Vikan - 16.09.1982, Qupperneq 31
Opnuplakat
átaka- eöa æsitónlist en ljúf og
áheyrileg fyrir eyru hvernig sem
þau eru á sig komin eöa af guði
gerð.
Vettvangur Hálft í hvoru hefur
eðlilega verið hér á landi. Áöur
var getið mikilla ferðalaga um
landiö. Kannski man hka einhver
eftir flutningi hópsins í skemmti-
þætti í sjónvarpi um hvítasunnuna
síðustu. Raunar er synd aö á þeim
vettvangi skuli hann ekki hafa
veriö meira áberandi.' Þar á
áhugaleysi innan stofnunarinnar
mesta sök, í fyrrahaust mun sjón-
varpið hafa fengið myndband sem
tekið var á tónleikum. Spólan var
aldrei skoöuð, hvernig sem á því
stóð.
Nú um mánaðamót júlí-ágúst
kom Hálft í hvoru fram á mikilli
vörusýningu sem haldin var í bæn-
um Piteá í Norður-Svíþjóö. Þetta
er ein stærsta vörusýning sem
haldin er í Svíþjóð. Ein af
ástæðunum fyrir boðinu er sú aö
Gísli Helgason er nokkuð þekktur í
Svíaríki síðan hann dvaldi þar
þrjú sumur við tónlistarflutning
ásamt Hanne Juul og Guðmundi
Ámasyni. Þrenningin sú fékk
reyndar eitt sinn 1. verðlaun á
stórri, sænskri þjóölagahátíð.
Þama á vörusýningunni kom
Hálft í hvoru margsinnis fram á
þeim þrem dögum sem hópurinn
var ráðinn til að skemmta. Hann
hafði sérstakan söngpall sem vildi
svo til að var við hliðina á „Volvo
ski-show” sýningarhópnum. Af
þeirri sambúð nutu íslendingarnir
að sjálfsögðu góðs og því líka að
tónlistarhópar frá hinum Norður-
kollulöndunum létu allir að mestu
nægja að leika á hljóðfæri en Hálft
í hvoru kirjaði sína íslensku
söngva af raust þrátt fyrir 25 stiga
hita og sól, pallurinn var nefnilega
úti.
Auk þessa pallsöngs kom sveitin
sérstaklega fram við opnunarhá-
tíö sýningarinnar og á norrænum
degi sem einnig tengdist sýning-
unni. Á útleiðinni var komið við í
Stokkhólmi og haldnir stuttir
kvöldtónleikar á Musebakken sem
er einn þekktasti vísnavinastaöur-
inn í þeirri borg. Viðtökur þar
voru geysigóðar. Nú þegar eru
hafnar athuganir á möguleikum
varðandi næstu utanlandsför. Þar
hafa frændur vorir Færeyingar
víst mikla möguleika.
Hálft í hvoru hefur allan sinn
aldur starfað sem 6 manna flokk-
ur en nú er orðin þar breyting á.
Bergþóra Ámadóttir hefur haldið
út á sólóbrautina fyrir alvöru og
fer sannarlega ekki af stað með
rykkjum eins og þeir vita sem
hafa hlustað á nýju plötuna henn-
ar, Bergmál. Annars er Bergþóra
löngu kunn í tónlistarlífinu, bæði
ein og sér og sem liðsmaður í Hálft
í hvoru. Henni verða án efa allir
vegir færir.
Nú hefur þannig fækkað um einn
og karlveldið orðiö algjört, hversu
lengi sem það stendur. Kannski fá
þeir sér einhverja góða konu til að
fylla í skarðið sem Bergþóra skildi
eftir sig, en það verður varla auð-
velt. Bergþóra er afar afkastamik-
ill lagahöfundur auk þess að hafa
sjarmerandi söngrödd en
strákamir ættu þó varla að guggna
því allir setja þeir saman lög.
