Vikan


Vikan - 10.02.1983, Blaðsíða 19

Vikan - 10.02.1983, Blaðsíða 19
vegna hló hún ekki? Ef til vill vegna þess aö hann var hálfóglatt. Með hálfum huga gekk hún þessi skref að diskinum með ferskjunum, tók þá smærri og fór aftur fram í eldhúsið. Hún flysjaði hana og helmingaði áöur en hún sneiddi kjötið. Hreyfingarnar voru ekki sem öruggastar. Hnífur- inn hrökk til og hún skar sig í þumalfingur vinstri handar. Hún fann plástur og setti á fingurinn. Til þess þurfti hún að opna skápa og skúffur sem hún hafði hingað til forðast að gera. Það var ógerlegt að opna stífa skúffu hávaðalaust en ef hún gerði það meö smáátökum á löngum tíma, klínandi blóðinu um allt, var hægt að gera þetta með lágmarks hávaða og engin samsvarandi hljóð heyröust aö ofan. A meðan hún mataðist hrökk hún í kút við sargandi hljóð. Hún áttaði sig fljótlega. Þetta var í skúrdyrum garðskýlis sem til- heyrði samtengdu húsi. Augna- bliki síðar fór mótorsláttuvélin drynjandiígang. Hún stóð upp til að loka stofu- glugganum. Þá yrði hitasvækja inni en kostirnir voru aðeins tveir, svækjan eöa að stilla sjónvarpið nógu hátt til aö heyra talið við náttúruverndarmyndina um ógn- un við lifnaðarhætti otursins á breskum heiðalöndum. Hún þvoði upp, gekk frá og tók til bolla og undirskál sem hún ætlaði að nota við kaffið eftir að þættinum lyki klukkan tuttugu mínútur fyrir níu. Síðan kæmu fréttirnar klukkan níu. Hún vildi fylgjast meö heims- viöburðum. Um leið og hún kveikti á sjónvarpinu stillti hún litina og tók með sér öskju af myntusúkku- laði að sófanum. Hún hafði hitt á réttu stundina. Myndavélin færðist yfir grósku- mikil heiðalönd og staðnæmdist á lækjarbakka. Rödd þularins var mjúk og þýð: „A níunda áratug tuttugustu aldar í okkar fagra Englandi mætti spyrja þeirrar spurningar. ..” Bassahljómfallið þrengdi sér inn í stofuna. Lindy sat hreyfingarlaus. Nú heyrðust varla orðaskil en hún sat þar sem hún var komin og japlaöi utan við sig á súkkulaðibitanum sem hún var með í munninum. Myntan hrökk ofan í hálsinn á henni og hún fór hóstandi fram í eldhús og fékk sér vatn að drekka. Þegar hún haföi jafnaö sig gekk hún þungum skrefum inn í stofu og tók með sér kúst á löngu skafti. Það var undarleg ró yfir henni og hún leit upp í loftið. Aslátturinn hélt áfram með vax- i Reyr- húsgögn vönduð og ódýr, henta allsstaðar 'f/% KRISTJRn SIGGEIRSSOn HF. LAUGAVEGI 13, REYKJAVÍK, SÍMI 25870 andi frekju og yfirgnæfði alla samkeppni frá sláttuvélarmótorn- um. Hún tók um kústhausinn, rétti skaftið upp í loft og bankaði hik- andi tvö högg. Og strax aftur fastar og oftar. Andardrátturinn varð þungur og óreglulegur. Þaö hafði ekki hent hana árum saman að vöðvar herptust saman, þrengdu að lungunum og stífluðu loftstreym- iö. Aður fyrr hafði þessi kvilli verið fylgifiskur fjölskylduvanda- mála en þegar hún flutti að heiman varð hún hans ekki vör lengur. Framhald í næsta blaði. L3 6. tbl. Víkan 19
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.