Vikan - 11.06.1981, Blaðsíða 41
I
Fjölskyldumál
persónuleiki þegar maður er tvíburi. Það
er algengt að fólk sem umgengst tvíbura
geri úr þeim eina persónu og ávarpi þá
gjarnan sem tvíburana.
Þar sem eineggja tvíburar eru mjög
líkir eiga þeir yfirleitt enn erfiðara með
að verða að 'sjálfstæðum persónum en
tvieggja tviburar. Umhverfið
meðhöndlar gjarnan eineggja tvibura
eins og er stöðugt að rugla þeim saman.
Bent hefur verið á að ólík nöfn og
mismunandi fatnaður tvibura þegar frá
upphafi auðveldi eineggja tvíburum að
greina sig að, losa sig við spegilmynd
sina og skynja sig sem aðskildar
persónur. Eineggja tvíburar verða ltins
vegar sjaldan alveg „eins" persónuleikar
en |reir þróa gjarnan með sér ákveðið
hegðunarmynstur sem kentur fram i þvi
að þeir reyna að bæta hvor annan upp.
Oft er talað um hegðun eineggja
tvibura sem „utanríkisráðuneytið" og
„innanríkisráðuneytið". Það nterkir að
annar tvíburinn sér aðallega um tengslin
út á við en hinn sér um hlutina inn á við.
Vandamálið við slíka sérhæfingu er að
börnin verða ekki alhliða en mjög háð
hvort öðru og þvi að einhver annar hafi
alltaf með höndum ákveðin hlutverk.
Vissar hliðar ntannlifsins verða þvi
gjarnan ekki þróaðar eins og ef um
einburaværi að ræða.
Tvíeggja tvíburar eru ekki líkari en
önnur systkini. Þeir hafa þess vegna
meiri möguleika á þvi að vera meðhöndl
aðir sem tvær ólíkar persónur. En
tvíeggja tvíburar lenda oft ekki siður í
þvi en eineggja að vera likt saman og
stöðugt er verið að minna þá á að þeir
séu tvíburar. Foreldrar tvíeggja tvibura
eiga oft auðvelt með að meðhöndla þá
sem sérstaka einstaklinga en þeir kvarta
oft undan þvi að erfitt sé að fá aðra til að
gera það.
Samkeppni á milli tvíbura
Uppeldisaðstæður tvíbura eru einkunt
sérstæðar að tvennu leyti miðað við
uppeldisaðstæður einbura. í fyrsta lagi
verða tviburar að skipta á milli sín ást og
umhyggju foreldranna og i öðru lagi
hafa þeir alltaf félagsskap jafnaldra á
meðan þeir alast upp. Þessar staðreyndir
geta ýtt undir stöðuga samkeppni á milli
tvibura. Það er hins vegar sagt að
tvíeggja tviburar hafi meiri tilhneigingu
til þess að keppa innbyrðis en eineggja
tvíburar. Ástæðurnar til þessa eru
álitnar vera þær að eineggja tviburar eru
svo líkir að umhverfið leggi sifellt aðal
áhersluna á þetta líka útlit og það stuðli
ekki eins mikið að santkeppni eins og ef
sifellt væri veriðaðsegja hvað þeir væru
ólíkir. Tvíeggja tvíburar heyri hins vegar
stöðugt talað um hvað þeir séu ólikir og
það stuðli að samkeppni.
Það hefur verið til nokkurs konar
goðsögn um að tvíburar rífist næstum
aldrei. 1 viðtölum viðótalmarga tvibura-
foreldra hefur hins vegar annað komið í
Ijós. Þeir segja næstum allir að miklar
deilur geti verið milli tvíbura. Þetta á
þó sérstaklega við um litil börn. Tvibur
arnir geta rifist um margt svo sem
athygli foreldra, rifið leikföng hvor af
öðrum, hrint hvor öðrum og meitt og
svo framvegis. Sumum foreldrum hafa
fundist þessar deilur svo erfiðar að þeir
hafa reynt að koma á laggirnar nokkurs
konar „millimetraréttíæti" á heimilinu. Þá
er reynt að ákveða hvor fái að hafa þetta
eða hitt leikfangið, hvor eigi nú að fá að
fara í bað og svo framvegis. Mörgunt
foreldrum finnst erfitt að þurfa alltaf að
vera harðari og ákveðnari við annan
tvíburann til þess að reyna að verja
hinn gegn ágengni hans.
Ráðríki tvíbura
Flestir tviburaforeldrar tala um að
visst ráðriki hafi gert vart við sig frá
byrjun hjá börnunum og það hafi sést á
viðbrögðum þeirra. Algengt er að annar
tvíburinn sé á eftir í líkamlegum þroska
og það getur komið fram sem reiði og
pirringur hjá hinum þegar hann sér að
það gefur forskot, til dæmis ef annar
byrjar að ganga en hinn getur aðeins
skriðið. Þaðeru sérstaklega foreldrar tví-
eggja tvíbura sem ræða um að þeir hafi
orðið varir við visst ofríki frá byrjun.
Það má teljast alveg eðlilegt þar sent
meiri munur er á tvíeggja tviburum en
eineggja tviburum bæði í líkamlegu og
vitsmunalegu tilliti. Oft er álitið að
umhverfið, og þá sérstaklega foreldrar,
ýti undir þá tilhneigingu að annar
tviburinn taki forystuna. Ef foreldrarsjá
það frá byrjun að annar er alltaf á undan
hinum setja þeir þann tvíburann gjarnan
i hlutverk þess sem er duglegri eða fyrri
til. Bent hefur verið á að hægt sé að
vinna gegn slíku hegðunarmynstri þegar
frant i sækir með þvi að reyna að láta
tvibura eignast mismunandi vini.
Heillandi verkefni
Það er erfitt að eiga tvíbura og annast
unt þá báða. Það krefst mikillar
samvinnu foreldra eða hjálpar frá
nánasta umhverfi, ef ekki eru tveir tor
eldrar, til þess að annar aðilinn verði
ekki of þreyttur og útslitinn. En það er
eitthvað ótrúlega heillandi við að eiga'
tvíbura og það liggur einhver leyndar-
dómsfull örvun í því að takast á við áður
óþekkt verkefni.
Alltaf verður maður jafnhissa þegar
litið er á tviburana og maður segir við
sjálfan sig: „Ég trúi því varla enn að þeir
séu tveir." Og síðan: „Af hverju einmitt
ég," — með vissa vorkunnsemi i garð
annarra, vegna þess að himnafaðirinn
lætur ekki fleiri verða aðnjótandi þessa
undurs. k V
útihurðir)
Dalshrauni 9 Hafnarfirði Sími 54595
Útihurðir
— Bílskúrshurðir
Svalahurðir
— Gluggar og gluggafög
.☆
Berið saman verð og
gæði, hringið eða skrifið og
leitið upplýsinga.
☆
Sendum um allt
land