Vikan - 28.05.1981, Qupperneq 2
HUSRAÐ
1. Reynið að setja grófan lérefts- eða
strigaklút á borðið þegar þið fletjið út
deig. Það festist ekki og þá er maður laus
við alla fitu á borðinu. Eins er gott að
setja skálm eða ermi af bómullarflik
(helst fitinal utan um kökukeflið.
2. Það getur verið erfitt að prjóna úr
uppraki. Reynið að vefja því utan um
straubretti, pressa það með deigum klút
og hengja til þerris og vefja því síðan i
hnykil.
3. Setjið 2-3 teskeiðar af ediki í vatnið ef
sjóða á pylsur. Þær verða stökkar og
betri.
4. Þegar þið brúnið kartöflur, þá setjið
örlítinn rjóma saman við. Þið fáið
fallegar og gljáandi kartöflur.
5. Þegar frysta á kjöt, grænmeti eða
annan mat er fljótlegt og auðvelt að loka
pokunum með heftivél.
6. Það er ágætt ráð að velta medister-
pylsu upp úr hveiti, þá springur hún ekki
viðsteikingu.
7. Það er erfitt að ná hvítkálsblöðum
heilum af. Setjið tappatogara í stöngul-
inn, látið siðan kálhausinn ofan í pott
með sjóðandi vatni, eftir 10 sekúndur
eru ystu blöðin laus. Endurtakið þetta
þar til komið er nóg i kálbögglana.
8. Ef maður á ekki rasp má með góðu
móti nota kornflögur. Myljið þær aðeins
og það bragðast ekki siður.
9. Ef kerti bogna þá reynið að setja þau
augnablik i mjög heitt vatn, rúlla þeim
síðan á sléttri plötu.
10. Ef maður á afgang af þeyttum
rjóma, sem geymist mjög illa, er gott að
sjóða hann aðeins, þá fær maður ágætan
kaffirjóma sem geymist vel.
Ég læt fylgja með tvær smáskrýtlur ef
þið getið notað þær.
Þar sem kvennaárið er liðið er mér
víst óhætt að segja joetta: Konan er eins
og frasblettur, það þarf að halda henni
niðriogslá hana oft.
tk
Síðustu fréttir frá Rússlandi:
Tannlæknar eru að fara á hausinn, það
þorir enginn að opna munninn.
Hvað?
Er Mogginn nú kominn með sérefni á
rússnesku — eða hvað? Það verður að
játast að þeir eru mjög vissir í sinni
sök, að Rússarnir komi, fyrst þeir eru
strax farnir að prenta rússneskar
fréttir.
Sölumenn
Hnýtingaverslun sendi tvo sölumenn
út á land til að selja hnýtigarn, tréperlur
og annað til hnýtinga. Stuttu seinna
fékk verslunarstjórinn tvö bréf. Annað
var á þessa leið: „Kem á morgun, hér er
enginn markaður, hér hnýtir enginn.”
Hitt hljóðaði svona: „Sendu eins
mikið og þú getur hingað. Hér hnýtir
enginn en markaður ótakmarkaður."
Nokkrir
fúlir
krakkabrandarar
Hvers vegna fór hesturinn yfir hæðina?
Af því að hann komst ekki undir hana.
Fyrsta mannæta: Er ég of seinn i kvöld-
matinn?
Önnur mannæta: Já, það eru allir
búnir.
Mannætan: Hvað kostar máltíðin hér?
Þjónninn: 10 kr. á mann.
Mannætan: Þá ætla ég að fá einn með
öllu.
Sonurinn: Amma er svo vond.
Mamman: Þegiðu og haltu áfram að
borða.
„Frú mín, hundurinn yðar hefur verið
aðeltamannáhjóli."
„Hvað vitleysa, hundurinn minn
kann ekki að hjóla.”
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 29. APRÍL 1981
UT9 *19yH
jnT/fl ‘ÍÍTífll
^iúCrvr/
-Ijflfli/il> B
VririÍTiJÍí-f/l'n
run
m 8 ■
'1 « 1
■■■ '
:
Pm
X Vlkan XX. tbl.