Vikan - 10.02.1983, Side 2
í þessari Viku
6. tbl. — 45. árg. 10. febrúar 1983. — Verð kr. 55.
GREINAR OG VIÐTÖL:
4 Með eigin bíl til Evrópu — og lúxussigling í báða
enda.
20 „Engin ástæða til að fara um emjandi...” —
skíðaleiðbeiningar.
26 Bardot — fórnardýr frægðarinnar?
29 Dagur í lífi Q4U — viðtal við hljómsveitarmeðlimi.
40 Rís þú unga íslands rokk — rokkþáttur.
SDGUR:
12 Leiksoppur — ný framhaldssaga.
38 Jaröarförin í Black Fork — Willy Breinholst.
42 Snjóflóð — framhaldssagan, sögulok.
ÝMISLEGT:
8 Einfaldir grímubúningar.
25 Hildur — sjónvarpskynning.
32 PLAKAT — Q4U.
36 Handavinna: Trúðatískan á litlu krílin.
49 Eldhús Vikunnar
piparsósu.
lambamedalíur með
62 Pósturinn.
VIKAN. Útgefandi: Hilmir hf. Ritstjóri: Sigurður Hreiðar Hreiðarsson. Blaðamenn: Anna Olafs-
dóttir Björnsson, Borghildur Anna Jónsdóttir, Hrafnhildur Sveinsdóttir, Jón Asgeir
Sigurðsson, Jón Baldvin Halldórsson, Þórey Einarsdóttir. Útlitsteiknari: Sigurbjörn Jónsson.
Ljósmyndari: Ragnar Th. Sigurðsson.
RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 23. simi 27022. AUGLÝSINGAR: Geir R. Andersen, simi 85320.
AFGREIÐSLA OG DREIFING í Þverholti 11, sími 27022, pósthólf 533. Verð í lausasölu 55 kr.
Áskriftarverð 180 kr. á mánuði, 540 kr. 13 tölublöð ársfjórðungslega eða 1.080 kr. fyrir 26
blöð hálfsárslega. Áskriftarverð greiðist fyrirfram, gjalddagar nóvember, febrúar, maí og
ágúst.
Askrift í Reykjavík og Kópavogi greiðist manaðarlega.
Um málefni neytenda er fjallað i samráði viö Neytendasamtökin.
Forsíðan:
Á myndinni er þaulvanur göngu-
skiðakappi, Ágúst Björnsson. í
blaðinu fjöllum við um val og kaup
á skiðabúnaði. Hvernig skó?
Hvernig bindingar? Hvaða skiði?
Skiptir máli hvort maður er vanur?
Öllum þessum spurningum svörum
við í blaðinu. Verslunin Sportval
lánaði okkur fötin sem Ágúst
íklœðist á forsíðunni.
Ljósmynd: Ragnar Th.
Bleiki pardusinn
snýr aftur aftur
tp*'
Þegar Peter Sellers lést, áriö
1980, töldu menn að þar meö væri
lokiö kvikmyndunum um Bleika
pardusinn og Clouseau lögreglu-
mann, því eins og segir í tíma-
ritinu Movies & Video voru þeir
Peter Sellers og Clouseau
„jafnóaðskiljanlegir og egg og
beikon, Gög og Gokke, þrumur og
eldingar”.
En þrátt fyrir allt hefur ný
mynd um Bleika pardusinn nú
litið dagsins ljós og með hlutverk
Clouseau leynilögregluforingja
fer enginn annar en Peter Sellers
sjálfur. Ekki gat hann þó komið að
handan, blessaður karlinn, þótt
fjölhæfur væri. Myndin saman-
stendur af gömlum upptökum frá
því verið var aö gera fyrri myndir
um Bleika pardusinn, en þá varð
að fórna mörgum góðum atriðum
tímans vegna. Blake Edwards,
sem gert hefur fyrri myndirnar,
og sonur hans, Geoffrey, fengu
hugmyndina aö því aö tengja
bútana saman með einhverjum
þræði og fá nýja kvikmynd.
Myndin hlaut heitiö The Trail Of
The Pink Panther og er sjötta
myndin um Bleika pardusinn.
Myndin segir frá því aö Clouseau
rannsakar hvarf demantsins
Bleika pardusins sem hefur verið
stolið, enn einu sinni. Clouseau
hverfur síðan sjálfur. Frönsk sjón-
varpsfréttakona vinnur að þætti
um líf hins óviðjafnanlega leyni-
lögreglumanns og tekur í því
sambandi viðtal við ýmsa þá sem
höfðu mikið af honum að segja.
Mafían vill alls ekki aö Clouseau
finnist og lætur því fylgjast með
fréttamanninum. Þrátt fyrir
hótanir mafíunnar lætur hún sér
ekki segjast og loks hefur hún uppi
á föður Clouseau sem getur sagt
henni óborganlegar sögur af syni
sínum. Faðirinn er leikinn af
Richard Mulligan sem er betur
þekktur sem Burt í Löðri.
The Trail Of The Pink Panther
hefur ekki fengið góða dóma í
erlendum blöðum. Atriðin með
Sellers sjálfum þykja skemmtileg
og mörg hver mjög fyndin en í
heild þykir myndin sundurlaus.
Peter Sellers var aldrei ánægður
með það sem hann gerði fyrr en
það var orðið óaðfinnanlegt. Því
telja sumir hann myndu snúa sér
við í gröfinni ef hann vissi hvað
væri aö gerast. Margir meina þó
að þáttur Sellers í myndinni sé
fallegur virðingarvottur við hinn
látna leikara, en það hefði mátt
gera beturí styttri heimildarkvik-
mynd fyrir sjónvarp.
En aðdáendur Peter Sellers láta
sig örugglega ekki vanta á
myndina og þótt menn hlæi dátt er
ekki laust við aö kökkur komi í
hálsinn við tilhugsunina um að
þetta er örugglega síðasta mynd
Peter Sellers.
2 Vikan 6. tbl.