, sem hjá
mér var, að ég yrði að fmna
týndu perluna. En konan sagði
að festin vœri alveg nógu löng
þó eina perluna vantaði. En ég
svaraði að perluna yrði ég að
finna því hún væri hinn dýr-
asti demantur. Eg fór að leita
og fann hana undir skáp. Eg
lét perluna I lófa minn og sagði
um leið: Eg verð að fá mér
nœlonspotta og þræða festina
upp á hann svo hún slitni ekki
aftur. Og með það sama
vaknaði ég.
Hinn draumurinn ersvona:
Stúlka sem ég þekki vel var að
koma heim af dansleik. Það
fylgdi henni ungur piltur og
tevmdi hann rauðskjóttan hest.
Ijómandi fallegan, sem hann
átti. Þegar þau komu heim að
húsinu hennar batt pilturinn
tauminn á hestinum við hliðið
á girðingunni. Svo fóru þau inn
i húsið. Rétt á eftir gat
hesturinn losað sig og hljóp út
á götu. Þá kom pilturinn út og
kallaði í hestinn sem stansaði
strax. Pilturinn sótti hestinn og
batt hann aftur við hliðið. En
nú gaf hann hestinum hey, sem
hann var með í poka, og fór
hesturinn að éta það og var
hinn rólegasti. Við það vaknaði
ég-
Með fyrirfram þökk fyrir
birtinguna.
Kristín.
Perlufesti boðar yfirleitt miklar
framfarir og getur þá bæði átt
við heilsu og félagslega afkomu.
Slitni festin eða týnist máttu
eiga von á talsverðum erfið-
leikum við að ná settu marki. En
takist þér að tína upp perlurnar
eða finna aftur og jafnvel að
þræða upp aftur táknar það að
erfiðleikarnir verði smávægi-
legir.
Síðari draumurinn getur í
rauninni boðað ýmislegt og
nánari upplýsingar vantar svo
ráðningin megi teljast marktæk.
Til dæmis hafa nöfn þeirra
tveggja mikið að segja í ráðning-
unni. Flest táknin í draumnum
eru býsna góð og þarna virðist
velgengni í tilfinningamálum
aðalatriðið. Þó fylgja líka gallar
og hlaup hestsins táknar fljót-
færni sem þó virðist ekki valda
varanlegu tjóni. En hvort þarna
er um þau tvö í draumnum að
ræða eða hvort þetta boðar þér
eitthvað er ekki hægt að
fullyrða um með neinni vissu
vegna þeirra atriða sem þú ekki
getur í bréfinu. Það skal tekið
fram að aldrei eru birt nöfn ef
óskað er að þeim verði sleppt og
því óhætt að láta ýmsar
persónulegar upplýsingar fylgja
með til að auðvelda ráðningu.
Úr og hjörtu
Kæri draumráðandi.
Mig langar að biðja þig að
ráða þennan draum fyrir mig
og hann er svona: Mig dreymdi
að ég opnaði skáp og inni í
honum var fullt af gullvasa-
úrum, litlum vasaúrum, og öll
voru þau með loki og var lokið
útskorið. Þetta voru svona 7-8
úr. Eg fór að Uta betur á þetta
og sá þá silfurhjarta og var það
stærra heldur en úrin. Eg
hugsaði með mér: Skyldi þetta
vera vasaúr, svona hjartalaga?
Og ég opnaði hjartað. Þá voru
tvö önnur lokfyrir. Þau voru
ekki silfurlituð. Þegar ég var
búin að opna annað sá ég
hjartalaga spegil og var hann
mjög lítill. Egsá ekki sjálfa
mig I speglinum. Mér fannst
hálfur spegillinn vera eitthvað
óskýr. Mér fannst þetta vera
mjög skýrt og glitti mjög á
silfrið. Inni í þessum skáp var
líka fullt af bréfum og voru 4-5
til stelpu sem vinnur með mér
en hin til mín. Voru það bæði
rukkanir og bréf frá fólki og ég
hugsaði með mér hver væri að
senda mér bréf.
A.J.
Draumurinn er mjög
margþættur. Flest öll táknin
eru fyrirboði góðs. Draum-
ráðandi leyfir sér að álykta að
þú eigir í vændum mjög bjarta
og gæfuríka framtíð. Silfur-
hjartað táknar mann þinn
tilvonandi og bendir allt til þess
að hjónabandið verði gott.
Börn eignastu líklega mörg og
væn. Einnig gætu úrin mörgu
verið fyrir viðburðaríku lífi
fremur en barnaláni. Framtíðin
verður samt sem áður ekki
alveg áfallalaus, sendibréfin og
rukkanirnar vita á það.
Líklegast verður ekki um meiri-
háttar mótlæti að ræða og þú
getur horft björtum augum
fram á við.
Ófrísk
Kæri draumráðandi.
Mig langar að biðja þig að
ráða fyrir mig draum sem mig
dreymdi núna nýlega. Hann er
svona: Læknirinn sagði við mig
að ég væri ólétt og þegar ég
hevrði hann segja við mig:
„Jæja, góða mín, hér eru
niðurstöðurnar. Þú ert ólétt, ”
þá hrökk ég við og fór að
hágrenja. Læknirinn revndi að
hugga mig en það gekk
erfiðlega.
Þegar ég var búin aö jaj'na
mig spurði hann mig hver
faðirinn væri en það vissi ég
ekki. Það var út af því að ég
átti að hafa verið með
nokkrum strákum upp á
síðkastið.
Mér leið mjög illa og þorði
ekki að segja mömmu og pabba
frá þessu.
Læknirinn gaf mér margar
ráðleggingar og ég fór ejtir
þeim, en sjálfur ætlaði Itann aö
segja foreldrum mínum frá
þessu. Þetta endaði allt vel, svo
skeði eitt sem ég hef verið að
hugsa um en þegar ég vaknaði
frá draumnum Jékk ég sting í
magann og hélt að þetta hefði
skeð í alvöru, og mér fannst ég
vera ólétt. Vonandi getur þú
ráðið þennan draum fvrir mig.
Er ég kannski ímyndunan>eik?
Takkfyrir. Lauga
Ótti við að eitthvað gerist getur
stundum orsakað að mann
dreymi að einmitt það eigi sér
stað. Það þykja yfirleitt slæmir
draumar og ekki táknrænir.
Sjálfsagt er of djúpt í árinni
tekið að segja þig ímyndunar-
veika. Hins vegar leynist örugg-
lega með þér ótti um að
draumurinn geti orðið að veru-
leika. Þess vegna skaltu fara
varlega í þessum efnum og
nota öruggar getnaðarvarnir.
Skop
50. tbl. Vlkan 51