Vikan


Vikan - 28.05.1981, Blaðsíða 62

Vikan - 28.05.1981, Blaðsíða 62
Halló krakkar Hæ, elsku Póstur. Ég er hér ein sem er geggjað- ur aðdáandi Bjögga (Björgvins Halldórssonar) og ef þið tímið eða viljið gefa mér myndir og plaggöt af honum (myndirnar mega líka vera af Brimkló) sendi ég ykkur einhverjar myndir í staðinn ef ég get. Mér er alveg sama hvernig myndirnar eru. Fanney Kristjqnsdóttir, Harrastöðum, Miðdölum, 371 Búðardal, Dalasýslu. Pósturinn er að sjálfsögðu ekki fær um að senda myndir út um allar trissur, en krakkar út um allt land sem safna myndum og eruð aflögufærir: sendið Fanneyju myndir af Bjögga og fáið ef til vill myndir af ykkar uppáhalds poppurum í staðinn. Hœð miðað við þyngd Kæri Póstur. Ég hef ekkert stórvandamál handa þér núna en vindum okkur í spurningarnar. Hvað á ég að vera þung ef ég er 1,54 m á hæð? Geturðu sagt mér hvað nafnið Margrét þýðir og hvort það er íslenskt? Og seinasta spurningin. Hvort er algengara að kalla þá Möggu eða Grétu sem heitir Margrét? Ein sem er fráfróð. Það er ómögulegt að segja nákvæmlega til um hve fólk á að vera þungt miðað við ákveðna hæð. Þar kemur margt til sem taka þarf með í reikninginn, eins og aldur, beinastærð og vaxtar- lag. En unglingsstúlka eins og þú má vera á bilinu 4448 kg að þyngd til að vera í meðallagi grönn. Nafnið Margrét er ekki íslenskt að uppruna en algengt víða erlendis. Það er upphaflega grískt og merking þess var perla. Það var heiti helgrar meyjar. Hérlendis hefur nafnið tíðkast síðan á 12. öld. Árið 1910 var Margrét algengasta kvenmanns- nafn á landinu. Pósturinn heldur að það sé mun algengara að Margrétar-nafnið hafi gælunafnið Magga en Gréta. Nolan-systur Kæri Póstur. Ég byrja á að þakka fínt blað og þakka allt gott 1 því. Spurningar: 1. Væri ekki hægt að birta plakat af Nolan-systrum og ein- hverja grein um þær? Og birta það þá í 18. eða 19. tbl. 2. Gætirðu gefið mér nöfn á erlendum pennavinaklúbbum? Blessaður og sæll. Dísa, vinur 1 ást og stríði. Bless — okkar mál Farvel — danska Goodbye — enska En hvað þetta voru ljúfar kveðjur, Dísa mín, og gaman að þú sért svona vel að þér í tungumálunum. Varðandi Nolan-systur er það að segja að það kemur meira en svo vel til greina að birta grein og plakat um þær en það verður áreiðan- lega ekki í 18. eða 19. tölu- blaði. Til dæmis kemur þetta bréf þitt ekki á prent fyrr en í 22. tbl. Vikan er unnin langt fram í tímann og nú þegar þetta er ritað er verið að vinna að 21. og 22. tbl. Þannig að þú verður að hafa þolinmæði. Pósturinn gefur upp utanáskrift pennavinaklúbba í næstum því hverju blaði en af því að hann telur ekkert eftir sér koma hér þrjú heimilisföng: International Youth Service, Turku, Finland. International Friendship Club, Tokio 115-91, Japan. World Pen-Pals, 1690 Como Avenue, St. Paul, Mn 55108, USA. Dolly Parton, Janis lan og Kate Bush Getur þú nokkuð gefið mér heimilisfangið á aðdáenda- klúbbum söngkvennanna Dolly Parton, Janis Ian og Kate Bush. Auk þess væri gaman að vita meira um Janis Ian og ef til vill Dolly líka. Hvað hefur Janis til dæmis gefið út margar plötur og hvort er hún ensk eða amerísk? Ein sem hefur gaman af söng- konum. Utanáskrift aðdáendaklúbbs Dolly Parton er: Dolly Parton c/o Katz Gallin Ents. INC, 9255 Sunset Blvd, Suite 1115, Los Angeles, California 90069, USA Pósturinn hefur hlerað að Dolly Parton verði líklega gerð einhver skil annars staðar í blaðinu. Mun hann þvi láta hjá liða að gefa einhverjar upplýsingar hér á síðunni því Dolly er nú meira stykki en svo að það dugi undir hana örfáar línur. Janis Ian er bandarísk. Fyrsta lagið hennar sem sló í gegn var vinsælt fyrir 10 árum og hét Society’s Child. Það lag hennar sem sennilega er einna þekktast er Seventeen sem einnig er komið nokkuð til ára sinna. Hún hefur gefið út 6 stórar plötur. Þær heita (í réttri tímaröð): Stars, ' Between the Lines, Aftertones, Miracle Row, Janis Ian og Night Rain heitir sú nýjasta sem inniheldur meðal annars Fly too High. Um aðdáendaklúbb veit Pósturinn ekki en hins vegar mætti reyna að skrifa plötu- fyrirtækinu. Janis Ian c/o Colombia Records, 51 West 52 Street, New York, N.Y. USA. Utanáskrift aðdáendaklúbbs Kate Bush í Englandi er: Kate Bush Fan Club, P.O. Box 38, Brighton, Sussex BN, 15 QA England. Pabbi sótti um örorkulffeyri handa mér en... Sæll veri Pósturinn! Það er bæði margt og mikið sem mig langar til að vita. Nú vind ég mér bara beint 1 efnið eins og karlinn sagði þegar hann datt ofan 1 tjörutunnuna. Af hverju hefur.ekkert m SUMARGETRAUN Ylki\ VIKUNNAR 1981 LAUSN A 3. HLUTA ORÐTAKIÐ ER: Fyllið út þetta form. Skrifið það orðtak sem þið teljið að myndin á blaðsiðu 5 eigi að túlka hér fyrir ofan, nafn, heimilisfang og símanúmer fyrir neðan. GEYMIÐ ALLA GETRAUNASEÐLANA þar til getrauninni lýkur. Sendið þá siðan alla saman i lokuðu umslagi. Utanáskrrftin er VIKAN, Sumargetraun 1981, pósthólf 533,121 Reykjavík. Skilaf restur er til 17. júlí 1981. SENDANDI HEIMILISFANG: SÍMI 62 VlKan XX. tbl.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.