Vikan - 11.12.1980, Side 62
Karlmenn hafa
sœrt mig svo
oft, en af
hverju?
Kæri Póstur!
Mig langar að biðja þig að
segja mér hvað þér finnst, þ.e.
þitt álit á þessu vandamáli
mínu sem kemur hérá eftir.
Karlmenn hafa sært mig svo
oft, en af hverju?
I mars síðastliðnum byrjaði
ég að vera með strák, nefnum
hann Á. Ég þekkti hann aðeins
fyrir, en þegar ég kynntist
honum var ég ákveðin í því að
reyna að kynnast honum nánar
og það tókst eins ogfyrr segir.
Nema hvað ég hélt að ég væri
ástfangin (áhugann vantaði
ekki). Eg sá hann svona einu
sinni til tvisvar í mánuði og
saknaði hans mikið þess á
milli.
En það var stór minus i
þessu öllu og hann var sá að A
gat ekki sætt sig við að ég gæti
ekki hlaupið úr vinnu þegar
hann kom í land. Eg gal ekki
haft Á. heima yfir nótl, t.d.
vegna þess að það hefði faðir
minn aldrei samþykkt. Og þó
hann væri úti á sjó þáfór ég
út að skemmta mér með
vinkonum mínum en það þoldi
hann ekki.
Áuðvitað þoldi ég ekki margt
ífari hans, eins og að hann
væri alltaf hreint fullur i landi.
Það var og er, hvort sem á við
um hann eða aðra sjómenn.
óþolandi. Sjómannastéttin öll
eins og hún leggur sig hefur
nógu slæmt orð á sérfyrir.
Jæja, en áfram skal blaðið. Svo
fær Á. sitt sumarfrí I I 1/2
mánuð en ég gat ekkert farið
með honum úl af vinnunni svo
hann fór einn. Þá fyrst J'ór ég
að vera alvarlega vond. Ég
reyndi oftar en einu sinni að
tala við hann í síma en það var
eins og að tala við stein. Svo
sagði ég b/ess J'yrir fullt og allt.
Þá kom hann Á. (skríðandi)
aftur og ég tók við honum. En
þá var hann bara að hefna sín
og gerði það svo rækilega að ég
ákvaö að fremja sjálfsmorð.
sem tókst ekki betur en þetta.
Góð vinkona mín bjargaði því.
Síðan, um það bil mánuði
seinna, kynntist ég öðrum. (Það
eru jú alltaf fleiri fiskar í
sjónum, ekki satt?) Viö skulum
nefna hann V.
í fyrstu var hann, ja, hvað
skal segja. Ijúfur eins og lamb,
þangað til ég hælti að segja já
og amen við hann. Þá réðst V.
á auðveldari bráð, vinkonu
mína (sem var þá er þetta skeði
arfadrukkin) ogkom þaðfyrir
tvisvar. En nóg hefur V. bak-
talað mig og logið upp á mig
eftir þetta.
Svo núna ekki alls J'yrir
löngu kynntist ég þeim þriðja.
(Allt er þegar þrennt er og það
Jjórða fullkomnað.) Nefnum
hann A. V. Hann var svo sem
ágætur til að tala við þegar það
var hœgt. En nr. I hjá honum
var og er og verður alltaf. . .
KYNLÍF. En það er bara ekki
alltaf nr. I hjá mér.
í öll þessi þrjú skipti hafa
þeir A., V„ og AV. sært mig
svo óstjórnlega mikið að ég hef
ekki vitað milt rjúkandi ráð. Er
ég svona auðveld bráð? Nógu
andskoti er ég J'rek og ákveðin
að mér finnst.
En ég vil biöja þig. eins og
ég nefndi hérfyrst. að setja þig
i mín spor og sjá hvað þér
finnst.
Virðingarfyllst og fyrirfram
þökk.
Rósin
Mörg misheppnuð ástarsam
bönd í röð hljóta jafnan að taka
á taugarnar og eðlilegt er að þér
sárni. En umræddir náungar
virðast af lýsingu þinni ekki þess
virði að vera syrgðir um of.
í samskiptum kynjanna er
einhver undanlátssemi á báða
bóga ávallt nauðsynleg. Hins
vegar er ekki síður mikilvægt að
halda sjálfstæði sínu og láta ekki
stjórnast eingöngu af vilja hins
aðilans. Ef málamiðlun er óhugs-
andi á sambandið ekki framtíð
fyrir sér. Þú segist frek og
ákveðin og virðist vera það.
