Vikan - 11.06.1981, Síða 21
Myndbönd
Iceland
Color Broadcast Systems
in Each Nation
PAL system
SECAM system
NTSC(USA
— Kanada — Japan)
Ireland
Portugal
Spain
Norway
Dehmark
United
Kingdom
Netherlands
East
Germany
Poland
PelgiumY \fjest
Germany
Luxemtfurg
Czechoslovakia
Ftance
ltalia
Hungary
Vugoslavia
Finland
Rumania
Albantó
Greece
Motocco
Algería
Tunksia
O.StS>R.
Turkey
Get óg sent upptöku mína úr
landi?
Að senda kassettuna sjálfa er
leikur einn en möguleikarnir á því
að móttakandinn geti notað hana
eru því miður litlir. I heiminum er
nú notast við þrjú mismunandi
sjónvarpskerfi en þau heita PAL,
SECAMog NTSC (sjá mynd).
Eins og sjá má nota flest
nágrannalönd okkar sama kerfi
og notast er við hérlendis, þó með
þeirri undantekningu að í
Englandi er tónninn aðskilinn frá
myndinni á annarri tíðni en í
flestum öðrum PAL-löndum (eða
6 MHz í stað 5,5 MHz) og heyrist
því ekki tónn í kassettu sem fest er
á myndband í Englandi,- eða
öfugt, án sérstakrar breytingar á
tækinu.
SECAM kerfið er algerlega
ónothæft á Islandi þó svo að
litmynd þess byggist upp á jafn-
mörgum línum og PAL kerfisins
eða 625 linum pr. mynd. (
Bandaríkjunum, Kanada, Suður-
Ameríku og Japan er aftur á móti
stuðst við NTSC kerfi en það kerfi
byggist upp á 525 línum pr. mynd
og er því einnig ónothæft hérlendis
þó að hljómur komi ágætlega
fram. Það má því með sanni segja
að gervihnettirnir komi einu vanda-
málinu enn af stað í sambandi
við myndbandstæki, en þeir flýta
þó væntanlega fyrir sameiginiegu
sjónvarpskerfi um allan heim.
Það skal þó tekið fram að nú hin
síðari ár hafa fleiri framleiðendur
sjónvarpstækja lagt á það áhersiu
að framleiða sjónvarpstæki með
möguleika á móttöku tveggja ef
ekki þriggja þessara kerfa í huga.
Hve fullkomið mynd-
bandstœki á ég að velja?
Dýrustu myndbandstækin á
markaöinum í dag eru nánast of
fullkomin fyrir aðstæður hérlendis.
Nægir í því sambandi að benda á
12-16 rása móttökumöguleika og
14 daga forval. Aðrir kostir sem
framleiðendur hampa mikið eru
meðal annars snertirofar, sjálf-
virkur kaflaleitari, kyrr-mynd,
hægur/hraður sýningarhraði
(bæði áfram og afturábak),
sýning á mynd frá ramma til
ramma, Dolby kerfi (sem eyðir
suði), fjarstýring og þráðlaus
fjarstýring.
Þessa kosti verður þú sjálfur að
vega og meta eftir þörfum og efni
en byrjaðu ávallt á að velja þér
24. tbl. Vikan 21
l