Vikan - 10.02.1983, Qupperneq 30
Óska/ög
fyrir geimfara
Gunnþór situr vid ruslaralegt bord
á ritstjórn Vikunnar og les í rússn-
esku bladi. Á borðinu er kassi með
neðri hluta af volgri pizzu og í lokinu
grillir í tómatleðju og torkennilega
hrœru: efri hluta pizzunnar. Gunnþór
lyftir móskulitu blaðinu og hrópar:
Vá! þetta er eins og hjá nasistum, og bend-
ir á myndir máli sínu til stuðnings. —
Annars langar mig til Rússlands. Það er alls
konar lið þarna. Maður sá það á myndun-
um úr ferðinni hjá Bjögga og kó. — Einn
eða tveir pönkarar. . .skýtur Árni Daníel
inn í.
6-laga-45-snúninga-12-tommu plata,
skorin og pressuð úti, plötuumslag
hannað af Ellý en prentað úti. Hvað
frekar um þessa plötu að segja ?
— Grammið og Q4U gefa hana út í samein-
ingu. Kjúið borgar stúdíókostnað og
Grammið rest. Það er góð tilhögun, þá get-
um við verið eins lengi og við viljum og eig-
um það bara við okkur sjálf. Það er betra
að fara tíu þúsund framyflr áætlun í kostn-
aði og vera tíu sinnum ánægðari en að vera
bundinn af ákveðnum skammti af stúdíó-
tímum.
— Við fórum með lögin á kassettu á
Öðal fyrir jólin til að fagna upptökulokum!
Það er Ellý sem hannar útlit hljóm-
sveitarinnar. Danni kemur í þessu,
óhannaður að sjá, með barn við hönd,
segist hafa fundið það í rúminu hjá
sér og þótt öruggara að hafa það með
sér. Barnið er varla meir en 5 ára og
fleiri var ekki að finna í nefndu rúmi.
Eftir nokkrar símhringingar kemst
barnið til móður sinnar og sleppur þar
með við að fara upp að Rauðavatni í
leit að sjó og auðn með Q4U. Dagur-
inn er hrikalega kaldur svo barnið má
prísa sig sœlt.
Ellý er ókomin og þar sem Danni er
enn óhannaður fer hann að sœkja Ellý
og um leið í eftirlit hjá henni.
— Hún ein er ábyrg fyrir útliti hljóm-
sveitarinnar — hvað hún lítur vel — eða illa
út. Ellý er brjálæðingurinn, Árni Daníel
hugsuðurinn, Danni reddarinn og Gunnþór
1 kg stress — brjálað stress!
Brátt koma Ellý og Danni aftur í
fullum herklœðum og mannskapurinn
heldur út í hjarnið á tveim bílum í leit
að íslenskri auðn. Upp til fjalla og inn
til heiða í borg Davíðs er hana að
finna. Það er ótœkt að grilli í lífsmark
á borð við kirkjugarð, áburðarverk-
smiðju eða Grafarvog svo fyrrverandi
verðandi byggðarsvœði eru sótt heim.
Stríðsminjar sjást að vísu á þessu
sprengjusvœði Reylcjavíkur, en það er
tœplega til annars en að undirstrika
auðnina. Q4U er rekin út í kuldann og
teknar plakatmyndir hér og þar, aðal-
lega þar. Hjarnið virðist mannhelt svo
þau hœtta sér út í auðnina og fyrr en
varir skín skammdegissólin seinustu
geislunum þann daginn milli axlanna
á ungu hjónunum Ellý og Gunnþóri.
— Rokk í Reykjavík fllmaði brúðkaupið
og geymir svo fllmurnar þangað til við verð-
um fræg! Á eftir er ekið sem leið liggur,
ýmist beint í viðtal niður á Viku eða
með viðkomu í ríkisverslun.
Ekki pó/itík!
Hvernig er með ástand og horfur í
hljómsveitinni um þessar mundir?
— Aldrei betri! Þau eru á einu máli um
það Dg þar með er það útrætt.
Á nýju plötunni er lag sem heitir
P.L.O. og því liggur beint við að
spyrja hvort Q4Uséá kafi ípólitík.
— Þetta lag er ekki pólitík. Það er bara
um það hvað er að ske og hvað okkur finnst.
Hlustið bara á textann. Þetta er um þá sem
halda að heimurinn sé fyrir sig.
Springur yfír Betlehem
lítil Adolf bomba
bomban þín og bomban mín
bomba allra barna.
Þeir halda að heimurinn sé fyrir sig
og skilja ekkert annað
en ég um mér um mig
, ,Halelúja’ ’ þeir syngja svo um sig
En vita ekki af hverju guð bjó
þá til.
Með vopn sín í höndonum /
þeir skríða á mögonum
vita ekkert af hverju er stríð
Sexarma stjörnu á ennonum
og hatur í hugonum
guðsútvalda þjóð hún vill frið.
Hvað heldurðu að þeir
drepi fyrir þig?
Hundrað milljón manns
sem þér kemur ekkert við
svo væla allir
,,Ö guð gef oss frið”
en gera ekkert annað
en að hreinsa til.
Hin útvalda
í líkkistum
Dvelja á himnonum
PLO de var bio/Kill them all.
Springur yfir Betlehem. . .átti plat-
an kannski að koma út fyrir jólin ?
— Jólaboðskapur Q4U kemur eftir jól.
Gunnþór: Þegar fólk situr með ístruna
fram á herðar.
Árni Daníel: Fólk er svo upptekið að kýla
magann. .
Gunnþór: . . .og konuna!
Árni Daníel: Ef þú ætlar að gefa út plötu
sem fær fólk til að hugsa þá gefurðu hana
ekki út fyrir jólin.
Eruþau hrœdd viðpeningahliðina?
Ellý: Já!!
Árni Daníel: Þetta reddast allt!
Gunnþór: Auðvitað er maður hræddur
en það reddast. . .!
Danni:. . .þetta er ekki svo dýrt.
Hvernig er músíkin ?
— Framsækin, óskalög fyrir geimfara.
Gunnþór: Alla vega eina platan sem E.T.
mynditakameðsérheim. . .
ÁrniDaníel:. . .fráíslandi. . .
Danni:. . .Norðurlöndum.
Hvað hefur breyst frá því Q4U lék í
Rokki íReykjavík?
— Við erum öll komin á þrítugsaldur.
— ... .höfum tekið okkur góðan tíma.
Sagt um píanóið
á sínum tíma
— Það hefur tekið okkur tvö ár að búa til
okkar sánd.
— Og alveg rosalega vinnu. Minnsta
málið er að spila. Það eru allar reddingarnar
í sambandi við hljómsveitina. Við erum öll
rótarar — nema Gunnþór, hann fékk nóg
þegar hann var rótari hjá Utangarðsmönn-
um.
— Fólk verður hissa þegar það heyrir
hvað Q4U er að gera í dag.
Árni Daníel: Bullshit að það sé ekki hægt
að fá tilfínningu út úr synthesizerum. Það
sama hefur sjálfsagt verið sagt um píanóið á
sínum tíma.
— Það er langt síðan við reyndum að fá
synthesizer í hljómsveitina.
— Og einhvern sem kynni að spila á
hann.
— Við vorum reyndar með synthesizer í
fyrstu gerð hljómsveitarinnar.
Danni: Og ég lék á hann. Ég á spólu frá
því þá!
__ Ha!!!!!?????
— Þú verður að koma með hana.
— Q4U varð til úr þrotabúi Utangarðs-
manna. . .
30 Vlkan 6. tbl.