Vikan - 28.05.1981, Síða 43
Hann dró sig í hlé. Ég lagði
handritið mitt sem enginn vildi
á borðið. Sjö ára vinnu. Sjö ára
strit og yfirlegur . . . höfnuðu í
neðstu skrifborðsskúffunni, og
. . . Dóra stóð fyrir framan
mig.
— Hvað vilt þú?
— Þú veist, postulínsstellið,
Mávastellið — sem var í
borðstofuskápnum, manstu?
Ég ætlaði að hjálpa mömmu að
þurrka af og þá . . . ég veit
eiginlega ekki hvað gerðist . . .
en allt í einu rann hillan til og
datt á gólfið . . . en við gátum
fengið það lagað og fengið inn i
það sem brotnaði og það er
eiginlega ekki hægt að sjá að
nokkuð hafi gerst. Hérna er
reikningurinn ef þú vildir vera
svo vænn að skrifa ávísun. Ég
veit að það var dálítið dýrt en
þeir hjá postulínsverksmiðj-
unni sögðu að það hefði þurft
að líma sjö hundruð brot
saman og auk þess að útvega
fágæt stykki í staðinn fyrir þau
verstu, og . . .
Ég skrifaði ávísun.
— Viltu vera svo væn að
fara, sagði ég og benti Dóru út.
Hún læddist hljóðlega út.
Maríanna birtist. Hún leit út
fyrir að vera í uppnámi og það
var ekki venjuleg hræðsla í
augunum á henni heldur
skelfing.
— Hún var nýbúin að fá
nýjan, lítinn, tveggja dyra bíl í
innkaupin. Það kæmi mér ekki
á óvart þótt hún . . .
— Já!
— HVAÐ?
— Já, ég klessukeyrði hann .
. . ég ætlaði að bakka út úr
bílskúrnum og gaf aðeins of
mikið bensín og svo kom stór
olíutrukkur og keyrði beint á
mig . . . en ég slapp ómeidd . . .
þeir á verkstæðinu segja að það
komi til með að borga sig að
rétta hann og þeir segja líka að
ég hafi sloppið ótrúlega vel
miðað við aðstæður . ..
Ég fann að ég skipti litum.
Fyrst steig blóðið mér til
höfuðs, ég varð eldrauður,
síðan fraus það í æðunum og
ég varð náfölur. Síðan fór
eitthvað af því af stað aftur og
ég fann að ég var undarlegur í
framan.
Ég herti upp hugann og benti
í átt til dyranna.
— ÚT! öskraði ég. Maríanna
hvarf og ég sökk djúpt í
hægindastólinn og lokaði
augunum. Þegar ég opnaði þau
sat Snati heldur hundslegur við
hliðina á mér. Ég klappaði
honum. Besti vinur mannsins,
eina huggun hans, indæli
málleysingi.
— Voff! sagði hann. Hann
var með miða í kjaftinum. Ég
greip miðann af honum, fletti
honum sundur og las það sem á
stóð.
Snati hafði fengið 200 króna
sekt fyrir að hafa ráðist á
póstinn!
VEGGKLÆÐNING með
viðarmynstri i mörgum litum
KJOLUR SF
KEFLAVIK
OG REYKJAVIK
Víkurbraut 13, Keflavík, sími 2121 — Borgartúni 33, Reykjavík, símar 21490,21846
XX. tbl. Vlkan 43