Fæstir eiga að vísu stórbrotinn
tónlistarferil að baki en leyna þó á
sér. Hér eru nokkrir dropar úr
sjónum þeim:
Gísli Helgason er sá eini sem
hefur langa og mikla tónlistarsögu
að baki þó hann standi aðeins á
þrítugu. Sú saga er flestum kunn.
Sem dæmi um hversu lengi Gísli
er búinn að vera í þessu er lítil
saga úr ferð Hálft í hvoru til Nes-
kaupstaðar í fyrra. Þar var gist á
hóteli staðarins og eins og lög gera
ráð fyrir skrifað í gestabók. Gísli
hafði orð á því að þennan stað
hefði hann áður gist og var fariö
að kanna máliö í bókinni. í ljós
kom að nákvæmlega 14 árum
áður, upp á dag, höfðu þeir bræður
Gísli og Arnþór gist á hótelinu.
Það var í landsreisunni miklu þeg-
ar þeir fóru staö úr staö og
skemmtu fólki með flautu- og
orgelleik. í fyrra kom út plata
þeirra, I bróðemi.
Ingi byrjaði sem „gospel-söngv-
ari” og söng trúarlega söngva
með félaga sínum, Oddi Alberts-
syni. Þeir fóru meöal annars út
um land á vegum æskulýðsstarfs
þjóðkirkjunnar og frömdu músík í
kirkjum, elliheimilum og skólum.
Þetta var árin 1976 og 1977. Ári
seinna voru þeir hættir en Ingi fór
í amerísku sveitatónlistina þegar
Texastríóið fæddist.
Örvar er skáti að uppruna og al-
gjör skáti í eðli og athöfn eins og
sagt er um hann. Hann er tvíburi
og með bróður sínum og öðrum
bræðrum, þó ekki tvíburum, stofn-
aði hann hljómsveitina Bræðra-
bandið. Það starfaði aðallega í
Snekkjunni í Hafnarfirði og innan
skátahreyfingarinnar. Örvar fór
beint úr Bræðrabandinu yfir í
Texastríóið þegar það var stofnað.
Eyjólfur er sennilega þekktast-
ur hjá þeim sem hann hefur stuð-
að upp úr skíðaskónum í
Kerlingarfjöllum! Þarhefurhann
starfað sem skíðakennari í fjölda-
mörg ár en á kvöldin, þegar skíðin
eru komin í geymslu, grípur hann
gítarinn og stjórnar Kerlingar-
fjallasöng af miklum móð. Aöal-
stuðkarl Kerlingarfjalla, segja
sumir.
Aðalsteinn Ásberg er frægastur
fyrir að vera eitt af nútíma-
skáldunum okkar. Hann hefur gef-
ið út nokkrar ljóðabækur og á
einnig allmarga lagatexta á
hljómplötum. í tónlistinni byrjaði
hann árið 1977 og var þá að vísu
búinn að vera nokkurn tíma í
Vísnavinum. Þetta ár var haldið
vísnakvöld í Tónabæ þar sem voru
færri áhorfendur en flytjendur. í
salnum var fólk sem var að leita
að söngvara í „Light nights”,
sumarleikhúsið sem heldur úti
sýningum á ensku fyrir ferða-
menn. Aðalsteinn fékk starfið og
lék og söng um sumarið ásamt
tveim öðrum. Þau þrjú komu auk
þess fram utan leikhússins sem
4ra manna tríóið Nema hvað.
Aðalsteinn stofnaði síðan Tríó tú-
kall með Gísla og Bergþóru.
í vetur ætlar Hálft í hvoru aö
starfa af fullum krafti. Fyrir ligg-
ur að fara á Norðurland um
mánaðamótin september-október
og koma eftir það fram í skólum, á
árshátíðum, þorrablótum og öðr-
um mannfagnaði eftir því sem
fólk vill. Á næsta ári er stefnt að
gerð nýrrar plötu og einhverjar
hugmyndir munu vera að fæðast
um stóra og mikla landsreisu í ná-
inni framtíð.
37. tbl. VIKan 31