Vikan - 28.05.1981, Page 51
Draumar
„Ég táraöist —
en hann tók mig
í fangid...”
Kæri draumráðandi.
Síðastliðna nótt dreymdi mig
draum sem mig langar ægilega
mikið að fá ráðningu á. Það er
bara verst að ég man hann svo
illa. Hér eru nokkrar upplýsing-
ar. Fyrri hluta síðasta sumars
var ég með strák á ferðalagi í
bíl og ég hafði varla svo mikið
sem séð hann fyrr en þarna og
vöktum við heila nótt og við
vorum saman, reyndar bara í
keliríi, en bílstjórinn svaf. Svo
skildu okkar leiðir en ég var og
er ennþá svolítið hrifin af
honum. Núna er ég byrjuð
með öðrum strák en hugsa
samt ennþá um þann gamla.
Jœja, draumurinn er svohljóð-
andi:
Við hittumst einhvers staðar
en ég man ekki hvar. Hann
spurði mig hvort ég vildi fyrir-
gefa honum að hætta með sér
og ég sagði já. Svo spurði hann
mig hvort ég vildi vera með sér
en þá táraðist ég og hann tók
mig í fangið og sagði ég já. Svo
vorum við bara að kela eins og
lög gera ráð fyrir og við
virtumst bæði vera mjög
hamingjusöm.
Nú vaknaði ég og pældi
mikið í þessum draumi sem ég
vona að þú getir ráðið. Jæja,
bless, bless og fyrirfram þökk.
Ein sem bíður eftir svari.
Þessi draumur er líklegast í
tengslum við hugsanir þínar í
vöku og því ekki mikið mark á
honum takandi. Þó eru tárin
mjög gott draumatákn og segja
má að allir draumar sem maður
grætur í séu tákn um hamingju-
ríkt tímabil framundan.
Sundlaug og skóli
Kæri draumráðandi.
Ég ætla -að biðja þig að ráða
fyrir mig tvo drauma. Sá fyrri
var þannig að mér fannst ég
vera stödd í stórri sundhöll
ásamt vinkonu minni. Það var
eitthvert fólk í kringum okkur.
Mér fannst við sitja niðri hjá
einhvers konar húsi og fólkið
var allt uppi í stúkunni. Ég fór
að ganga um sundlaugar-
svæðið. Ég fór í kringum sund-
laugina. Mér fannst ég ekkert
vatnsjá. Mérfannst vinkonu
minni bregða fyrir þarna en
síðan sá ég hana ekki meir.
Síðan vaknaði ég.
Hinn draumurinn varstyttri.
Ég var inni í anddyrinu í
skólanum sem ég er í. Það
voru nokkrar stelpur þarna.
Skyndilega kom vinkona mín
labbandi og gekk að einni
stelpunni og fór að tala við
hana. Síðan fór hún aftur. Ég
reiddist þessu. Svo vaknaði ég.
P.S. Hvað þýðir ef mann
dreymir peningaupphæð?
Með fyrirfram þökk.
Ein fyrir austan fjall
Fyrri draumurinn bendir til þess
að þú fréttir af því að einhver
(kannski vinkonan í draumnum)
sé mjög andsnúinn þér og vilji
þér allt illt. Þegar betur er að gáð
er hins vegar ekkert að marka
þetta umtal og þú ættir að gæta
þess vel að láta ekki glepjast af
illu umtali. Mjög hefði verið til
bóta að vita nafnið á
vinkonunni, nöfn í draumum
geta oft haft afgerandi áhrif á
merkingu þeirra.
í seinni draumnum eru greini-
lega merki um heillaríka framtíð
en jafnframt aðvörun af ein-
hverju tagi. Því miður er ekki
hægt að vita hvers vegna, það
ræðst mjög af nöfnunum í
draumnum. Þú ættir að reyna
að fá að vita hvað nöfn stelpn-
anna í draumnum merkja, það
gæti gefið þér vísbendingu.
Að dreyma ákveðna peninga-
upphæð sem þú manst er alveg
eindregið tákn um að þú ættir
að reyna að eignast happdrættis-
miða með þessari tölu eða muna
hana alla vega vel því þegar
menn muna tölur úr draumum
eru það yfirleitt heillatölur af
einhverju tagi.
Kaktus
Kœri draumráðandi!
Mig dreymdi í nótt draum
sem ég ætla að biðja þig að
ráða fyrir mig. Hann er
svohljóðandi:
Mér fannst eins og ég væri
stödd í herberginu mínu og þar
væru inni hjá mér strákur sem
ég er nýhætt með og fyrr-
verandi vinkona mín. Á skrif-
borðinu mínu í herberginu var
lítill brúnn kúlulaga kaktus,
nánar tiltekið með tveim
kúlulaga hnúðum. Mér fannst
eins og við værum eitthvað að
tala um hann. Ég tók upp
kerið sem kaktusinn var í en
kom óvart eins og aðeins við
hann með einum fingri og sá
fingur varð samstundis
alþakinn flísum, en þó fylgdi
þeim enginn sársauki. Mér
fannst eins og ég væri eitthvað
pirruð og kallaði óþolinmóð á
þessa fyrrverandi vinkonu.
„Náðu íflísatöng — fljót! Hún
er inni á baði. ” Hún náði í
flísatöngina og ég fór að reyna
að ná flísunum en alit í einu sá
ég þær ekki. Þó plokkaði ég
eitthvað út í loftið og náði
nokkuð mörgum. Og allt í einu
voru flísarnar horfnar og ég
fann ekki fyrir þeim þótt ég
stryki með flngrunum yfir þar
sem þær höfðu verið. Þannig
endaði draumurinn.
Með fyrirfram þökk fyrir
birtinguna.
X.
Draumurinn er þér fyrir ein-
hvers konar mótlæti sem mun
koma illa við þig um tíma og þú
munt finna fyrir erfiðleikum. Þú
munt sigrast á þessum erfið-
leikum af eigin rammleik fyrst
og fremst og vera má að það
kosti þig nokkra baráttu. Svo vel
mun þér ganga að vinna á því
sem bagar þig að þú munt geta
átt von á nokkurri upphefð og
hrósi fyrir. Draumanafn stráks-
ins bendir eindregið til þess.
Draumráðanda þykir líklegast að
draumurinn standi í einhverjum
tengslum við fólkið í draumnum
og vera má að vinkona þín fyrr-
verandi komi þér á einhvern
hátt til hjálpar þegar á reynir.
En fyrst og fremst er það þín
eigin þrautseigja og viljastyrkur
sem verður þér í hag.
Skop
XX. tbl. Vlkan 51