Vikan - 28.05.1981, Blaðsíða 61
í næstu Viku
^ AUOfO O mc REW STOP PLAY FF EJECT
DUQ v-'
' 2 3 4 5 6 78
II I II I II
WNOLt 1 nCPCAT L M MAINS POWCR
TMACKINO -•V ML,. i-AST i'Mw nrc MOOt SWIICIt AI RCAH A
VIDEO
Vinsældir myndsegulbandstækja (VIDEO) fara vaxandi
hérlendis. Sumir vilja eiga alla bestu þætti íslenska
sjónvarpsins til að skoða í ró og næði en aðrir reyna
að bæta við dagskrá íslenska sjónvarpsins með einka-
sjónvarpi af því tagi sem myndsegulbandið er.
Hvað er myndband? Hver er saga myndbandsins?
Hvers vegna öll þessi kerfi? Hvenær verða kerfin
sameinuð í eitt? Hver er mismunur kerfanna? Hvaða
kerfi er útbreiddast? Hvaða kerfi á ég að velja? Hvað
kostar myndbandstæki og hvar fæst það? Hvernig
tengist myndbandstæki við sjónvarp? Get ég framleitt
mitt eigið skemmtiefni? Hvernig nota ég myndbands-
tæki? Hvað er stilliklukka? Hvað er rásastillir? Á
hvernig myndefni á ég völ? Hvað er ólöglegt við
myndbönd? Get ég sent upptöku mína úr landi? Hve
fullkomið myndbandstæki á ég að velja? Hvað er
framundan í myndbandstækni?
öllum þessum spurningum svarar Örn Petersen fyrir
lesendur Vikunnar í næsta tölublaði.
Úr myndasafni Fellinis
Federico Fellini, kvikmyndahöfundurinn frægi, hefur
um árabil safnað myndum af dvergum, risum, gömlu
fólki, vitfirrtu fólki, fitukeppum og horgrindum. Hann á
safn með yfir 50.000 Ijósmyndum sem hann hefur
geymt og raðað undir nöfnum eins og „skítug andlit",
„fallegar, fínlegar stúlkur", „glysgjarnar, sorgmæddar
konur" og svo framvegis.
í næsta tölublaði birtir Vikan nokkrar myndir úr
myndasafni Fellinis.
Ljósi bletturinn
Við fyrstu sýn heldur lesandinn að þetta sé orðaleikur:
myndin sýnir jú bara að sólin skín innum gluggann á
hænsnabúinu. Þar sem sólargeislarnir lenda er Ijósi
bletturinn.
Einfalt mál? Það er aldrei að vita, en í næsta
tölublaði skýrum við frá Ijósa blettinum.
22. tbl. Vikan 61