Vikan


Vikan - 28.05.1981, Side 63

Vikan - 28.05.1981, Side 63
Pósturirm Með vinkonunni uppi í sófa Kæri Póstur. Ég hef aldrei skrifað þér áður og hef yfirleitt ekki þurft að spyrja aðra ráða um mín eigin mál. Nú er samt svo komið að ég er alveg ráðalaus. Éger 17 ára og hef verið með strák í 8 mánuði. Við vorum ferlega happí saman og ég var mjög hrifin af honum og hann af mér — eða það hélt ég að minnsta kosti. Vinkona mín, sem ég veit að hefur alltaf verið dálítið veik fyrir honum, bauð okkur í partí fyrir nokkrum dögum. Mamma hennar og pabbi voru úti og hún var ein heima svo þetta varð svolítið brjálað partí. Um eittleytið var ég orðin hundleið á þessu fylliríi og látum svo ég bað strákinn sem ég er með að koma með mér heim, en þá var hann í svo miklu stuði að hann vildi vera lengur. Þá ákvað ég bara að fara ein af því ég treysti honum alveg. Ég á heima í nœstu götu og þegar ég kom þangað var ég ekki með lykla og mamma og pabbi höfðu verið boðin út og enginn heima svo ég ákvað að fara þá bara aftur í partíið. Þegar ég kom aftur var strákurinn sem éger (var) með í hörkukeliríi uppi I sófa með vinkonu minni. Ég var svo sjokkeruð og hljóp bara út. Þau voru líka ferlega sjokkeruð og hann kom á eftir mér og ætlaði að út- skýra allt. Ég veit að hann var ofsalega fullur og vinkona mín hefur alltaf verið svolítið hrifin af honum. Hann er tveim árum eldri en við og ég hef tekið eftir því að stelpur hafa áhuga á honum enda er hann frekar sætur og skemmtilegur. Ég er æðislega hrifm af honum og get varla hugsað mér að hætta með honum, en ég er samt búin að segja honum upp. Maður getur ekki tekið svona löguðu þó ég viti að þetta var örugglega aðallega vinkonu minni að kenna. Hann er alltaf að hringja í mig og segist geta útskýrt allt en ég skelli alltaf á hann. Samt langar mig svo til að fyrirgefa honum en mér fmnst hann ekki eiga það skilið. Svo er það vinkona mín. Hún hefur verið besta vinkona mín í mörg ár, alveg síðan við vorum litlar, en ég veit að hún getur stundum verið pínulítið fölsk. Á ég líka að hætta að tala við hana? Blessaður ráðleggðu méreitthvað, Póstur minn. Örvæntingarfull. Það má með sanni segja að ástamálin geta tekið óvænta stefnu. Áfengið brenglar oft dómgreind manna og ýmsar aðstæður geta valdið því að svona nokkuð getur komið upp á. Þið hjónaleysin eruð ung og hafið væntanlega ekki svarið hvort öðru neina tryggð. Stráksi getur haft sitthvað til sins máls. Hann getur hafa verið illa drukkinn, vinkonan getur hafa „tælt” hann og svo framvegis. Ef til vill er hann ekki alveg viss um sjálfan sig og hvað hann i raun og veru vill. En fyrst hann gerir ítrekaðar tilraunir til þess að ná sambandi við þig þykir honum áreiðanlega miður að þetta kom fyrir og vill fá fyrirgefningu þina vegna þess að hann er hrifinn af þér. Reynið að ræða málið og gerðu honum ljóst að þér sárni mjög svona framkoma og munir ekki þola þetta aftur. Ef þú ert sannfærð um að þú sért ennþá hrifin af honum og heldur að hann sé enn hrifinn af þér skulið þið bara sættast og taka upp samband að nýju og sjá til. Það sama má segja um vinkonuna. Ef hún fer þess á leit við þig að þú fyrirgefir henni og gleymir þessu atviki er sennilega réttast að reyna það. En um þetta mál í heild verður fyrst og fremst þú sjálf að dæma. Hafðu hugfast að fyrirgefning getur oft verið besta smyrslið á sárin. heyrst í Leif Garett? (Er þetta ekki rétt skrifað?) Pabbi sótti um örorkulífeyri handa mér án þess að nefna það við mig. Ég hef aldrei veríð neinn öreigi, ég er alveg fullvinnufær, það hefur aldrei verið neitt að mér. Hann sem sagt neyddi mig til að lifa á ríkinu sem ég kœri mig ekkert um. Er ekki hægt að kæra svona lagað? Hvernig þá ef það er hægt? Einu sinni ætlaði hann að láta loka mig inni á Kleppi og á hæli fyrir vangefna. Ég er hvorki geðveik né vangefin. Hvað á ég að gera? Á ég að kæra eða taka þessu þegjandi? Hvernig líst þér á? Sponni Á bréfi þínu er svo að skilja sem pabbi þinn hafi fengið handa þér örorkulífeyri. Til þess þarf að uppfylla ströng skilyrði sem þú hlýtur að hafa uppfyllt. Taktu þessu bara með ró. Pabbi þinn vill þér áreiðanlega aðeins vel. Það er hreint ekkert til að skammast sín fyrir að þiggja örorkulífeyri. Þetta er hjálp samfélagsins til þeirra sem búa við skerta starfsgetu vegna einhverrar fötlunar. Athugaðu að orðin öryrki og öreigi merkja ekki það sama. Öryrki er sá kallaður sem tapað hefur hluta starfsorku sinnar vegna heilsuveilu í einhverri mynd. Öreigi er hins vegar sá nefndur sem engar eignir á. Leif Garrett (svona er nafnið stafsett nákvæmlega rétt) gaf út plötu á síðasta ári, „Some Goes For You”. Hann hefur reynt að breyta svolítið um stil, en hefur ekki gengið sérlega vel. Skop Eltthvaö hefur honum selnkaö. Vonandi hefur ekkert komið fyrir hann. 22. tbl. Vlkan 63

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.