Vikan - 28.05.1981, Qupperneq 29
Mótorhjólaskvísur
sjúkrakassi, bón, pizzas (gúmmi-
gljái), vaskaskinn, olíusía, keöju-
úði.
Einnig leðursamfestingur og
hanskar, regngalli, varmapoki og
eða varmateppi, pottasett og
hnifapör, tuskur, nál og tvinni,
plastpokar, hárnæring, sjampó,
Kotex, Ijósar buxur, þrir stutt-
ermabolir, einn ermalaus, tveir
langermabolir eða skyrtur, stutt-
buxur, bikini og fernir sokkar.
tasðinu i Hannover.
Hittumst á Rimini
þann þriðja
Bogga tók á móti mér í Kaupmanna-
höfn, þótt hún væri reyndar í prófum í
skólanum í Hannover. í Kaupmanna-
höfn bjuggum við hjá íslenskum
kunningja. Þaðan fórum við beint til
Hannover, Bogga í prófið en ég skoðaði
mig um á meðan. Þar hittum við
nokkrar íslenskar stelpur sem voru á
lestarferðalagi. Við mæltum okkur mót
á Rimini þann þriðja september og
vorum ákveðnar i því að láta það
standast.
Við fórum eins og áður segir saman i
þetta ferðalag á hjólinu og með allan,
farangur á því fyrir okkur báðar. Frá
Hannover lögðum við af stað á hádegi
þann 24. ágúst og ókum hraðbrautina til
Kölnar. Þegar við ætluðum að leggja af
stað frá Köln og langt komnar með að
pakka tók ég eftir því að allt loft var
farið úr afturdekkinu. Þar með var hætt
við allt saman, puncture pilot sprautað i
dekkið og haldið af stað til að bjarga
málum. Það tók bara allan daginn!
Fyrst var að finna heimilisfang
einhvers verkstæðis og þá að finna verk-
A leið til Bazal rann eln rauðvin Ijúflega niður kverkarnar.
stæðið. Þegar þangað var komið voru
dekkin ekki til og þeir vildu helst panta
þau frá Dunlop. Það leist mér alls ekkert
á og við lögðum af stað til þess að leita
uppi búð sem við höfðum tekið eftir
daginn áður. Eftir að hafa villst
nokkrum sinnum fundum við búðina og
keyptum þar afturdekk og slöngu ásamt
bolum með Kawasaki prentuðu á. Þá
var að fara aftur á verkstæðið og ljúka
þessu. Þegar þangað kom komumst við
að því að við þurftum sjálfar að taka
dekkið undan. Þá tók verkstæðismaður-
inn við, skipti og ballanseraði, en síðan
máttum viðsvo setja undir aftur. Þá var
dagurinn líka úti.
Itölsk „sjálfsþjónusta"
Daginn eftir héldum við af stað og
ókum hraðbrautina til Bonn og síðan
þjóðveginn upp með Rín og til Koblenz.
Þaðan svo hraðbrautina til Trier og alla
leið til Lux.
í Lux bjuggum við hjá íslenskum
kunningja og héldum þaðan til Stutt-
gart, þar sem við lentum á eins konar
uppskeruhátíð. Næsti viðkomustaður
var Wangen en þar bjuggum við einnig
hjá kunningjum, þýskum strákum sem
Sigurborg og Valgerður slaka vel á eftir langt ferðalag, komnar aftur til Hannover.
22. tbl. Vikan 29