Vikan - 10.02.1983, Blaðsíða 18
FRA MHALDSSA GA
haföi upp á vinskapinn með henni
og Frank, nýjasta vinningshafan-
um, var rétt aðeins möguleiki aö
hún væri ekki upptekin eitt kvöld
eða svo og hefði ekki á móti ókeyp-
is máltíð og svolitlu kvennatali.
Þegar Lindy hafði komist að þess-
ari niðurstöðu var Maureen að
ganga út úr skrifstofunni meö
töskuna á öxlinni og glaöklakka-
legum kveðjuorðum yfir hópinn.
Þá náði það ekki lengra. Hún hafði
ekki hug á að bjóða öðrum.
Brenda var of klunnaleg, of út-
hverf, yfirþyrmandi í litlum húsa-
kynnum. Það væri eins og að elda
mat í fornaldarskrímsli. Gillian
hefði kannski þegið boðið en hún
var svo litlaus.
Auk þess var sambandi Lindy
ekki þannig háttað við neina
þeirra að hún gæti sagt: „Komdu í
mat heima hjá mér og við getum
hlustað á plötur.” Sumir gátu
talaö svona. Hjá öðrum hljómaði
þaö sem innantóm misnotkun
orða, sem það og var. Hún teygði
sig eftir golftreyjunni sinni og
fann um leið til léttis yfir að þessi
skyndihugdetta hennar hafði
runnið út í sandinn.
Þessi tilfinning skaut henni
skelk í bringu. Var það ekki ein-
mitt með þessu sem fólk varð
önugt og uppþornað um aldur
fram? Sérstaklega kvenfólk. Þeg-
ar sérhver tilhugsun um sam-
skipti virtist of fyrirhafnarmikil,
bindandi og flókin. Hún mátti
ekki, mátti ekki leyfa þess háttar
tilfinningum að fá yfirhöndina.
Meö haustinu skyldi hún taka
kvöldskólana til alvarlegrar íhug-
unar.
Það var þungt loft í dagstofunni.
Hún opnaði gluggann og horföi
yfir nýslegna grasflötina yfir að
bílskúraröðinni, en hinum megin
við hana höfðu nýlega skotiö upp
kollinum tvær húsaraðir á vegum
borgarinnar. Hún hafði gert sér
ferð þangað þegar þær voru full-
gerðar til að skoða verkið. Þrjú
svefnherbergi. Bað. Stofur.
Þannig voru upplýsingar umboðs-
mannsins. Rúmgóð setustofa með
rennihurð út á pallinn, mið-
stöðvarhitun. Þessar gulleitu
múrsteinsbyggingar borgarinnar
báru keim af hinum staðnaða
byggingarstíl verkamannabústað-
anna nálægt heimili foreldra
hennar í Liverpool, nema hvað í
þeim húsum var greinilega búið
og lifað en þessi voru eins og vél-
ræn maskínuhús.
Og hvað hafði hún að gera við
þrjú svefnherbergi?
Þegar hún sneri frá glugganum
buldi við þrumuhögg.
Núna hlaut hann að hafa misst
niður aö minnsta kosti ryksuguna.
Eða velt um skáp. Henni var
brugðið og hún gekk hljóðum
skrefum að eldhúsinu, lokaði
varlega á eftir sér eins og til aö
gefa gott fordæmi. Hverjum?
spurði hún sjálfa sig og opnaði dós
með reyktu svínakjöti. Enginn gat
fylgt henni með augunum gegnum
steingólfið. Ekki meöan steypan
var á milli.
Hún hristi kjötiö úr dósinni á
disk. Það var of mikið af soðhlaupi
fannst henni. Tómatar? Nei,
ferskja. Hún sneri aftur inn í stofu
til að ná í ferskju.
Að ofan heyrðist fótatak — og
fótatakiö virtist fylgja
nákvæmlega hennar eigin ferðum.
Eftir smáhlé buldi aftur við brest-
ur — á bakaleiðinni. I þetta skipti
náði hann hámarki í þrumugný en
á eftir kom hurðarskellur.
Hún hélt niöri í sér andanum og
hélt báðum höndum í sófabakið.
Hvað er orðið af kímnigáfunni?
spurði hún sjálfa sig. Þetta hafði
sínar spaugilegu hliöar. Hvers
Nú kreistum
viðalltúr
krónunm
og bjóðum þér splunkunýjan SKODA
á hlægilega lágu verði, eða
frá 89.520.- kr.
Um þetta þarf ekki fleiri orð!
Nýbýlavegi 2 - Kópavogi - Sími 42600
JÖFUR HF
18 Vikan 6. tbl.