Vikan - 28.05.1981, Blaðsíða 12
mönnum til sjálfshjálpar, hægt og bít-
andi, eitt skref í einu. Þaö er auðvitað
nauðsynlegt að það séu forystumenn í
landinu, vel menntaðir menn sem kunna
vel til verka. En mér finnst það ekki
síður mikils virði að allur almenningur
fái breiðan þekkingargrundvöll til að
byggja á.
En þetta eigum við oft erfitt með að
hugsa okkur, tæknimennimir sem förum
suður á bóginn, við kunnum svo mikið
að við viljum sjá eitthvað verulegt
gerast. En þetta er alveg eins og þegar
við lærðum að lesa. Fyrst kom Gagn og
gaman, síðan Litla gula hænan, alltaf
urðu orðin stærri og letrið smærra. Við
byrjuðum ekki strax að lesa eðlis
fræðina.
Við lærum af Afríkubúum
Afríkumenn geta kennt okkur mikið í
mannlegum samskiptum. Ég held að ef
við förum þarna suður eftir sé það alveg
lifsnauðsyn að við áttum okkur á þvi
að við höfum jafnmikið að læra af
þeim eins og þeir af okkur. Ekki minna.
Sjálfsmorð og hjónaskilnaðir eru fátíð
í Afriku. í stórfjölskyldunni hefur hver
maður sitt hlutverk, amman og afinn sjá
um börnin á meðan mamman er úti á
akrinum og pabbinn að veiða, þannig
tengjast börnin við fortíðina.
Frænkurnar og frændurnir hafa líka sín
hlutverk.
Einstrengjafiðlan KRA'H er eitt
vinsælasta hljóðfærifl í Eþíópíu.
Farandsöngvarar nota hana sem
sitt helsta hljóflfæri.
Grá hár eru mikils virði í Afríku. Á
einum stað í Vestur-Afríku sá ég hvernig
ákvarðanir eru teknar. Upp kom vanda-
mál í þorpinu. Það var safnað saman
öllum karlmönnum í þorpinu og þeir
settust undir greinar trés eins. Síðan lýsti
sá yngsti skoðun sinni og þannig koll af
kolli eftir aldri, þar til komið var að
þeim elsta sem hafði nú heyrt skoðanir
allra hinna. Aldursforsetinn kvað upp
úrskurð í málinu: Hann hafði revnsluna.
Hér gerist það hins vegar að það er
auglýst eftir mönnum I vinnu og tekið
fram að þeir megi ekki vera eldri en 35
ára.
Það er almennt útbreidd verka-
skipting i Afríku að konurnar sjá um
akuryrkjuna en karlarnir veiða í matinn
IX Vlkan XX. tbl.
og sjá um varnir. Þetta má sjá daglega,
til dæmis á mörkuðunum þar sem
karlarnir koma rekandi sauðféð en
konurnar á eftir með stórar byrðar.
Konur og asnar, það eru burðardýrin I
Afríku. Karlmaður sem setur byrði á
bak sér missir karlmennsku sína.
Afstætt myndskyn
Litir hafa auðvitað geysimikið að
segja fyrir allar þjóðir og ekki sist
þjóðirnar suður í Afríku. Mér varð þetta
sérstaklega ljóst í sambandi við kristni-
fræðikennsluna. Þegar kristniboðarnir
komu með myndefni sitt var það' á
vissan hátt móðgandi við Afríkumenn
því að Jesús var hvítur og allt er miðað
við hvítar aðstæður eins og hann er
fæddur og upp alinn í Gyðingalandi.
Þá kom einn kristniboðinn með þá
góðu hugmynd að sýna ekki myndir af
andlitinu sem slíku heldur gera klipp-
myndir úr mismunandi litum pappir.
Þessi kristniboði var frá Sierra Leone
sem er niður við sjöinn og hann hafði
Júdas grænan, Jesúm ljósan og læri-
sveinana bláa. Þetta gekk allt ljómandi
vel.
Kristniboðarnir frá Malí ætluðu að
nota sömu aðferð en það gekk alls ekki.