Vikan - 16.09.1982, Page 36
| IMg
g
i ■
Hve margir Islendingar skyldu
hafa farið til Sikileyjar í fyrra?
Áreiðanlega ekki margir. Ferða-
lag þangaö var dýrt og fyrir-
hafnarsamt. Odýrasti kosturinn
að fara til nágrannalanda og kom-
ast þar í hópferðir eða vera ungur
og nota mánaöarmiöa í járn-
brautarlestir (sem ekki eru
loftkældar á Sikiley) og farfugla-
heimili.
I ár fara mörg hundruð íslend-
ingar þangað. Sikiley er komin á
hópferðakortið og vonandi veröur
hún þar áfram. Á Sikiley er margt
að sjá. Þar er hægt að finna það
sama og á öðrum sólarströndum:
sól, hita og sjó. Diskótek og önnur
dans- og áthús. Nóg af nútíðinni og
stutt í fortíðina, hvort sem er náin
fortíð með hjarðmann úti í haga
og handsnúna saumavél eða forn-
eskju gamalla rústa, frá blóma-
tímum grískrar menningar, áður
en nokkur vissi að Kristur myndi
fæðast. Og rómverskar rústir eru
nánast hversdagslegar.
Þaö er meira að segja hægt að
horfa á nýjustu hátíðarkvikmynd-
irnar í eldgömlu grísk-rómversku
hringleikahúsi. Leikir mannanna
hafa breyst en enn eru menn að
horfa á aðra menn drepna af
áhorfendapöllum. Munurinn sá
einn að sá sem drepinn er á hvíta
tjaldinu en ekki borinn út að leik
loknum. Það er bara slökkt á
honum.
Hér eru nokkrar svipmyndir frá
Sikiley austanverðri. Engin tæm-
Mósaíkmynd af Mariu og barninu i
Taormina-hliðinu á aðalgötu
Taormina. Mósaikunnendur fara
tæpast fýluför til Sikileyjar og í
stærstu borginni, Palermo, er víst
hætt við að þeir verði innlyksa. Á
aðalgötu Taormina, Corso
Umberto, er hægt að ná áttum eftir
hliðunum. Nyrst er Messinahliðið
eftir næstu stórborg i norðri, síðan
staðarhliðið og loks Catania-hliðið
eftir næstu stórborg í suðri, þeirri
svörtu Catania, þar sem húsin eru
svört og byggð úr hrauni Etnu og
fleira svart því í einni götunni kvað
vera hægt að panta stórrán á
mönnum og fjármunum eða jafnvel
eitthvað verra. Sænskur fararstjóri
sá reyndar ástæðu til að segja
löndum sinum nafnið á götunni. ...
Horft af áhorfendapöllum á grisk-rómverska leikhúsinu i Taormina. Þetta
ieikhús er næst-stærst slikra á Sikiley. Á 3. öld fyrir Krist horfðu Hellenar á
gríska harmleiki eða gleðileiki af þessum pöllum, um það bil sem timatal
okkar hefst er hér rómverskt leikhús með öllu sem því fylgir og enn er fólki
boðið upp á „brauð og leiki" þvi allt sumarið er iðandi listalif i þessu
leikhúsi. í júlílok ár hvert er til dæmis vegleg kvikmyndahátið, þrjár myndir
sýndar á hverju kvöldi og i sumar mátti sjá Útlagann (II bandito) á hvita
tjaldinu, höggva mann og annan, einhvern tíma eftir miðnætti.
Þegar maður heyrir um goðsagnabrunn tekur maður það ekki svona
bókstaflega. í Siracusa er goðsagnabrunnurinn hins vegar mjög jarð-
neskur að sjá. Þjóðsagan segir að árguðinn Alfeus hafi verið yfir sig ást-
fanginn af dísinni Arethusa. Artemis breytti henni í gosbrunn og þar náði
elskhuginn að sameinast henni í árliki. Virgill, Pindar og Ovid ortu mikil
Ijóð um þennan stað, en hann hefur breyst mikið síðan þeir heilluðust af
staðnum . . . hann er þó enn fagur. Sefið í brunninum er papírus.
Castel Mola er þorp i nær 700
metra hæð yfir sjó, á Monte
Tauro ofan við Taormina. Þangað
fara ferðalangar til að átta sig á
staðháttum, dreypa á möndluvíni
og Iíta á fallega gripi eins og
þessa.
andi úttekt á því sem þar er að sjá
heldur einungis skoðun. Og auö-
vitað skoðun eins ferðalangs.
Aðrir kunna að hafa aðrar skoð-
anir. Það er kannski það besta við
ferðalög, enginn sér sama land
sömuaugum.
Þröngar og brattar göturnar i
Taormina eru óendanlegt mynd-
efni. Bærinn er gamall að sjá og
timinn sýnist hafa staðið kyrr um
leið og vikið er út af aðalgötunni
þar sem tiskuverslanirnar koma
upp um árið og árstíðina.
Glottandi andlit eins og þetta er
víða að sjá á þjóðminjasafninu.
Þetta voru nokkurs konar verndar-
vættir í skrímslaliki sem ef til vill
áttu að halda illum öndum úti fyrir
húsunum. Þjóðminjasafnið er svo
fullt af fornminjum að fólk hefur
varla við að trúa, svo notað sé orða-
lag sem flestir þekkja. Þarna eru
gamlir grískir vasar, furðu vel varð-
veittir, styttur og myndir af öllu
tagi — ofgnótt ef eitthvað er — og
allt þó svo merkilega fallegt.
36 Vikan 37. tbl