Vikan - 11.06.1981, Page 18
Texti: Örn Petersen
í síðustu Viku fjallaði ég um hin mismun-
andi kerfi í myndböndum, þróun þeirra og
útbreiðslu.
Að þessu sinni verður fjallað um
myndbandstækið sérstaklega án tillits til
þess kerfis er það styðst við.
Hvernig tengist myndbands-
tœki við sjónvarp?
I sumum sjónvörpum er
sérstakt myndbandsinntak en í
flestum tilfellum tengist loftnetið
beint í myndbandstækið sem síðan
tengist sjónvarpinu með sérstakri
snúru (sjá mynd). Myndbands-
móttaka sjónvarpsins er síöan
stillt inn á ultra-bylgju þess
(yfirleitt merkt UHF eða U), til
dæmis á efstu rás þess.
Upptaka úr sjónvarpi er aftur á
móti stillt inn á myndbandstækinu
sjálfu og er þar oft um sjélfvirka
stillingu að ræða.
Er myndbandstæki straum-
frekt og viðkvæmt tæki?
Hvað straumnotkun viðkemur
notar myndbandstæki vart meiri
straum en venjuleg Ijósaþera.
Flest myndbandstæki eru með
rafstýrðum rofum þannig að barn
ætti að geta meöhöndlað þau að
skaðlausu. Aftur á móti er mynd-
LOFTNET
MYNDBANDSTÆKI
SJÓNVARP
f
bandstæki viðkvæmt fyrir raka
enda ekki byggt með notkun utan-
dyra í huga. Til þeirra nota eru
framleidd sérstök ferðatæki sem
þola betur flutninga og notkun
utandyra.
Get óg fremleitt mitt eigið
skemmtiefni?
Til þess að svo megi verða
þarft þú að útvega þér sérstaka
tökuvél. Hún er ólík kvikmynda-
tökuvélinni að því leyti að hún
getur ekki starfað óháð heldur
þarf að tengja hana myndbands-
tækinu. En tæki þau sem hér hefur
fyrst og fremst verið fjallað um
eru ekki hönnuð með ferðalög í
huga enda bæði þung og viðkvæm.
Flestir framleiðendur mynd-
bandstækja hafa þvi einnig á
boðstólum sérstaka gerð feröa-
tækja sem eru létt og meðfærileg
og ganga fyrir rafhlöðum (sjá
mynd). Með þannig útbúnaði má
festa é myndband útileguna í
Þðrsmörk, stórveislur og íþrótta-
viðburði og sýna síðan beint í sjón-
varpinu heima.
Ekki er þó hægt að festa
dagskrá sjónvarpsins á mynd-
band með búnaði þessum, til þess
þarf sérstakt aukatæki
„Timer/Tuner" (klukkustilli)
(sjá mynd). Búnaður þessi verður
margfalt ódýrari en „venjulegt
stofutæki" en býður óneitanlega
Uþp á marga skemmtilega mögu-
leika og á eflaust eftir að leysa
kvikmyndatökuvélina af hólmi á
næstu árum.
18 Vikan 24. tbl.