Vikan - 09.07.1981, Síða 42
Falsarinn
þeir báðu um. Ég held að ég hafi veitt
þeim mikilvægar upplýsingar en þeir
héldu að þeir hefðu töglin og hagldirnar.
Þeir gátu látið leynilögreglu Castros vita
og ég hefði verið tekinn. Sennilega hefðu
þeir skotið mig. Eða sagt gyðingum til
mín. Ég vissi að þeir vildu ekki gera það.
Þeir gátu haldið áfram að nota mig.
Fyrir fjórtán mánuðum hafði fulltrúi
samtakanna tal af mér. Það var von á
flutningi og þeir vildu að ég sæi um
hann. Þeir sögðust sjá um allt, farseðil,
peninga, vegabréfsáritun — allt. Ég
hreifst af vegabréfinu. Þá gat ég komist
úr landi. Ég yrði ríkur, ef ég fengi borg-
unina, en ég var enn á valdi C.I.A. Ég
sagði þeim hreint út að ég héldi áfram að
vinna fyrir þá ef þeir hjálpuðu mér."
Von Haaz var jafnrólegur og öruggur og
áður þegar hann leit á kviðdóminn.
„Hverju svöruðu þeir?”
„Þeir sögðu bara allt í lagi. Þeir sögðu
að þeim stæði á sama þó að ég smyglaði
þúsund kílóum af heróini til Bandarikj-
anna ef ég héldi bara áfram að vinna
fyrir þá. Þetta varðaðsamkomulagi.”
Grafarþögn ríkti í herberginu.
„Hvers vegna ættum við að trúa
yður?”
„Vegna þess að ég get sagt í smá-
atriðum frá því sem ég gerði á Kúbu.”
„Var það svo dýrmætt fyrir Banda-
rikin?”
Von Haaz strauk sér um ennið áður
en hann svaraði. „Bandaríkjamenn vita
heldur fátt um starfsemi C.I.A. á Kúbu
og I öðrum heimshornum. Þeir hafa ekki
hugmynd um hve oft C.I.A. hefur fleytt
þeim að brunni heimsstyrjaldar. Þeir
vita hvorki eitt né neitt um mistök þeirra
og heimsku. Yfirleitt er öllum aðgerðum
þeirra haldið leyndum, m.a.s. fyrir Hvíta
húsinu. Þeir ráða i raun og veru lögum
og lofum.”
„Segið okkur hvað þér gerðuð fyrir
þá."
Von Haaz hneigði sig stirðlega.
„Eftir ófarirnar í Svínaflóa 1962 flugu
U-2 njósnaflaugar yfir kúbanska loft-
helgi. Þær tóku loftmyndir af eyjunni.
Þeim mistókst þó herfilega eins og vant
var," sagði von Haaz með fyrirlitningu.
„Hvernig? Var það slæmt?”
„Herfilegt,” sagði hann og brosti
háðslega.
„Hvers vegna?”
„Vegna þess að þeir misstu af komu
ME-flauga Sovétmanna.”
„ME-flauga?"
„Já, meðaldrægra eldflauga.”
„Hvernig vissuð þér af komu þeirra?”
42 Vlkan XS. tbl.