Vikan - 10.02.1983, Blaðsíða 23
andans um meöterð á öryggis-
bindingunum og lítið eftir að vel
fari um skíðin þegar þau eru flutt
milli staða.
Varist sértilboð
Svigskíðabúnaður er alls ekki
ódýr. Af þeim sökum bjóða sumir
skíðasalar slíkan búnaö í einu
lagi, skíöi, skíðaskó, bindingar og
stafi. Takið ekki tilboðum þar sem
skíðaskórnir eru með í pakkanum.
Skórnir eru mikilvægastir og því
þarftu að vera alveg viss um að fá
þá skó sem passa allra best. Þeir
eru sjaldnast í slíkum sölu-
pökkum. Sértu að hugsa um aö
leigja skíöi, gildir það sama —
kauptu þér góða skó en leigðu hitt.
Beinbrot má fyrir-
byggja með nákvæmt
stilltum bindingum
Vestur-þýska neytendablaðiö
Test lét nýverið fara fram könnun
á afgreiðslu skíðaverslana á
skíðabindingum. Athugað var hve
nákvæmlega og hve rétt
bindingarnar voru stilltar.
Skíðabindingar hafa tekið fram-
förum á undanförnum árum.
Þessi mikilvæga tenging milli
skíðanna og skónna getur skipt
sköpum hvort bylta veldur
meiðslum eður ei. Bindingarnar
eiga að leysa skíðin frá skónum á
nákvæmlega réttu augnabliki, alls
ekki of seint. Aö öðrum kosti getur
skíöamaðurinn vænst tognunar,
sinaslita eða beinbrots.
Bindingarnar mega heldur ekki
losna of auðveldlega vegna þess
að af því getur skíðamaðurinn
hlotiö slæma byltu og jafnvel enn
verri meiðsl en ef bindingarnar
losna of seint.
Nákvæmt skal það vera.
Bindingarnar þarf aö stilla þannig
að við ákveðið álag losi þær skíöin
frá skíðamanninum. Það þarf að
stilla táfestinguna (vegna
snúningsbyltu), hælfestinguna
(falli maður fram yfir sig), sóla-
festinguna og spennuna sem
þrýstir skónum fram í táfesting-
una.
Veikasti hlekkur tengslanna
milli líkama og þessara löngu
átaksarma sem nefnast skíði er
sköflungurinn. Þetta bein hefur
ákveðið sveigjuþol sem allar
stillingar öryggisbindinga þurfa
að miðast við. Alþjóðlega skíða-
öryggisnefndin gaf árið 1980 út
staðaltölur fyrir þetta sveigjuþol
sköflungsbeinsins.
Vestur-þýski skurðlæknirinn
Ernst Asang sannaði fyrir réttum
15 árum að beint hlutfall er á milli
átaksþols sköflungsins og ummáls
efsta hluta sköflungsbeinsins (við
hnéð). Sköflungskollinn er auðvelt
að mæla á hverjum sem er.
Staðaltölur fyrir stillinguna á
skíðabindingunum miðast enn-
fremur við aörar upplýsingar, svo
Byrjandanum gengur best á
sveigjanlegum skíðum sem eru i
styttra lagi. Þau ættu að vera
nokkuð jafnlöng skiðamanninum
eða heldur styttri.
sem aldur, kyn, kunnáttu og
fleira.
Könnun vestur-þýska blaðsins
Test leiddi í ljós að þær 70 verslan-
ir sem athugaðar voru vítt og
breitt um allt landið stóðu sig all-
vel í stykkinu. Nær allar búðir
notuðu vélar til að stilla skíða-
bindingarnar og náðu því góðum
árangri á prófinu. En einn af þeim
sem framkvæmdu prófið var með
afbrigðilega mjóa sköflungskolla
Reyndari skiðamenn ná meiri
árangri á milligerð af skíðum. Þau
eru allt að 20 sentimetrum lengri en
hæð skíðamannsins segir til um.
Þau hafa minni sveigjanleika en
byrjendaskiði, kantarnir bíta betur
og hefði því átt að fá lausari
bindingar en raun varð á. Sama
virðist uppi á teningnum með aðra
skíöamenn sem hafa afbrigöilega
sköflungskolla, til dæmis er hætta
á að börn og unglingar fái
bindingar ranglega stilltar.
Aðgætið hvort bindingarnar eru of
fastheldnar! Ennfremur ættu þeir
sem brúka almennar gerðir af
skíðum að kanna hvort þau eru of
laust fest.
Kunnáttumaðurinn velur sér skíði
af fullri lengd. Á þeim er hægt að
keyra enn hraðar en á venjulegum
skíðum og fást mismunandi gerðir
miðað við skiðaiðkun og skíðafæri.
Þessi skiði gera miklar kröfur til
skiðamannsins. Þau ættu að vera
og þola meiri hraða. En notandinn
6. tbl. Vikan 23