Vikan


Vikan - 16.09.1982, Side 62

Vikan - 16.09.1982, Side 62
POSTIKIW Þetta sem maður notar í stað dömubinda Elsku besti Póstur. Mig langar til ad frœdast um... œ, ég er búin ad gleyma hvaö þad heitir. Þad er þaö sem maður notar í stad dömubinda. Viltu svara þessu fyrir mig. 1. Hvaöa tegund er best? 2. Hve lengi má hafa einn tappa í einu ? 3. Má synda rneö hann ? 4. Er œskilegt fyrir mig, 15 ára, aö nota tappa ? 5. Hvernig losar madur sig vidhann, t.d. ískóla? Virdingarfyllst, 17567 „Þetta sem maður notar í stað dömubinda” kallast tampoon á ensku og tampon á Norðurlandamál- unum og eru þau orð stund- um notuö hér á landi. Margir kalla þetta „tappa” eða „túrtappa” og er hvort tveggja ágætis orð. Bóm- ullartappar þessir eru þægilegir í notkun. Þeir eru settir inn í leggöngin og sést þá ekkert utan á. Þeir eru því sérlega heppilegir þegar konur klæðast mjög létt eins og til dæmis við sund eða aðrar íþróttaiðk- anir. Ef tapparnir eru not- aðir í sundi þarf að skipta um strax og komið er upp úr. Pósturinn mælir aldrei með einni vörutegund öðrum fremur en bendir þér á aö nota litla tappa, eða svokallaða míni-tappa, á meöan þú ert svona ung. Tappanotkunin er ekki alveg gallalaus. Þar sem þeir drekka í sig raka úr leggöngum geta þeir þurrk- að þau upp ef þeir eru not- aöir oft. Ef leggöngin þorna um of er meiri hætta á sveppagróðri og útferö frá leggöngum. Einnig eru gegndrepa túrtappar gróðrarstía fyrir sýkla og geta þeir valdið sýkingu. Því er nauðsynlegt aö skipta oft um tappa. Þegar blæöingarnar eru mestar verða tapparnir fljótlega gegndrepa og því þarf að fylgjast vel meö til þess að ekki fari allt á flot. Ágætt er aö nota bindi meö töpp- unum þegar flóðið er sem mest. Einnig ættu konur aldrei að sofa með tappa en nota heldur bindi yfir nótt- ina til þess að koma í veg fyrir áðurnefnda ofþurrkun og sýkingu. Á öllum kvennaklósett- um eiga skilyrðislaust aö vera ruslakörfur fyrir bindi og tappa. Það hlýtur aö vera í skólanum þínum líka. Sumir setja bómullar- tappana í klósettið og á það að vera í lagi í nýrri húsum þar sem frárennslispípur eru víöar og lítil hætta á stíflun. En að öllu jöfnu ættu konur frekar að venja sig á að fleygja töppunum í ruslakörfur. Dömubindi má hins vegar aldrei setja í klósettin. Athugasemd Póstinum hefur borist mjög mikiö af bréfum í sumar sem eru einungis merkt með dulnefnum og svoleiðis bréfum svarar Pósturinn ekki. Mörg þess- ara bréfa eru hin áhuga- verðustu en eitt skal yfir alla ganga og þeim því ekki svaraö. Pósturinn vill að honum sé sýnt traust og biður fólk því aö skrifa nafn sitt og heimilisfang á bréfin. Enginn kemst í bréfin nema Pósturinn sjálfur og hann hefur ævin- lega varðveitt öll nöfn eins og hernaöarleyndarmál. Sumsé — fullt nafn og heimilisfang á bréfin. Hann er í Bodies (ekki lengur) Kceri Póstur. Þakka geggjad blaö. Eg er hér med vandamál handa þér aö leysa. Eg er svo hryllilega hrifin af strák sem er í hljómsveit- inni Bodies, ég er ekki viss hvaö hann er gamall né hvaö LUKKUPLATAN Um nokkurt árabil hefur hún glatt hjörtu manna með sinni fallegu rödd og lögum við Ijóð islenskra skálda. Hún söng með sönghópn- um HÁLFT í HVORU, á ættir að rekja austur fyrir fjall og heit- ir. . .? Skrifið nafn hennar hér fyrir neð- an og ..eistið þess að vinna nýj- ustu plötuna hennar. Myndin sýnir _____________________________________ Sendandi er:______________________________________ Heimiii __________________________________________ Póstnúmer____________________Póststöð_____________ Utanáskriftin er: VIKAIM, lukkuplatan '82 — 37 PÓSTHÓLF 533,101 REYKJAVÍK. Lukkuplatan 31 Vinningshafar Hljómsveitir sem myndin var af er Úlvarnir. Dagný Erlendsdóttir, Birkivöllum 30, 800 Selfossi. Björg Guðmundsdóttir, Furugrund 74, 200 Kópavogi. Ásgrímur Hinriksson, Eyrarbraut 22, 825 Stokkseyri. hann heitir. Ég á plakat med þeim. Ég 62 Vikan 37. tbl.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.