Haltu þínu striki en flanaðu ekki
að neinu. Þú ert ekki auðveld
bráð heldur manneskja með
tilfinningar og vilja til að velja
og hafna. Þér finnst þú ef til vill
hafa verið notuð vegna þess hve
illa tókst til. Það er ekki rétta
viðhorfið. Fékkst þú ekki
eitthvað út úr þessum
samböndum? Hugleiddu það og
reyndu jafnvel að sjá málið frá
sjónarhóli karlmannanna. Þú og
þeir virðist ákaflega ólík. Enginn
þeirra hentar þér með þina skap-
gerð. Þeir hafa önnur lífsviðhorl'
og venjur. Þin eigin skapgerð og
viðhorf eiga einnig eftir að
þroskast og breytast. Þú ert ung
og það eru ótal fiskar í sjónum.
áreiðanlega margir karlmenn
semfalla beturað þér.
Póstinum finnst eilítið erfitt
að setja sig í þín spor, einkum
vegna þess að þú segir ekki nóg
um hvað gerðist. Það sem
einkennir skapgerð þína eru
andstæður. ákveðni og
viðkvæmni. Þú verður að reyna
að taka hlutina ekki of nærri
þér. Ef til vill mættirðu fara
varlegarí sakirnar næst. Reyndu
að átta þig betur á mönnunum
áður en stofnað er til frekari
kynna. Bældu niður biturleika
og hefndarlöngun. Þær
tilfinningar eru þér ekki til góðs
nema síður sé.
Þaðer fólki á þinum aldri ekki
nema eðlilegt að leita vel og
lengi fyrir sér í þessum málum.
reyna margt og marga.
Lögregluskólinn
Elsku Póstur!
Eg hef aldrei skrifað þér áður.
Mig vantar svör við þessum
spurningum:
1. Er sérstakur lögreg/uskóli
hér á landi?
2. Ef svo er, hve gamall þarf
maður að vera til að komast
í hann?
3. Þarf maður að ná ákveðinni
hœð?
4. Ef ég vildi ganga í þennan
skóla, hvarfæ ég þá
umsóknareyðublað?
5. Hve langt er námið?
6. Er það bæði verklegt og
bóklegt?
7. Hvaða undirbúning þarf ' til
að komast í skólann?
Eg vona að þú svarir þessum
spurningum.
Ein forvitin.
í Reykjavík er starfandi sér
stakur lögregluskóli og veitir
lögreglustjórinn í Reykjavik
honum forstöðu. Lögreglumenn
fá ekki skipun í fasta lögreglu-
mannsstöðu nema að undan-
gengnu prófi frá lögregluskóla
og reynslutíma. Umsækjandi
skal vera 20-30 ára. vel vaxinn.
að minnsta kosti 176 cm hár.
með góða likamsburði. heil
brigður andlega og líkamlega og
laus við líkamslýti Námskeið
stendur yfir í 4-6 vikur. Námið
er aðallega bóklegt en einnig fer
fram kennsla i hjálp í viðlögum.
björgun frá drukknun.
umferðarstjórn. handtöku og
fleiru. Lögreglumenn skulu
síðan kvaddir á framhalds-
námskeið eigi siðar en 12
mánuðum eftir að fvrra starl's-
námskeiði lýkur. Námskeið
þetta tekur 14-18 vikur. Það er
mun ítarlegra en hið fvrra.
Námsgreinar eru meðal annars
íslenska. skýrslugerð. ýmis lög
og reglur. þjóðfélagsfræði. sál
fræði. ýmiss konar lögreglu-
æfingar og fleira. Umsækjandi
um lögreglumannsstarf. og þar
með lögregluskólann. þarl’ að
hafa lokið að minnsta kosti
grunnskólaprófi með góðri
meðaleinkunn. Að lokum máv
geta þess að reglugerð um þetta
er frá árinu 1965 og er nú i
endurskoðun. Varðandi frekari
upplýsingar og umsóknareyðu
blöð er þér bent á lögreglu
stjórann i Revkjavík.
Leiðrétting
Uppskrift að prjónawesti á bls. 6-7 í
46. tbl. Vikunnar er óskyld Heimilis-
iðnaðarfélagi islands með öllu.
Athugið einnig villu i mynstri. Átta-
blaðarósirnar eiga að sjálfsögðu all-
ar að vera eins (sú til vinstri er rétt).
Leiðrétting við
kökukálf í 48.tbl.
SPÁNSKUR VINDUR: I stað 2 msk.
hjartarsalt á að standa 2 tsk. hjartar-
salt.
JÓLABRAUÐ: Í stað 100 g af hveiti á
að standa 1000 g hveíti.
RÚSÍNUKÖKUR: Til þess að
kökurnar verði sætar þarf að setja 1
1/2 bolla af sykri saman við.
Eins er vert að taka það fram, að i
„Fléttunum hans Jóns okkar" þarf
brauðið að hefast eftir að það hefur
verið fléttað. Þá er best að setja það
á heitan stað og láta það hefast
undir rökum klút í klukkutima.
62 Vikan SO. tbl.