Vikan - 11.06.1981, Page 3
Margt smátl
HIN
ÝMSU
ANDLIT
MÓNU
LÍSU
I þessari Viku
24. tbl. 43. árg. ll.júní 1981. Verð 18 kr.
GREINAR OG VIÐTÖL:_________________________________
8 Landakynning: Blóm — hvað annað: Holland í landa-
kynningu Vikunnar.
18 Video — myndbönd—síðari hluti hinnar athyglisverðu
greinar Arnar Petersen.
28 Hér brakar í notalega gömlu húsi — Jónas Kristjánsson
skrifar um Smiðjuna á Akurevri.
IJöwnynd&rínn segir að vangasvipurínn sé betri
hœgra megin.
„Ég er að fara á Hornafjörð.”
„Jahá, tæknin, maður, tæknin. Þaðer
sem ég segi. Er þetta ekki undursamlegt!
Hér sitjum við i sömu flugvélinni og
erurn að fara sinn í hvora áttina!"
Skotinn MacAber var úti að ganga
með ungu stúlkunni. „Er tunglið ekki
dásamlegt?"spurði hann.
„Ju." svaraði unga stúlkan. „Og svo
sparar það rafmagnið."
Þá bar MacAber upp bónorðið.
„Hvað myndi gerast ef prófessor
gleymdi að fara úr fötunum áður en
hann færi upp í baðkerið?"
„Hann myndi sjálfsagt bleyta fötin."
„Nei, alls ekki, því hann gleymdi lika
að láta renna vatn i kerið."
„Hvað hétu systur Tarsans?"
„Veitekki."
„SkvísanogGusan."
„Ertu að hugsa um eitthvað sérstakt.
elskan?"
„Nei. nei. Bara um þig."
„Bobby-ar" í
Brixton
Þótt undarlegt niegi virðast er þessi
mynd tekin i Brixton-hverfi i London og
sýnir tvo blökkudrengi að herma eltir
lögregluþjónum á vaktgöngu. en þeir
eru jafnan nefndir „Bobby-ar". Lögregl
an hefur siður en svo verið vinsæl í
Brixton-hverfi og margir hafa kennt
miklum umsvifum lögreglunnar i
hverfinu um að upp úr hefur soðið hvað
eftir annað og hverfið logað i óeirðum
sem sannarlega hafa borið svip
kynþáttaóeirða. Þarna hefur margt
spilað inn i. atvinnuleysi fer vaxandi í
Bretlandi og ungt blökkufólk verður
mjög fyrir barðinu á því, með þvi
magnast vonleysi manna og framtið
þessara stráka er kannski ekki mjög
björt ef svo heldur fram sem nú horfir i
atvinnumálum í Englandi járnfrúar-
innar.
40 Tvíburar — Guöfínna Eydal skrifar um fjölskyldumál.
42 í lygnu vatni leynist margt — um sundiðkun.
SÖGUR:
12 Stúlkan frá Madagaskar. 6. hluti hinnar spennandi fram- haldssögu.
24 Litla leiðindaskjóðan — smásaga.
38 Öllu gamni fylgir nokkur alvara — Willy Breinholst.
48 Hafnfirðingurinn á Hallormsstaö — íslensk skopstæld smásaga.
ÝMISLEGT:
2 Margt smátt.
4 5. hluti sumargetraunarinnar — langar einhvern í vinning?
30 B. A. Robertson í Reykjavík — plakatkvnning.
32 Plakat — B. A. Robertson.
35 Ber er hver á bringu nema sér bindi eigi. Vikan kynnir bindi á spennandi hátt.
38 Stjörnuspá.
49 Eldhús Vikunnar.
51 Draumar.
VIKAN. Útgefandi: Hilmir hf. Ritstjóri: Sigurður Hreiðar Hreiðarsson. Blaðamenn: Anna Ólafsdóttir
Björnsson, Borghildur Anna Jónsdóttir, Jón Ásgeir Sigurðsson, Þórey Einarsdóttir. Utlitsteiknari:
Þorbergur Kristinsson. Ljósmyndari: Ragnar Th. Sigurðsson. RITSTJÓRN Í SÍÐUMULA 23, simi
27022. AUGLÝSINGAR: Birna Kristjánsdóttir, sími 85320.
AFGREIÐSLA OG DREIFING í Þverholti 11, simi 27022. Pósthólf 533. Verð í lausasölu 18,00 nýkr.
Áskriftarverð 60,00 nýkr. á mánuði, 180,00 nýkr. fyrir 13 tölublöð ársfjórðungsloga eða 360,00 nýkr.
fyrir 26 blöö hálfsárslega. Áskriftarverð greiðist fyrirfram, gjalddagar nóvember, febrúar, mai og
ágúst Áskrift í Reykjavik og Kópavogi greiðist mánaðarlega.
Um málefni neytenda er fjallað í samráði við Neytendasamtökin.
Forsíða
Með angan vors i vitum og vakn-
andi náttúruna í kring er freistandi
að stökkva út i straumvatnið og
láta svalann leika um sig. Stúlkan
heitir Þórhildur Kristjánsdóttir og
er sýningarstúlka í Módel
samtökunum. Sviðið? Það þekkja
auðvitað allir hér á suðvestur-
horninu: Kaldakvisl, á mörkum
Mosfellssveitar og Kjalarness.
Ljósm. Ragnar Th.
24. tbl. Vikan 3