Vikan - 11.12.1980, Qupperneq 63
Pósturinn
Pennaiinir
Francis Ferdinand Krankue, c/o Miss
Theresa Otoo, P/T Corportion, Man
Post Office, Cape Coast, Ghana W/A,
er 17 ára piltur frá Ghana sem vill
skrifast á við stráka og stelpur.
Áhugamál eru lestur, sund. íþróttir,
myndaskipti. og tennis. Svarar öllum
bréfum og skrifar á ensku.
Erlu Kristjánsdóttur, Breiöalæk, Barða-
strönd, 451 Patreksfirði, langar að
skrifast á við stráka og stelpur á
aldrinum 12-13 ára. Mynd fylgi fyrsta
bréfi ef hægt er.
Ilólmfríður Svava Eyjólfsdóttir,
Heiðmörk 11, 755 Stöðvarfirði, óskar
eftir pennavinunt á aldrinum 12-14 ára.
hún er sjálf 12 ára. Áhugamál: iþróttir.
sund. diskótek. bréfaskriftir. Mynd fylgi
fyrsta bréfi ef hægter.
Bob Stephenson, 219 Baker Rd., High
Paint NC 27263, USA, 46 ára ógiftur.
vill eignast pennavin. Honum finnst
garnan að dansa, borða úti. synda.
stunda sólböð og gönguferðir úti i
náttúrunni.
Aldís Guðrún Axelsdóttir, Litlu-Brekku,
566 Hofsósi, Skag. og Sigríður Línherg
Runólfsdóttir, Brúariandi, 566, Hofsósi,
Skag., tvær pennagiaðar stúlkur 17 ára.
óska eftir pennavinum á aldrinum 17-
20. piltum eða stúlkum. Áhugamál: böll.
músik. bréfaskipti, lestur góðra bóka og
margt fleira. Mynd fylgi fyrsta bréfi ef
hægt er. Svara öllunt bréfum.
Sigríður Sigurjónsdóttir, Garði, Hegra-
nesi, 550 Sauðárkróki, Skagafirði, er
12 ára og óskar eftir pennavinum á
aldrinum 12-14 ára. Áhugamál marg-
vísleg. Mynd fylgi fyrsta bréfi ef hægt er.
Svarar öllum bréfurn.
Thorhild Hovvik, 6984 He.vvikbygda,
Norge, 25 ára gift norsk kona. óskar að
skrifast á við islenskar húsmæður.
Áhugamál hennar eru söfnun gamalla
kökuuppskrifta. handavinna. blóm. fisk-
veiðarogbörn.
Sigrún Gísladóttir, Móaflöt 13, 210
Garðabæ, óskar eftir pennavini á
aldrinum 12-13 ára. Ýmis áhugamál. t.d.
diskótek, dans. hestar. strákar. Mynd
fylgi fyrsta bréfi ef hægt er. Svarar
öllum bréfum.
Kristín Benediktsdóttir, Hvalnesi, 781
Austur-Skaftafellssýslu, óskar eftir að
skrifast á við krakka á öllum aldri.
Svarar öllum bréfum. Er sjálf 15 ára.
Eyrúnu Þórólfsdóttur, Laugarbraut 7,
300 Akranesi, langar að skrifast á við
stelpur og stráka á aldrinum 13-15 ára.
Hún er sjálf 15 ára. Áhugamál mörg.
Svarar öllum bréfum. Mynd fylgi ef
hægt er.
Karen Stephenson, 111 Wellington St.
W. 104, Markham, Ontario, Canda,
L3P 1B2, er 19 ára stúlka og óskar eftir
pennavinum. hefur haft áhuga á Íslandi
síðan hún lærði um það í landafræði.
Áhugamál margvisleg.
Elin Gróa Karlsdóttir, Vitabraut 6, 510
Hóltnavik, og Kolbrún Unnarsdóttir,
Borgarbraut 2, 510 Hólmavik, óska eftir
að skrifast á við stelpur og stráka á
aldrinum 12-14 ára. Áhugamál allt milli
himinsogjarðar.
Margréti Marisdóttur, Lyngholti 14,
230 Keflavik, langar að skrifast á við
stelpur og stráka á aldrinum 11-13 ára.
Er sjálf 11 ára. Áhugamál margvísleg.
Mynd fylgi fyrsta bréfi ef hægt er.
Jóhanna Guðfinnsdóttir, Árnesi.
Strandasýslu, 523 Finnbogastöðum.
óskar eftir bréfaskiptum við pilta og
stúlkur á aldrinum 18-25 ára. er sjálf 20
ára.
Getuleysi
Kæri Póstur.
Eg hef aldrei skrifaö þér ádur en ég les alltaf' Póstinn og
hef veitl því athygli hve góð s\’ör þú hefur gefið. Reyndar
hef ég alltaf haldið að ég gæti ráðið við mín einkamál sjálf
og þyrfti ekki hjálp annarra en nú þarfnast ég sannarlega
ráðlegginga. Ég er á föstu með strák og er búin að vera
með honum í 3 mánuði. Við eigum gott með að tala
hreinskilnislega saman og elskum hvort annað mjög mikið.
