Vikan - 16.09.1982, Qupperneq 3
Margt smátt
HALL VARÐUR UMBI
Umsjón: Árni Daníel Júlíusson
Hallvarður heitir ungur
maður. Sá er umboðsmaður
fyrir popphljómsveitir. Aðal-
starf hans er aö sjá um að
skipuleggja hljómleika og
dansleiki þá sem Egó spilar á
en annars hafa margar hljóm-
sveitir notið góðs af starfi
hans. Meðal annars skipulagði
hann rokkhátíð '82 sem fór
fram á Hótel Borg og í Austur-
bæjarbíói í Reykjavík seint í
j ú I í.
Sú hátíð tókst mjög vel, um
1400 manns sóttu hljómleika
með Egó, Grýlunum, Tappa
Tíkarrassi, Vonbrigöum,
Purrk Pillnikk, Reflex, Jonee-
Jonee, Q4U og Fræbbblunum.
Ég hitti Varða, eins og hann
er kallaður, niðri á Kaffitorgi,
setri litlu menningarmafí-
unnar í bænum. Hann sagöist
ekki hafa verið nógu ánægður
með staðarval rokkhátíðar,
Borgin væri orðin þreyttur
staður.
— Ég hefði heldur viljað fá
annað húsnæði, Hafnarbíó eða
Lindarbæ. Það er mín reynsla
aö það sé li'tiö mál aö komast
inn, það skiptir aðeins máli
hver maðurinn er sem biður
um.
Hallvarður er í fullu starfi
sem umboðsmaður.
— Ég fer núna að starfa
fyrir SATT sem ætla að hefja
reglulegt hljómleikahald og
bæta við húsnæði. Einnig er
Nefs að fara af stað á ný. Ég
held aó það hafi alveg vantað
umboðsmann í bransann. Það
er mikil þörf á slíkum manni.
— Fólk hefur tilhneigingu til
aöafskrifa alla hljómleika sem
pönkhávaða. Það er auðvitað
kolrangt. Markmiðið með
rokkhátíðinni á Melavellinum í
ágúst var meðal annars að
breyta því.
Hvað er pláss fyrir margar
atvinnuhljómsveitir hér á
landi?
— Það er pláss fyrir svona
1—2 hljómleikagrúppur og lík-
lega 15 danshljómsveitir í fullu
starfi. Hlutirnir eru ekki gerðir
of auðveldir. Miðaverð á rokk-
hátíðinni var t.d. 95 krónur og
þar af komu aöeins 40 krónur
til skipta milli hljómsveita,
fyrir kostnað við söngkerfi og
annað slíkt sem lýtur að músík-
inni.
Að svo mæltu var Varði
rokinn, hafði nóg að gera.
í þessari Viku
37. tbl. 44. árg. 16. september 1982 — Verð kr. 45.
GREINAR OG VIÐTÖL:
4 I garöinum — sumar, vetur, vor og haust.
8 Fjögur ljóöskáld: Anton Helgi Jónsson, Bergþóra Ingólfsdóttir, Elísabet Þorgeirsdóttir og Þórarinn Eldjárn.
14 Ofbeldi í sambúð — Álfheiður Steinþórsdóttir skrif- ar um fjölskyldumál.
18 Gæsaveiðar.
30 Hálft í hvoru.
40 Listakonan í hjólastólnum.
SÖGUR:
22 Feluleikur, 4. hluti framhaldssögunnar æsispenn- andi.
42 Listin að láta lítið fyrir sér fara. Fimm mínútur meö Willy Breinholst.
46 Einbúinn — smásaga.
ÝMISLEGT:
2 Margt smátt.
16 Banastuö á þjóðhátíð í Eyjum. Myndafrásögn.
28 Fyrirtaks peysa — úr afgöngum. Handavinna.
34 Kvikmyndir og fleira.
36 Svipmyndir frá Sikiley. Myndafrásögn.
42 Stjörnuspá.
49 Gæs í eldhúsi Vikunnar.
51 Draumar.
62 Pósturinn.
VIKAN. Útgefandi: Hilmir hf. Ritstjóri: Sigurður Hreiðar Hreiðarsson. Blaðamenn: Anna Olafs-
dóttir Björnsson, Borghildur Anna Jónsdóttir, Hrafnhildur Sveinsdóttir, Jón Asgeir
Sigurðsson, Jón Baldvin Halldórsson, Þórey Einarsdóttir. Utlitsteiknari: Sigrún Harðardóttir.
Ljósmyndari: RagnarTh. Sigurðsson.
RITSTJORN SÍÐUMULA 23, simi 27022. AUGLYSINGAR: Geir R. Andersen, simi 85320.
ÓK MEÐ HANA í GEGNUM
BORGINAINN A DAGBLAÐ
Skyldu hænur bæjarins hafa elt?
oag»i acxo - vivj« m.'im. -nmuo MHUuoAOoat vi
Skreið fyrir hálfan
annan milljarð óseld
Margur hefði skriðið fyrir minna fé, seldur eða óseldur!
AFGREIÐSLA OG DREIFING i Þverholti 11, sími 27022, pósthólf 533. Verð í lausasölu 45 kr
Askriftarverð 150 kr. á mánuði, 450 kr. 13 tölublöð ársfjórðungslega eða 900 kr. fyrir 26 blöd
hálfsárslega. Áskriftarverð greiðist fyrirfram, gjalddagar nóvember, febrúar, mai og ágúsi
Áskrift í Reykjavik og Kópavogi greiöist mánaðarlega.
Um málefni neytenda er fjallað í samráði viö Neytendasamtökin.
Forsíöa
Tvær gervigæsir og ein uppstopp-
uð. Sverrir Scheving Thorsteinsson
sér gæsir koma og PLAFF!! Við
skjótumst á blaðsiðu 18, þar er heil-
mikið um gæsaveiðar á tveim opn-
um, þaðan á 50 og lesum okkur til
um hvernig gæsir eru matreiddar í
eldhúsi Vikunnar. Namminamm!
37. tbl. Vikan 3