Vikan


Vikan - 09.07.1981, Page 21

Vikan - 09.07.1981, Page 21
Menningarlíf til sveita t Hart í bak lék ég til dæmis guðs- manninn, ég hef vist aldrei losnað við guðsmanninn almennilega. En þegar Leikflokkurinn sunnan Skarðsheiðar sýndi Sjóleiðina til Bagdað samdi ég Ijóð um það atvik þegar fyllibyttan dregur konu inn fyrir: Víða eru vörpin mönnum vetrarsvellin hál : fallerí, fallera Einkum þó og sérílagi ef eru þeir við skál „Ég tel mikilsvert að við lœrum að meta landið okkar af þvi það er gott að vera hér. Við eigum sterka menningu sem við þurfum að varðveita og gæta." : fallerí, fallera Mannbroddinn ég mundi hafa með í hverri hættuför Kannski líka litinn pela, lundin létt og ör : fallerí, fallera falleri, falli ralli ralli ra Ég datt fyrir utan Samvinnubankann eitt sinn árla dags : fallerí, fallera Löggan kom þar óðara og æpti að mér köll : fyllerí, fyllerí Kannski þú vildir kæri vinur koma og fá þér væran blund eða okkur þá til afþreyingar ofurlitla stund : fallerí, fallera fallerí, fallí rallí rallí ra Þeir athuguðu heilan dag hvort hefði hreinan skjöld : fallerí, fallera Og hleyptu mér útum bakdyrnar alveg undir kvöld : fallerí, fallera Þeir ráðlögðu mér heilt og vel að hafa ekki meira slark ég lofaði upp á æru og trú en breytti strax í hark : fallerí, fallera fallerí, fallí rallí ralli ra Ég átti góða vinkonu og óðar þangað fór : fallerí, fallera Hún dró upp úr pússi sínu brennivín og bjór : falleri, fallera Síður vildi segja ykkur sögu hvernig nóttin gekk ég rumskaði undir morgun upp í dívan eða bekk : fallerí, fallera fallerí, fallí rallí rallí ra Augnablikin geta stundum örlögunum breytt : falleri, fallera Hún gat þó ekki á eftir sagt „Það gerðist ekki neitt” : failerí, fallera Talið er að til þess þurfi tvö í reynd að koma við ef að nýir einstaklingar ætla upp á svið : fallerí, fallera fallerí, fallí rallí rallí ra Svona geta svellin verið sumum mönnum hál : fallerí, fallera og dottið ofan í auða vök sem öðrum reynist hál : fallerí, fallera Hún segist hafa hliðið hjá sér hér á eftir öllum læst og opni það ekki aftur fyrr en einhvern tíma næst : fallerí, fallera fallerí, fallí rallí rallí ra. — Þið búið hér í návigi við járn- blendið. — Ég þótti dálítið frakkur I kjafti Jwgar umræðurnar um það stóðu sem hæst. En ég verð að segja eins og er að það virðist ekki eins stórfellt á því sviði sem maður var hræddastur við. Það er að sögn annars eðlis en til dæmis álverk- smiðjan. Þetta eru ósköp þægilegir grannar. Fólk I sveitinni hafði drjúgar tekjur af járnblendinu, þaðan var mikið peninga- streymi. Stundum hefur mér dottið í hug að þetta hafi verið eins og hálfgert gull- grafaralíf, kannski fremur á huglæga sviðinu. Sumir virðast jafnvel ekki komnir niður á jörðina ennþá. En menn jafna sig á þessu eins og hverju öðru. Áður fyrr drýgðu menn tekjur sínar með þvi að fara á sjóinn á Akranesi eða í bænum. Einstaka maður gerði út á grá- 28. tbl. Vikan 21

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.