Vikan


Vikan - 10.02.1983, Side 31

Vikan - 10.02.1983, Side 31
— . , .og Taugadeildarinnar! — Við erum að reyna að halda upphafs- andanum. Best að segja sem minnst um aðr- ar hljómsveitir. Nema kannski að Þeyr, Fræbbblarnir, Q4U og kannski Von- brigði. . .eru að halda áfram við það sem gert var fyrst. Andinn frá vorinu ’81! — Milb hljómsveita hér er mikil sam- vinna, margir nota sömu græjurnar. — Og sömu frægðina — frá Utangarðs- mönnum. — Ef Utangarðsmenn hefðu ekki verið til væri Q4U ekki til. . . Ellý: Og hugsið ykkur hvað það væri hræðilegt fyrir heiminn! — Það má kannski segja að Þeyr sé besta íslenska hljómsveitin fyrir utanlandsmarkað en EGÓ fyrir innanlandsmarkað. Og svo er það Q4U. Það sem við ætlum okkur er að komast í þá stöðu að þurfa ekki að borga með okkur. Stundum virðist það ótrúlega fjarlægt markmið. Græjurnar Gunnþór: Við eigum ekkert. Árni Daníel: Ekkert!!?!!. . . Kominn með skuldbindingar upp á tugi þúsunda. Ég er á hausnum. Ellý: Við erum að reyna að ná í okkar eigin tæki. Gunnþór: Á meðan borgum við með hljómsveitinni. Við kaupum lítið 1 einu til að þurfa ekki að hlaupa um þúsund sinnum á viku og spila á þúsund stöðum til að standa undir kostnaði. Okkur langar ekkert til að lenda í því. Við fjárfestum frekar í þessu en kassa í Breiðholti eða bíldruslu. Harkan í bransanum — Við höfum barist fyrir tilvemnni í bókstaflegri merkingu. Bæði innbyrðis og út á við. Þetta er það sama og er að gerast hjá fólki alls staðar, í Breiðholti og niðri í miðbæ. Árni Daníel: Ég slæst ekki. Ég er friðar- sinni. — Við erum ekkert hrædd við slagsmál, þetta hefur alltaf reddast og gerir það áfram. — Úr því sem komið er verður enginn rekinn úr hljómsveitinni, bara bætt við. Við erum að leita að manni, þarf að vera karl- kyns........Ellý vill ekki annan kven- mann........á trommuheila eða trommur. Gott ef hann gæti dansað. — Það er sjaldgæft að hægt sé að setja saman grúppu sem er í fullkomnu jafnvægi og Q-ið er í furðu miklu jafnvægi. Arni Daníel: Stundum lenda menn í vit- lausri hljómsveit fyrst og fara á milli hljóm- sveita en það má kallast gott ef maður endar í réttri hljómsveit. Meiri harka — Ef það verður hasar sér Ellý um að kæla liðið niður. Og hún sér um það með glæsibrag. — Hún pælirf karate. . . — Gunnþór sér um að brjóta hljóðfærin1 Ha! — Ég er búinn að brjóta tvo bassa og 1 / 2 söngkerfi. . . Viljandi ? — Nei, mér mistókst og mér líkar ekki að mistakast. . . — ... vægast sagt (bæta hin við). — Ég braut líka einu sinni klósettvegg. — Ef við förum á bömmer förum við til Ellýjar og látum hana spá fyrir okkur. Hún spáir í Tarot og pælir í stjörnumerkjum. Ellý: Allir sem spá í Tarot pæla í stjörnu- merkjum. En vinkonur mínar eru miklu betri en ég í þessu. Ég vil ekki læra of mikið, ég er hrædd við það og ,,Black magic’’ vil ég alls ekki. Framadraumar á öðrum sviðum Ellý er þekkt fyrir fleira en söng og sviðsframkomu. Hún hefur komið sér upp orðspori sem góður teiknari og málari, orðspori sem víða hefur farið. Hvenœr œtlar hún að halda sýningu? — Ég er ekki tilbúin núna. . . — Víst! — Nei! En um leið og ég er búin að finna mér íbúð get ég farið að vinna í því og eigum við ekki bara að segja snemma á árinu. — Hljómsveitin spilar auðvitað á sýning- unni. Ellý: Annars langar mig að pæla í fata- hönnun. — Aðalstarfíð hjá henni núna er að hanna útlitið á hljómsveitinni og sjá um sviðsbúnað og sviðsframkomu. Eru fleiri hljómsveitarmeðlimir með eitthvað ípokahorninu? Árni Daníel: Ég ætla að fara að skrifa skáldsögu um fjögur ungmenni úr samtök- um lýðræðissinnaðra æskumanna sem bandaríska leyniþjónustan ræður til að grafa undan íslensku friðarhreyfingunni. Þau berjast á fernum vígstöðvum, einn fer í þingmennina, annar í pönkliðið, þriðji í kirkjuna og fjórði í herstöðvarandstæðinga. Þau lenda í alls konar vandræðum og lenda í barátrn við ókunna andstæðinga. Síðan komast þau að því að þetta er klofnings- hópur úr hvítasunnusöfnuðinum, stjórnað afdjöflinum. . . Ég segi ekki meira. Gunnþór: Ég er að vinna að sinfóníu eða löngu lagi um Sid Vicious. Þegar verið er að tala um Sid Vicious er alltaf allt það versta dregið fram. Hann var bara óheppinn krakki. Danni: I’m working on some shadowy things. . . Vímuefni Nokkuð að lokum ? — Þessir krakkar sem halda að það sé eitthvað sniðugt að sniffa lím eða nota herófn eru algjör fífl! — Það er miklu betra að þjálfa upp sitt eigið rugl. — Þú átt meira til en bara hass. — Þú átt að skapa eitthvað sjálfur, ekki kaupa það! — Heimurinn var ekki ræktaður í Líbanon! — Þeir sem reykja hass segja bara ,,Vá!” og svo gerist ekki neitt. — Þeir fá svakalegar hugmyndir en ekkert verður úr þeim. — Settu sjálfan þig í gróðurhús og rækt- aðu þig eins og hass — en ræktaðu ekki hass. Árni Daníel: Þú getur gefið skít í þjóðfé- lagið en ekki sjálfan þig. ímyndin Gunnþór: Að sjálfsögðu viljum við ná langt, en ekki á kostnað annarra. — Það er ágætt að gagnrýna en maður verður að geta staðið undir því. Árni Daníel: Við göngum ekki í Sam- band ungra sjálfstæðismanna og kaupum okkur jakkaföt eða í Alþýðubandalagið og kaupum okkur úlpur. Við búum til okkar eigin hugsjónir eða anti-hugsjónir. — Bubbi er langbesti spegillinn af því sem er að gerast í textum hans — hann gríp- ur vel það sem liggur í loftinu. Þó ímyndin sé búin til í steinaríki er hann það ekki. Danni, Ellý, Gunnþór og Árni Daníel voru alls ekki hætt þegar hér var komið sögu. En þau færðu sig um set og lengra voru þau ekki elt þennan daginn. Hins veg- ar fréttist af þeim niðri í Þursabiti við mikið fjör og hélst svo lengi nætur. . . 6. tbl. Vikan 31

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.