Vikan - 10.02.1983, Side 46
Framhaldssaga
mikiö hlaut aö vera aö. Hann
hringdi í ítölsku lögregluna til aö
reyna að komast í samband viö
Jon. Italska lögreglan lét austur-
rísku lögregluna vita, og leitin að
okkur barst þegar yfir landa-
mærin. Fjallabjörgunarsveitin
brá skjótt viö, þegar Toni tilkynnti
um snjóflóðiö, og Christoph,
Stephen og Jon fengu lögreglu-
fylgd á staöinn, þar sem Toni
haföi fundið okkur. Þeir voru allir
afar ánægöir með frammistöðuna
og skáluðu óspart fyrir björgunar-
afrekinu í rúbínrauöa víninu, og
sem betur fór leyföi enginn sér þá
óskammfeilni aö nefna héraöiö,
sem þaðkom frá.
Björgunarsveitarmennirnir
höfðu einnig fundið Sloan og
Ulrich. Snjóflóöið hafði lent af full-
um þunga á bíl þeirra og sópaö
honum mörg hundruð metra niður
fjallshlíöina. Lík mannanna
tveggja höföu fundist skammt frá
bílnum.
Hetja kvöldsins var auðvitaö
Bruno. Hann hefði átt aö vera
háttaður, en hann hafði þegar
fengið sér lúr og náð úr sér mestu
þreytunni. Nú sat hann, rjóöur af
hita og æsingi, og hámaöi í sig
stóran skammt af kjúklingum og
hrísgrjónum og naut skefjalaust
athygli allra viðstaddra. Eg gat
ekki varist þeirri hugsun, að hann
hlyti að uppskera bæði höfuðverk
og magapínu, en því mátti heldur
ekki gleyma, að það er ekki dag-
legur viöburður fyrir átta ára
barn að bjarga mannslífi.
Bruno sat á milli Tonis og
Stephens gegnt okkur Jon, rifjaði
æ ofan í æ upp atburöi dagsins og
leitaði öðru hverju staðfestingar
minnar: — Var þaö ekki, Kate? —
og: — Gerði ég það ekki, Kate?
Til allrar hamingju var hann
alltof upptekinn af sjálfum sér til
að veita því eftirtekt, að faðir hans
borðaöi eingöngu með vinstri
hendinni, en ég með þeirri hægri,
og hvorugt okkar hafði sérlega
góða matarlyst.
— Hann virðist hafa tengst þér
sterkum böndum, sagöi Jon hljóð-
lega viðmig.
— Skiljanlega eftir allt, sem við
höfum gengið í gegnum saman,
Auk hinnar margrómuðu þjónustu, sem ásamt hlýlegu umhverfi og
fjölbreYttum matseðli hafa aflað veítingahúsinu svo míkílla vinsælda, eykur
Arnarhóll enn við umsvif sín. Við hinn almenna veitingarekstur hefur
berlega komið í Ijós að margir afviðskiptavinum Arnarhóls hafa brýna þörf
fyrir aðstöðu til lokaðra funda og samkvæma. Til þess að koma til móts
við þessar þarfir gesta sinna hafa aðstandendur Arnarhóls ákveðið að veita
þessa þjónustu og eíns og alltaf þegar Arnarhóll er annars vegar situr
fjölbreytnin í fyrirrúmi. Að aflokinni hagræðingu á salarkynnum
veitingastaðarins getur Arnarhóll nú boðið fjölbreyttum hópí viðskiptavina
sinna margvíslega þjónustu.
KLÚBBAR FÉLAGASAMTÖK________________FYRIRTÆKI
AmarhóII býður ykkur aðstöðu til fastra hádegisverðafunda jafnt sem
einstakra og einníg einkasamkvæma.
ARNARHÓLL BÝÐUR AÐSTÖÐU FYRIR:
Smærri hópa (frá 10 manns) hádegí og kvöld alla vírka daga(í koníakssal).
EINKASAMKVÆMI
Stórar veíslur jafnt sem smáar. Sama hvert tílefnið er, brúðkaup, afmæli,
fermingar, próflok, ArnarhóII annar öllu.
ARNARHÓLL BÝÐUR AÐSTÖÐU FYRIR:
Stærri samkvæmi (allt að 100 manna matarveislur og 200 manna hanastél
til kl. 18.00) hádegi laugardaga og sunnudaga.
Gestir utan af landi - Ópera-Leikhús___________________
AmarhóII tekur á móti hóppöntunum óperu- og leikhúsgesta utan af landi.
Aukín þjónusta
FUNDIR
EINKASAMKVÆMI
46 Vikan 6. tbl.