Vikan


Vikan - 28.05.1981, Síða 41

Vikan - 28.05.1981, Síða 41
■ Framhaldssaga hafði ekki dottið það i hug fyrr. Þegar hann hugsaði sig betur um komst hann að þeirri niðurstöðu að hann hefði aldrei hugsað neitt um hana öll árin sem þau gengu í gagnfræða- og menntaskólann. Það var vist ekki síðan honum fannst að hún væri orðin alveg eins og jafnleiðin- leg og allar hinar stelpurnar. Eftir þessi vonbrigði hafði hann víst alveg þurrkað Vönju úr huga sér. En þau hlutu að geta orðið vinir á ný. Það hlaut að vera hægt að höggva gat á þann íshjúp sem hún faldi sig í. Vafa- laust yrði það auðveldast ef honum tækist sjálfum að vera eðlilegur og tala við hana i fullri hreinskilni. Já, hvers vegna ekki? Hann gæti bara einfaldlega spurt hana hvers vegna hún hefði breyst svona mikið, hvers vegna hún væri orðin svona. Eða mundi hún kannski móðgast? Skyndilega varð honum ljóst að það var honum meira virði en allt annað að hún hyrfi ekki frá honum aftur. Hann heyrði að hún kom vaðandi upp að ströndinni en hann hreyfði sig ekki og lét sem hann vissi ekkert um að hún væri að koma. Þegar hann heyrði að hún var alveg að koma til hans sneri hann sér letilega við og sagði: „Var vatnið hlýtt?” „Já, dásamlegt. Alveg hæfilegt.” Hún var broshýr og heillandi, augsýnilega í góðu skapi. Hárið var rennandi blautt og féll niður á axlirnar. Hún fleygði baðkápunni yfir sig og Þor- björn hélt að hún ætlaði að skipta og fara í stuttbuxur. En í stað þess settist hún á hækjur sínar, hélt saman höndum undir hnjánum og horfði dreymandi út á fjörðinn. „Ætlarðu ekki að láta blessaða sólina baka þig?” „Nei, ekki alveg strax. Það er ofurlítill hrollur í mér eftir baðið.” Þorbjörn stóð upp og starði á hana. Þetta var eitt af því furðulegasta sem hann hafði heyrt. Það var næstum því 30 stiga hiti I skugganum og sjórinn meira en 20 stig og Vanja sat í baðkáp- unni og sagði að sér væri kalt! Annað- hvort var hún sú siðlátasta og tepru- legasta stúlka sem hann hafði hitt eða þá hreint og beint eitthvað skrítin. „Ertu kannski veik?” „Nei, alls ekki.” „í fullri alvöru, Vanja: Getum við ekki reynt að vera vinir og komið eðli- lega fram hvort við annað eins og fyrr? Það er eitthvað sem þú byrgir inni, eitt- hvað sem þjakar huga þinn en ég hef ekki hugmynd um hvað er. Ég hef sannarlega ekki hugsað mér að sýna þér neinn yfirgang eða éta þig upp en í ham- ingju bænum sittu ekki þarna og ímynd- aðu þér að ég sé eitrað skorkvikindi sem þig langar mest til að hafa sem lengst frá þér! Hann beit sig I vörina. Skammarlegt að hann skyldi ekki geta haft fullt vald á sér. Þetta var heimskulega mælt. Vanja sagði ekki neitt en hún laut höfði og sér til óttablandinnar undrunar sá hann að axlir hennar bærðust til. Hamingjan góða! Var hún að gráta? Það gat þó tæpast verið vegna þess sem hann sagði. Hann varð svo utan við sig að hann vissi ekkert hvað hann átti að segja eða gera. Honum geðjaðist ekki að stúlkum sem grétu en af einhverjum ástæðum kenndi hann mjög í brjósti um Vönju. Að lokum var sem hún rétti úr sér og herti upp hugann. „Fyrirgefðu mér, Þorbjörn,” sagði hún. „Ég skil vel að þú hlýtur að halda að ég sé orðin eitthvað meira en lítið undarleg. En þar sem þú vilt að við tölum saman í einlægni og gerir það er ég lika fús til þess. Það varst ekki þú sem ég var hrædd við, það var sólin.” „Sólin???” Þetta varð alltaf verra og verra. „Já, ég er hrædd við að verða brúnni en ég er.” „En þú ert ekkert áberandi brún. Það eru margir miklu brúnni en þú. Það finnst öllum það fallegt.” Hann áttaði sig enn ekki á neinu. „Heyrðu, Þorbjörn,” sagði Vanja, sneri sér að honum og horfði alvarleg beint í augu hans. „Viltu lofa þvi að svara mér einni spurningu í fyllstu ein- lægni?'” „Já, svo sannarlega. Láttu hana bara koma.” Hann virti undrandi fyrir sér þetta örvæntingarfulla andlit sem var svo nærri honum og svo unaðslega fagurt, en jx3 engu að síður svo óendanlega langt í burtu. „Telur þú... finnst þér að sumir þjóð- flokkar séu lítilfjörlegri, auvirðilegri en aðrir?” „Hvað er það eiginlega sem þú átt við?” „Ég á við að .,.... að ... finnst þér til dæmis að svertingjar séu lítilfjörlegri en við?” „Nei, auðvitaðekki.” „Meinarðu það fyllilega?” Hún horfði ákaft til hans með inni- legum bænarsvip. „Já, það er sannfæring mín, en hvers vegna spyrðu um allt þetta?” Óljós grunur læddist að honum. Hamingjan góða! Var kannski hugsan- legt að hún tryði einhverju slíku í fyllstu alvöru? Framh. í nœsta blaði. YFIR TITLAR - VERÐ FRÁ KR. 11,80 TIL 249,35 iiiiiniiin f ? v u BÆJARINS MESTA ÚRVAL AFENSKUM MATREIDSLU- 0G ViNBÚKUM (NÆSTA HÚS VUJ SJÓNVARPfÐ). Samlokur — Hamborgarar — Langlokur — Heilh vertihorn

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.