Það er kannski fáránlegt að tala um ást þar sem við erum
svona ung (ég er 16 en hann er 17 ára) en þetta er ekki sú
ást sem kemur skyndilega og springur svo heldur myndaðist
hún hægt og rólega þar til við urðum mjög tengd. okkur
líður jafnvel illa ef við sjáumst ekki I langan tíma.
En þetta er bara ekki nóg. Kynlífið er ekki upp á marga
ftska hjá okkur. I hvert skipti sem við ætlum að hafa
samfarir fer allt úrskeiðis hjá honum. Það vantar ekki að
honum getur staðiðfvrir samfarir en þegar hann ætlar að
leggja I hann stendur honum ekki. Það er ekki um að
ræða neina feimni hjá honum eða hræðslu. Við höfum rætt
um þetta saman en botnum ekkert í þessu. Svona lagað
hefur aldrei gerst hjá honum með annarri stelpu. Eg reyndi
að segja honum upp en það tókst ekki betur en svo að við
byrjuðum upp á nýtt. Eg er oft búin að liggja andvaka á
nóttunni og grenja út af þessu. En við getum ekki hælt
saman það er alveg ómögulegl.
Getur getuleysi hans verið mér að kenna? Eða er þetta bara
tímabundið? Eg hef oft beðið hann að f 'ara til læknis en það
aftekur hann með öllu. Þess vegna sný ég mér til þin. þú ert
síðasta von mín um hjálp.
Ein vongóð.
Þið skuluð hafa það hugfast að vandamál ykkar er langt frá
því að vera eitthvert einsdæmi. Tímabundið getuleysi hjá
karlmönnum er algengt, sérstaklega á meðan þeir eru ungir
og óreyndir. Þrátt fyrir að strákurinn sem þú ert með hafi
ef til vill verið með mörgum stelpum er það ekki það sama
og mikil kynlífsreynsla. Samband ykkar ristir tvímælalaust
miklu dýpra og er honum meira virði en nokkuð annað sem
hann hefur reynt fyrr á þessu sviði. Þú fullyrðir að hjá
honum sé ekki um neina feimni eða hræðslu að ræða. Um
það er þér hins vegar ómögulegt að dæma. Hræðslan eða
öllu heldur taugaóstyrkurinn er honum sjálfum kannski
ekki fyllilega meðvitaður. Ástin og kynlífið er hvort tveggja
I senn sálrænt og líkamlegt fyrirbæri. Þarna er um fjarska
flókin ferli að ræða og getur oft verið erfitt að átta sig.
Vandamálið er hvorugu ykkar að kenna. Hins vegar er það
ykkar beggja að leysa það. Getuleysið er áreiðanlega tíma-
bundið vandamál. Það vill því miður oft verða að einhvers
konar vítahring. Óttinn við að standa sig ekki orsakar það
beinlínis eða óbeinlínis að illa tekst til. Þess vegna krefst
það fullkomins skilnings og þolinmæði af þinni hálfu ef
árangur á að nást. Þú segir að þið elskið hvort annað og
getið talað hreinskilnislega saman. Ef svo er í raun og veru
er ekki rétt að „segja honum upp" eða hætta að vera
saman nema eindrægur vilji sé fyrir því. Þú verður að
hætta að skoða vandann sem hans, hann er ykkar beggja.
Reynið að vera róleg og afslöppuð. Það eru til fleiri aðferðir
til að ná kynferðislegri fullnægingu en samfarir í venju-
legum skilningi þess orðs. Verið ófeimin við að prófa ykkur
áfram. Það eru engar reglur til um hvernig á að iðka kynlíf.
Öll pör verða að þreifa sig áfram að því sem þeim finnst
best. Það er með kynlífið eins og flest annað að þroski og
kunnátta eykst með aldri og reynslu. Opinská urnræða um
kynlíf er mikilvæg ekki síður en fræðsla. Að sjálfsögðu
þurfa elskendur að geta rætt um þessi mál, en það væri
sömuleiðis til bóta ef vinkonur og vinir gætu talað saman.
Pósturinn hefur stráka sérstaklega grunaða urn að guma sig
frekar af „kynlífsafrekum” sínum en spjalla um vandamál
sem upp koma.
Að lokuni vill Pósturinn benda ykkur á að lesa ykkur
frekar til um málið i bókum um kynlíf sem sérstaklega eru
ætlaðar ungu fólki (t.d. Æska og kynlif, Við erum saman.
16 ára) eða að hafa samband (simleiðis eða bréfleiðis) við
kynfræðsludeild Heilsuverndarstöðvarinnar í Reykjavík. Öll
fræðsla ætti að róa ykkur og veita það öryggi sem ykkur er
umfram allt nauðsynlegt.
50. tbl. Vikan63