Vikan


Vikan - 10.02.1983, Blaðsíða 35

Vikan - 10.02.1983, Blaðsíða 35
Skop Þegar ég skrifaði vangaveltu mina um helgarferð til Glasgow (sjá 5. tbl. Vikunnar, 3. febr. 1983) var ég að vissu marki villtur i fargjalda- frumskógi flugsins. Ég vissi þá ekki af hagstæðum fargjaldsmöguleika til Glasgow. Það er svokallað „rautt Apex". Það er þeim skilyrðum háð að farið sé pantað og borgað hálfum mánuði fyrir brottför og gildir aðeins fyrir þá ferð sem pantað er i — það er sem sagt ekki hægt að breyta áætlun sinni án þess að ógilda far- seðilinn. Þá er og skilyrði að vera minnst viku í ferðinni en koma heim áður en mánuður er liðinn frá upphafi ferðar. Hvað Glasgow snertir er „rautt Apex" einnig háð þvi skilyrði að eingöngu séu notaðar mánudags- ferðir Flugleiða. Ef ég hef skilið þetta „rauða Apex" rétt er þá upp- lagt að vera viku, frá mánudegi til mánudags. Þá kostar flugfarið 4764 með flugvallarskatti. Það þýðir að maður getur fengið hina ágætustu viku í Glasgow fyrir 6444 krónur miðað við ódýrustu gistingu á smá- hóteli eða bara árbit og áningu. Á þokkalegu hóteli i lægri brún, segj- um til dæmis Raffles (sem ég þekki ekki en virðist svolítið álitlegt) væri kostnaðurinn 7000 krónur, á Ingram 8500 og lúxushóteli svo sem Grosvenor 9800. öll þessi hótelverð eru miðuð við verðskrá. Ekki er óliklegt að við vikudvöl væri hægt að fá afslátt sem lækkaði verðið eða að ferðaskrifstofurnar hér gætu náð enn hagstæðari kjörum. Sem sagt, athugið málið, rautt Apex og góða ferð til Glasgow. Sigurður Hreiðar Mest um fólk Diddi var dauöur og Jón heim- sótti ekkjuna til aö hugga hana og láta samúö sína í ljós. — Viö Diddi vorum svo miklir vinir, sagði hann, heldurðu að þú eigir eitthvert smáræði, sem hann lét eftir sig, sem ég mætti eiga til minningar um hann? Ekkjan leit upp tárvotum aug- um og hvíslaöi mjúkum rómi: — Hvaðmeðmig? Ein úr saumaklúbbnum hafði farið í fjörugt samkvæmi og vin- konur hennar voru hreint að sálast úr forvitni þegar hún kom í næsta saumaklúbb og vildu heyra allt í smáatriðum. — Hvernig var Bidda klædd? spurðu þær. — Ja, þið vitið að hún er alltaf að kvarta undan því að hún eigi svo lítil föt í klæðaskápnum sínum. . . — Já-á... — Ja, hún var í þeim. Hórna væri hentugt að setja upp Ijósritunarvólina. Eftirjólaþankar um „skóinn" — Eigum við eitthvað til að setja í skóinn? — Ja, ís, alla vega. I barnaafmæli: — Mamma, get- urðu skroppið heim og sett skóinn minn út í glugga og sótt mig svo á eftir? Meira um fólk Hafnfirðingur gengur inn í veitingasal frægs skemmtihúss á Akureyri, finnur autt sæti við barinn og hellir í sig þrem tvöföldum. Snýr sér síöan aö stúlkunni sem situr í næsta sæti viðhannog segir: „Heyrðu, vina. Mundir þú geta hugsað þér að skríða upp í með alveg bláókunnugum manni? ” ,,Je minn — aldrei í lífinu, gamli vinur!” 6. tbl. Vikan 35
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.