Vikan - 17.06.1982, Side 44
Fríða Björnsdóttir skrifar
smellir af
mim ■ *• - wmm
11 W JI
* að er svo sannarlega ekki
eintómur leikur og skemmtan aö
hafa dýr á heimilum. Oft heyrist
fullorðna fólkið segja að börnin
langi svo mikið í dýr — það sé svo
þroskandi að börn alist upp með
dýrum — og áður en við er litið er
komið dýr á heimilið. Það líður þó
venjulega ekki á löngu þar til öll-
um verður ljóst að vinnan við að
hugsa um dýriö lendir á fullorðna
fólkinu og börnin endast yfirleitt
ekki lengi til að annast það.
Hundum hefur fjölgað mikið í
þéttbýli undanfarin ár og þurfa
þeir jafnvel enn meiri umönnun og
umhyggju en mörg önnur heim-
ilisdýr. Þaö er til dæmis ekki hægt
aö opna dyrnar og hleypa hund-
inum út, eins og gert er við
köttinn, og bíöa svo þangað til
hann skilar sér seint og um síðir. í
þéttbýli þarf hundurinn manninn
með sér en einmitt það getur
verið einstaklega skemmtilegt.
Fólk hefur mikinn félagsskap af.
hundinum. Þegar hundurinn
kemur fyrst inn á heimilið þarf að
ýmsu að huga. Þaö sannast um
hann að lengi býr að fyrstu gerð.
Ef rangt er að farið í uppeldinu í
byrjun getur sambúðin orðið erf-
iö þegar fram í sækir. Guðrún
Guðjohnsen, formaður Hunda-
ræktarfélags Islands og mikill
áhugamaður um ræktun íslenska
hundsins, var fús að segja okkur
hvernig ætti að taka á móti litlum
hvolpi sem kemur inn á nýtt
heimili, en áður en hún byrjaði þá
lýsingu sagði hún:
Erum við tilbúin
til að fá hund?
„Það er ýmislegt sem fólk þarf
að hugleiða áður en hundurinn er
fenginn. Á að fá hund á heimilið?
Er tími til að sinna hundinum og
aðstaða til þess að bæta við nýjum
fjölskyldumeðlim? Er vilji hjá
allri fjölskyldunni, sérstaklega
pabba og mömmu, að bæta á sig
12—15 ára vinnu og umhyggju
fyrir hundi. Já, og í sumum til-
fellum getur þetta jafnvel orðið
19—20 ára vinna.
Og það er fleira: Hundar fara
úr hárum tvisvar á ári og hundar
sem eru á heimilum — í hlýjum
húsakynnum — fella meira og
minna háriö allt árið. Þeir verða
stundum veikir, fá til dæmis í
magann — niöurgang og uppköst
— eins og gengur og þá gerast
slys innan dyra, af því að við
vorum ekki nógu fljót að skynja
líðan hundsins. Hvað með sumar-
fríin? Ekki er alltaf hægt að taka
hundinn meö sér í frí. Þessi og
mörg önnur atriði þarf að íhuga
vel áður en farið er út í að fá sér
hund.”
„Hvenær má taka hvolp frá
móðurinni og hvað á að gera þegar
hann kemur fyrst i sitt nýja heim-
kynni?"
„Hvolpinn má alls ekki taka frá
móðurinni fyrr en hann er oröinn
átta vikna. Oft lætur fólk hvolpa í
burtu fyrr og segir þá gjarnan að
þeir séu famir að éta sjálfir og sé
ekkert að vanbúnaði. En hvolp-
urinn þarf að læra fleira en að
nærast sjálfur og það lærir hann
einmitt af því að vera með móður
sinni og systkinum sem lengst og
ekki skemur en þessar átta vikur.
Þegar komið er heim með nýj-
an hvolp er mikilvægt aö gera það
á þeim tíma sem fólk getur sinnt
honum. Það á að velja tímann
með tilliti til þess að heimilis-
fólkið, það er að segja þeir full-
orðnu, geti sinnt hvolpinum.
44 Vlkan 24. tbl.